Kjarninn - 16.01.2014, Side 73
04/04 vÍsinDi
alla jafna auðveldara að bera kennsl á andlit ef lýst er á það
að ofan (C) frekar en að neðan (D). Í lögreglurannsóknum á
mannshvörfum hafa tölvuforrit verið notuð til þess að búa
til mynd af týndu manneskjunni eins og talið er að hún komi
til með að líta út þegar hún verður eldri (E). Ekki er þar með
sagt að manneskjan muni í raun og veru líta svona út. Slíkt
getur villt um fyrir fólki og jafnvel hamlað
því að það beri kennsl á manneskjuna.
Við gerð myndanna notaði ég forritið
FaceGen.
Hvað á þá að gera?
Þegar lýst er eftir barni ætti að birta
margar myndir, frá mörgum sjónar-
hornum við alls konar mismunandi
aðstæður, mismunandi birtuskilyrði, í
ólíkum bakgrunni og þegar barnið sýnir
mismunandi svipbrigði. Það gæti jafnvel
gagnast enn betur að sýna myndbrot af
viðkomandi manneskju, helst þar sem
ekki aðeins andlitið sést heldur allur
líkaminn; slíkt veitir viðbótarupplýsingar sem sjónkerfið
getur nýtt sér. Það er auðveldara að bera kennsl á andlit
ef maður hefur áður séð það hreyfast á náttúrulegan hátt.
Jafnframt getur maður nýtt sér hreyfimynstur líkamans, til
dæmis hvernig manneskjan gengur, til að þekkja hana aftur.
Á tímum Facebook, Instagram, YouTube og fleiri miðla ætti í
mörgum tilvikum að vera tiltölulega auðvelt að veita lög-
reglunni aðgang að slíkum gögnum. Þetta er einföld lausn en
jafnframt líkleg til árangurs.
„Hver dagur þar sem barn er
týnt einhvers staðar í burtu
frá heimili sínu, oft í heimi
fíkniefna, skiptir máli fyrir
bæði það og fjölskyldu þess.
Það skiptir máli að týndu
börnin finnist fljótt og því
ætti ekki að horfa framhjá
ofangreindum van köntum á
tilkynningum lögreglu. “
Smelltu til að sjá
bóklegar heimildir
umfjöllunarinnar