Kjarninn - 07.11.2013, Page 41
02/05 kjarninn Borgarmál
Á
árunum fyrir bankahrun var það nokkuð
útbreidd skoðun að miðborg Reykjavíkur væri
ekki aðlandi staður. Verslun var á hröðum
flótta úr þessum hluta borgarinnar og inn í
verslunarmiðstöðvarnar. Þar gátu neytendur
enda verið inni í hlýjunni. Ýmis fasteignafélög höfðu auk
þess keypt upp fjölmargar eignir á völdum skipulags reitum
á og við Laugaveginn, aðalgötu borgarinnar. Í flestum til-
fellum ætluðu þau sér að rífa húsin og byggja nýjar, oft á
tíðum risavaxnar, byggingar í þeirra stað. Meðal annars
hugðist Samson Properties, félag sem var í eigu feðganna
Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar,
byggja verslunarmiðstöð sem næði frá Laugavegi og niður
að Skúlagötu. Inngangur verslunarmiðstöðvarinnar, sem
átti að vera 25 þúsund fermetrar að stærð, átti að vera þar
sem höfuðstöðvar Kjarnans eru í dag, á Laugavegi 71. Hinn
endi hennar átti að vera þar sem Kex Hostel stendur í dag
við Skúlagötu. Hefðu áformin gengið eftir hefði Kex, sem
ný verið var valið á meðal sjö bestu farfuglaheimila í heimi af
sjónvarps risanum CNN, aldrei orðið til.
Hústökufólk í auðum húsum
Mörg þessara fasteignaþróunarfélaga stóðu í stappi við borg-
aryfirvöld vegna skipulagsmála. Þau höfðu keyptu fullt af
húsum á völdum skipulagsreitum en gerðu í raun ekkert við
þau. Á meðan félögin, og fjárfestarnir á bak við þau, reyndu
að fá leyfi til að byggja nýaldarleg gímöld í miðborginni
stóðu húsin sem þau höfðu keypt mörg hver auð. Samkvæmt
samantekt sem skipulags- og byggingarsvið borgarinnar
lagði fyrir borgarráð í byrjun apríl 2008 voru 37 hús auð í
miðborg Reykjavíkur. Þar af voru 16 hús við helstu verslunar-
götu borgarinnar, Laugaveg. Það voru um ellefu prósent allra
húsa á þeim kafla Laugavegarins sem tilheyrir póstnúmeri
101.
Hústökufólk hafði hreiðrað um sig í um þriðjungi
þessara húsa. Mikil óþrifnaður fylgdi veru þess í húsun-
um. Líkams úrgang og ummerki eftir fíkniefnaneyslu var
Borgarmál
Þórður Snær Júlíusson
thordur@kjarninn.is