Kjarninn - 07.11.2013, Page 73
01/01 kjarninn pistill
Í
dag fæðist barn.
Mér varð hugsað til barna sem fæðast í dag inn
í heim svartsýni þegar ég rakst á klausu í fjölmiðli
þess efnis að ástandið á Landspítalanum væri svo
slæmt að það þyrfti að leita fjörutíu ár aftur í tímann
til að finna annað eins. Ég man ekki hver sagði þetta í hvaða
miðli, man bara að ég las þetta og lyfti brúnum. Ástæðan: Ég
fæddist fyrir fjörutíu árum, árið 1973. Þá var tilveran fleyti-
full af framtíð og möguleikum, ólíkt því sem gerist nú –
eða hvað?
Máttur almennings
Í fljótu bragði finnst mér eins og ég hafi fæðst inn í
heim þar sem allt var í stakasta lagi og fólk trúði að
hlutirnir ættu bara eftir að verða betri. Landspítalinn
átti eftir að eflast jafnt og þétt, fram að árþúsundaskiptunum
eða svo; kannski var hann byrjaður að dala aftur einhverjum
misserum fyrir þann tíma, ég veit það ekki nákvæmlega. En
ég man að fólk var bjartsýnt þegar ég var að komast til vits
og ára. Fólk trúði á framtíðina, þrátt fyrir allsherjarverkfall
og almenn blankeit. Og kannski einmitt vegna þeirra, það
trúði á verkalýðsbaráttu og samstöðu: mátt almennings.
Rómantískur bjarmi
Kannski sé ég æskuár mín í pastelbleikum rómantískum
bjarma, svipuðum og á gömlu sólarlagspóstkorti frá Costa
del Sol. Það getur verið. Foreldrum mínum fannst ábyggilega
ekki jafn gaman í allsherjarverkfallinu og mér. Ég fékk frí í
skólanum en pabbi brunaði staurblankur austur á Fagurhóls-
mýri eftir síðasta fáanlega sígarettupakkanum á landinu.
Sólin skein á hverjum degi, finnst mér í endurminningunni –
þangað til ég spjalla við gamlan æskuvin sem trúir mér fyrir
því að hann hafi ekki getað sofnað á kvöldin af hræðslu við
að vakna við risastóran kjarnorkusprengjusvepp. Sjálf var
ég of upptekin af stríðinu milli Wham-aðdáenda og Duran
Duran-aðdáenda til að veita Kalda stríðinu minnstu athygli.
Í augum æskuvinar míns var framtíðin svo ótrygg að
hann þakkaði fyrir hvern dag með því að belgja sig út af
franskbrauði og kakómjólk í bakaríinu. Prísaði sig sælan að
ná að torga þessu fyrir endalok heimsins.
Heimsendir beið handan við hornið á bakaríinu í
Mosfells bæ.
Eyðingarmáttur alnæmisins
Það átti ekki af honum vini mínum að ganga. Flestir sálu-
félagar hans í Kaldastríðsóttanum gleymdu kjarnorku-
sveppnum við kynþroskann en þá tók við ný vá. Nefnilega
alnæmi, sem þá hét eyðni.
Hann vinur minn er samkynhneigður. Eitt var að
koma út úr skápnum í Mosfellsbæ á þessum tíma, annað
að heyra hryllingssögur af hinum skæða sjúkdómi sem af
trölla sögunum að dæma virtist stráfella fólk við minnstu
snertingu og vera á góðri leið með að útrýma mannkyninu.
Mér varð hugsað til alnæmisóttans í vikunni þegar ég
rakst á frétt þess efnis að vegna lyfjaþróunar væri óhætt að
sofa hjá HIV-jákvæðu fólki án þess að nota verjur svo lengi
sem það tæki lyfin reglulega. Ég vildi að ég hefði getað sagt
honum vini mínum að hann ætti eftir að lesa þessa frétt í
blaði – og það löngu eftir að fólki skildist að sjúkdómurinn
herjaði ekki bara á samkynhneigða – þegar við korruðum
saman í lífsangistinni með breska poppmelankólíuna í
eyrunum og ég var gjörsamlega sljó fyrir fínlegri kenndum
hans. Gott ef ég sýndi honum ekki þess tíma alnæmis-
skopmynd af manni og simpansa að reykja eftir-sex-
sígarettu, fallega fullnægðum á svipinn.
