Kjarninn - 07.11.2013, Page 57

Kjarninn - 07.11.2013, Page 57
03/08 kjarninn Viðtal Ígló&Indí hefur vaxið úr því að vera agnarsmátt vöru- merki fyrir einangraðan hóp í að vera þekkt vörumerki hér á landi og vaxandi á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Tinna segir að vel hafi gengið að þróa vörumerkið áfram á grunni þess sem lagt var upp með í upphafi. Miklu hafi skipt að ná góðum „tökum á vörumerkinu“, marka því sérstöðu bæði út frá hönnun, markaðssetningu og söluleiðum og rækta sam- band við viðskiptavini. „Þegar ég kem að fyrirtækinu fyrir um tveimur og hálfu ári hef ég ásamt samstarfsfólki mínu lagt mikið upp úr því að styrkja vörumerkið og fyrir hvað það stendur og setja markmið um vöxt, markaðssetningu og dreifingu á þeim forsendum. Ég hef oft séð það í mínum fyrri störfum í smásölugeiranum erlendis að vörumerkin sem ná árangri eru þau sem hafa lagt mikla áherslu á að gefa engan afslátt af sérstöðunni og gæðunum, þrátt fyrir öran vöxt. Í raun má segja að á milli vörumerkis og viðskiptavinar þurfi að vera heiðarlegt og einlægt samtal. Á þetta leggjum við áherslu,“ segir Tinna. Hún hefur reynslu úr smásölugeiranum, vann meðal annars hjá Baugi Group þegar umsvif þess félags voru sem mest á smásölumörkuðum í Bretlandi og á Norðurlöndunum, á árunum 2002 til 2008. Þá vann hún í fjármálageiranum frá 1996-2002, bæði hér á landi hjá VÍB Íslandsbanka, sem þá hét, og í Lúxemborg hjá Kaupþingi. Tinna segir þessa reynslu ómetanlega þegar komi að því að reka fyrirtæki sem sé að „Ég hef oft séð það í mínum fyrri störfum í smásölu geiranum erlendis að vöru- merkin sem ná árangri eru þau sem hafa lagt mikla áherslu á að gefa engan afslátt af sér- stöðunni og gæðunum, þrátt fyrir öran vöxt.“ um Ígló&indÍ Ĉ Fagnaði fimm ára afmæli í október 2013. Fyrir- tækið rekur eigin verslun í Kringlunni og eigin netverslun ásamt því að selja vörur sínar til tíu annarra verslana á Íslandi. Fyrirtækið ætlar sér að opna tvær aðrar eigin verslanir á Íslandi árið 2014. til viðbótar eru vörur Ígló&indí til sölu í 21 verslun erlendis. Ĉ Hefur framleitt og selt tíu fatalínur. Vörumerkið er vel skilgreint á markaði út frá hönnun, verði, markaðs- og söluleiðum. Ĉ Ætlar að fagna sex ára afmælinu erlendis ásamt enn skilvirkari framleiðslustjórnun Ĉ Ígló&Índí sér um framleiðslu á öllum fatnaði Hjallastefnuskólanna, bæði á leik- og grunn- skólastigi, fyrir börn og starfsfólk. Fyrirtækið hefur átt í samstarfi við Hjallastefnuna í þrjú ár. Framleiðsla fyrirtækisins fer fram í Kína en öll hönnunar- og stjórnunarvinna á Íslandi.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.