Kjarninn - 27.03.2014, Blaðsíða 60
03/07 pistill
má að meginþunginn í eftirlitsstörfum ríkissaksóknara með
lögreglu sé við meðferð slíkra kærumála. Í tengslum við með-
ferð þeirra koma gjarnan fram ábendingar eða athugasemdir
við einstaka þætti í verk- eða vinnulagi lögreglu. Þá sinnir
ríkissaksóknari öðru eftirliti með rannsóknum lögreglu sam-
kvæmt sakamálalögum, þar á meðal að lögreglustjórar sinni
skyldum sínum í tengslum við tilkynningar um beitingu
símhlustana o.fl.
Annar stór þáttur í eftirliti ríkissaksóknara með starfsemi
lögreglu er það hlutverk sem ríkissaksóknara er falið í VII.
kafla lögreglulaga, að rannsaka kærur á hendur starfsmanni
lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa
hans. Fjöldi þeirra mála á hverju ári skiptir tugum.
Loks má nefna sem dæmi um eftirlitshluverk ríkis-
saksóknara með starfsemi lögreglu að honum er falið að
hafa eftirlit með framkvæmd aðferða og aðgerða samkvæmt
reglum um sérstakar aðferðir og aðgerðir lögreglu við rann-
sókn sakamála.
aðrir ytri aðilar sem hafa eftirlit með starfsemi
lögreglu
Ýmsir aðrir aðilar sem ekki hafa bein yfirstjórnartengsl við
lögreglu sinna eftirliti með starfsemi hennar. Nefna má í
því sambandi Umboðsmann Alþingis, sem sinnir almennu
eftirliti með stjórnsýslu ríkis- og sveitarfélaga og tryggir rétt
borgaranna gagnvart stjórnvöldum. Umboðsmaður Alþingis
hefur tekið til meðferðar ýmis mál þar sem starfshættir
lögreglu hafa verið skoðaðir, oft vegna kvartana frá einstak-
lingum en einnig eru dæmi um mál sem hann hefur tekið
upp að eigin frumkvæði. Einnig má nefna Persónuvernd, sem
er sjálfstæð stofnun og annast eftirlit með framkvæmd laga
um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Nokkur
mál sem snerta starfsemi lögreglu hafa komið inn á borð
Persónuverndar til úrlausnar. Þá má nefna að allar skrár
sem lögreglan heldur þarf að tilkynna til Persónuverndar
þar sem greina þarf frá eðli og tilgangi skrár, hvaða upp-
lýsingar þar sé að finna, hverjir hafi aðgang að henni eða