Endalaus heimsendir
Heimsendir vofir yfir okkur á hverjum degi, alltaf, alls
staðar. Einu sinni var það mannfjölgunarvandinn, svo
gleymdist hann. Vísindamenn tala nú um nauðsyn þess að
verjast loftsteinum sem geti eytt öllu lífi á jörðinni en maður
má varla vera að því að hlusta á þá af ótta við allar svörtu
spárnar um heimsendi út af loftslagsbreytingum um það
leyti sem yngstu börnin okkar fara að huga að ellilífeyrinum.
Og hvað með hryðjuverk og fuglaflensu? Eru allir hættir
að tala um það?
Ababbb abbbbabba ba!
Hér blanda ég saman eplum og appelsínum: dráps-
mönnum og drápsveirum. Pólitík og raunvísindi eru ólíkir
hlutir. Pólitíkin er huglæg og sprettur úr mannlegri sambúð,
í besta falli flokkast fræðin tengd henni undir hugvísindi.
Raunvísindi lúta óhjákvæmilega sínum innri lögmálum.
Á sama tíma haldast hugvísindi og raunvísindi í hendur.
Megnug þess að eyða heiminum. Megnug þess, vonandi, að
halda honum lífvænlegum.
Svo ég vitni í rúmlega fimmtíu ára gamla setningarræðu
Johns F. Kennedy hefur mannkynið það á valdi sínu að geta
bæði eytt fátækt og eytt heiminum. Nú sem þá.
Við Kennedy
Um þessar mundir bý ég rétt hjá ráðhúsi Schöneberg-hverfis
í Berlín. Ég átti erindi þangað nýlega með tveggja ára son
minn og rak mig á að það er ekki svo auðvelt að komast upp
tröppurnar með barnakerru. En ofan á þessar sömu tröppur
var á sínum tíma smíðaður pallur undir Kennedy. Tíu árum
áður en ég fæddist, árið 1963, stóð hann hér og stappaði
stálinu í Vestur-Berlínarbúa, nánar tiltekið þegar Vestur-
Berlín var eyja í miðju Austur-Þýskalandi. Þá sagði hann,
eins og frægt varð, sínum dáleiðandi rómi: Ég er Berlínarbúi.
Um tíma höfðu vistir einungis borist með flugi til
borgarinnar, í einni af fyrstu alvöru krísum Kalda stríðsins.
Ástandið var töluvert frábrugið því sem ég á að venjast,
rápandi með barnakerruna á milli aragrúa alþjóðlegra
veitingastaða og lífrænna delikatessen-verslana.
Kennedy var Berlínarbúi í heimi ógnar en þó dásamlega
einföldum heimi. Skýrt afmörkuðum af múr sem umkringdi
vesturhluta borgarinnar.
Fólk var hrætt við hættulega en þó einfalda hluti:
kommúnisma og váina að heimurinn myndi farast í
kjarnorku styrjöld.
9DUº°8SSO½VLQJDö³°
Kennedy er minnst fyrir ræðusnilld. Hann kunni að blása
fólki byr í brjóst og vara það við því að láta óttann stjórna
sér, þó að það kæmi honum ekki alltaf til góða. Í Banda-
ríkjunum flykktist fólk út á götur til að mótmæla Víetnam-
stríðinu. Kannski var það í og með að hafna vanmættinum.
Hafna því að sitja aðgerðarlaust heima. Hafna óttanum.
En óttinn er þrásætinn. Það er alltaf nægur ótti, hvert á
land sem farið er. Óttinn við Kalda stríðið varð að ótta við
alnæmi, hryðjuverk, trúarbrögð. Svona má endalaust upp
telja. Einn allsherjar lamandi ótti herjar á mannkynið.
Óttinn breytist auðveldlega í andúð. Andúð á öðru fólki.
Fólki með slæðu. Fólki með pönkarakamb. Fólki í bikiníi.
Fólki með hatt. Fólki í leðurbuxum. Fólki frá öðrum löndum.
Fólki með öðruvísi stjórnmálaskoðanir. Fólki sem á hund.
Fólki sem þolir ekki hunda. Fólki á kaffihúsi. Fólki í fjárhúsi.
Á hverjum degi gleypum við í okkur upplýsingar um nýja
hluti til að óttast. Það er varla þverfótandi fyrir hættum og
því sjáum við ekki skóginn fyrir trjánum.
Geispum þegar raunvísindamenn hrópa að heimurinn
sé á heljarþröm út af loftslagsbreytingum. Löngu búin að
gleyma sögunni sem gömul amma las fyrir barnabarn um
strákinn sem kallaði úlfur úlfur.
Það er búið að kalla svo ákaft og hátt, svo oft, að við
hunsum þörfina á bráðum aðgerðum. Þetta eru gamlar
fréttir. Við erum hræddari við þessar nýju, hvað var það
nýjasta? Risageitungar?
