Kjarninn - 27.03.2014, Page 66

Kjarninn - 27.03.2014, Page 66
02/04 lífsstíll notuð gegn súrefnisskorti, t.d. til að komast hjá háfjallaveiki. Burnirót þykir góð fyrir eftirfarandi kvilla: Q kvíði, þunglyndi og streitu Q vefjagigt, orkuleysi og síþreytu Q ADHD, einbeitingarskort, eirðarleysi Q líkamlegt álag Q svefnleysi Q getuleysi Q bólgur og niðurgang rannsóknir á burnirót Í rannsóknum á burnirót er mjög mismunandi hvort hún er rannsökuð í formi hefðbundinnar tinktúru, seyðis eða staðlaðs þykknis en oft snýst rannsóknin um virka efnið salídrósíð eitt og sér. Burnirót hefur tölvert verið rannsökuð á mönnum með tilliti til líkamlegs úthalds og þols. Flestar benda rannsóknirnar til að hún geti aukið súrefnisflæði, líkamleg afköst og þol ásamt því að minnka þreytu eftir áreynslu. Burnirót hefur líka verið rannsökuð á sjúklingum undir ýmiss konar andlegu álagi, svo sem vegna kvíða röskunar eða þunglyndis, og hefur hún þótt lofa góðu. Eins hafa verið gerðar klínískar rannsóknir á áhrifum burnirótar á þreytu, örmögnun, ein- beitingarskort, verkfælni og skammtímaminni, og hafa þau þótt jákvæð auk þess sem hún hefur þótt sýna jákvæð áhrif á getuleysi og svefn. Í öllum þessum rannsóknum voru auka- verkanir af burnirót taldar hverfandi litlar. Rann- sóknir á burnirót hafa einnig leitt í ljós að hún kunni að koma að gagni við fíkn ýmiss konar og því álagi sem fylgir því að hætta t.d. reykingum og eiturlyfjaneyslu. Eins hefur hún þótt gefa góða raun í meðferð átröskunar, bæði lystarstols og saga burnirótar Jurt búin verndarmætti Áður fyrr var talið að burnirót byggi yfir verndarmætti og þótti gott að bera hana næst sér eða láta liggja á rúmstokk um nætur til að bægja burt öllu illu. Eins var talið gott ef konu gekk illa að fæða að leggja burnirót í rúmið hjá henni svo hún snerti hana bera. Burnirót var talin góð gegn hárlosi, en meðal annarra nafna hennar voru greiðurót og höfuðrót. Önnur gömul heiti voru svæfla, sem gæti merkt að hún hafi þótt góð við svefnleysi, og svo munnsviðarót, en margar lækningajurtir sem hafa svipaða barkandi eiginleika hafa verið nýttar við munnsviða og munnangri.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.