Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 56
02/08 kjarninn Viðtal
G
uðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
barnafatafyrirtækisins Ígló&Indí, stendur í
stórræðum ásamt samstarfsfólki, ekki síst
stofnandanum og hönnuðinum, Helgu Ólafs-
dóttur. Fyrirtækið stefnir á erlenda markaði
og er unnið að undirbúningi þess hörðum höndum þessa
dagana. „Við erum að vanda okkur og höfum mjög skýra sýn
á það hvar við viljum koma okkar vörum á markað, sem er á
Norðurlöndunum, Bretlandi og Norður-Evrópu,“ segir Tinna.
Guð blessaði Ísland og fyrirtæki stofnað
Upphafið að Ígló&ÍndÍ, sem rekur meðal annars verslun í
Kringlunni og sér skólum Hjallastefnunnar fyrir fatnaði,
má rekja fimm ár aftur í tímann, um það bil sama tíma og
íslenska hagkerfið riðaði til falls. „Helga stofnaði fyrir tækið
nánast daginn eftir að Geir H. Haarde bað Guð að blessa
Ísland. Það var djarft hjá henni að gera þetta á þessum tíma
en hún var búin að undirbúa þetta í meira en tvö ár. Helga
hefur mikla alþjóðlega reynslu úr hönnunargeiranum. Hún
var yfir hönnuður hjá Ilse Jacobsen og hannaði einnig hjá
Nikita og All Saints. Á þessum tíma var hún búin að eignast
tvö börn og fann fyrir því að það var tómarúm á markaðnum
þegar kom að barnafötum. Þá helst fötum sem hönnuð væru
með áherslu á þægindi, góðan hreyfanleika og fallega lita-
samsetningu,“ segir Tinna.
Helga var búin að hanna heila fatalínu og leggja mikla
vinnu í hana. Í kjölfar hrunsins ákvað hún að draga aðeins
saman seglin og fara fyrst fram með vörur úr flísefni, þar
sem í því fólst minnsta áhættan að hennar mati. Eftir þeim
vörum væri helst eftirspurn. Fötunum var vel tekið og seldust
þau vel. „Í framhaldi af þessu hefur línan stækkað jafnt
og þétt og seljum við í dag hversdagsföt, spariföt og flísföt
fyrir börn á aldrinum 0-12 ára. Í upphafi var vörumerkið í
Garðabæ, ef svo má segja. Það voru margar mæður í Garðabæ
sem keyptu fötin í upphafi og þaðan vex merkið. Við höfum
svo tekið Ígló&Indí inn í „meginstrauminn“ og stækkað
þannig merkið,“ segir Tinna.
viðtal
Magnús Halldórsson
magnush@kjarninn.is
„Á þessum tíma
var hún búin
að eignast tvö
börn og fann
fyrir því að það
var tómarúm
á markaðnum
þegar kom að
barnafötum. Þá
helst fötum sem
hönnuð væru
með áherslu á
þægindi, góðan
hreyfanleika
og fallega lita-
samsetningu.“