Trú á eigin mátt
Erum við virkilega svo dofin af ótta að við berjumst fyrst og
fremst gegn því að eiga úreltan snjallsíma á milli þess sem
við póstum fréttum af risageitungum?
Við erum fíklar í innihaldslausa afþreyingu, þá tegund-
ina af nútíma menningu sem heilaþvær manneskjur með trú
á auðræði og ábyrgðarlausa neyslu; það er að segja úr sér
gengna hugmyndafræði í heimi sem þrífst ekki öllu lengur
án þess að almenningur leggi honum lið á ábyrgan hátt. Eina
leiðin til þess er að hver og einn öðlist trú á eigin mátt. Trúna
á að maður sjálfur geti skipt sköpum.
Að hver manneskja skipti máli.
Það er búið að hræða okkur svo mikið að við erum hætt
að trúa eigin skynjun. Leggjumst undir feld með fartölvu
eða bíómynd af ótta við loftstein á sama tíma og við getum
svo sannarlega gert ýmislegt til að stuðla að lífvænlegri og
um leið réttlátari heimi, þó ekki væri nema með daglegum
venjum.
Frjálshyggjuvinur minn
Ég á annan vin. Sá er íhaldssamur frjálshyggjumaður. Hann
sagði mér einu sinni að mannkynið væri þannig gert að það
bjargaði sér alltaf fyrir horn. Það uppgötvaði alltaf réttu
lausnina skömmu fyrir heimsendi, svipað og í Bruce Willis-
spennumynd.
Þá trúði ég honum og hætti að hafa áhyggjur. Rámaði í
mynd þar sem Bruce Willis eyðir einmitt loftsteini á hraðri
leið til jarðar. En núna er ég áhyggjufull sem aldrei fyrr. Ég
held nefnilega að það sé búið að taka trúna frá almenningi
heimsins. Almenningur þarf að öðlast trú til að vera einhvers
megnugur. Trú á morgundaginn. Öðruvísi nennir enginn á
fætur.
Heimsendakynslóðin
Aldrei hefur mannkynið verið í jafn mikilli hættu og nú,
segja sumir. Aðrir huga að nærtækari vandamálum og segja
að Landspítalinn hafi ekki staðið jafn höllum fæti í fjörutíu
ár.
Það er hægt að redda Landspítalanum. Líka heiminum. Ef
við hefjumst handa strax. Ég leyfi mér að trúa því að það sé
hægt að redda svo mörgu.
Þrátt fyrir allt á ég það sameiginlegt með frjálshyggjuvini
mínum að trúa á mannkynið, þó að okkur greini á í helstu
þungavigtarmálum sem og aðferðafræðinni.
Ég öðlaðist þessa trú reyndar hjá ljósmæðrunum á
fæðingardeildinni, og síðar á vökudeild Landspítalans, þegar
sonur minn fæddist. Þá horfði ég á úrvinda starfsfólk gefa
úr sér hjartað í bland við aðdáunarverða fagkunnáttu. Þessi
trú styrktist við að kynnast fólkinu í ungbarnaeftirlitinu á
heilsugæslustöðinni, útkeyrðum læknum á barnaspítalanum
og síðar fóstrunum í leikskólunum hans. Svipaða sögu hef ég
heyrt af mörgum kennaranum á hinum ýmsu skólastigum.
OL°PH°OõQX
Allt þetta fólk fær mig til að hugsa til Kennedy þegar hann
sagði: Spurðu ekki hvað þjóðin getur gert fyrir þig heldur
hvað þú getur gert fyrir þjóðina.
Fólkið sem hlúir að agnarsmáum heimsþegnunum hugsar
margt hvert ekki hvað heimurinn geti gert fyrir það heldur
hvað það geti gert fyrir heiminn. Það trúir á lífið, í allri sinni
mynd.
Þannig þurfum við öll að hugsa, í anda samstöðu,
samfélags sáttar og trúarinnar á framtíð heimsins. Þetta er
sáraeinfalt val: viljum við eyða heiminum eða eyða fátækt?
Svarið veltur á hugarfari og gildismati. Fyrsta skrefið í átt að
nýju, mannvænlegra gildismati fyrir íslensku þjóðina sem
slíka er að fá útgerðarkónga, auðkýfinga og þá hátt settu í
þjóðfélaginu í lið með lífinu og greiða þessum hvunndags-
hetjum mannsæmandi laun – til að stuðla að betri heimi. Því
í dag fæðist barn.
Á slóðum Kennedy
pistill
Auður Jónsdóttir
Deildu með
umheiminum
01/01