Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Side 5
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
55
að hressandi andblær erlendrar æsku ber-
ist hingað og blési auknu lífi í gáfaðan,
íslenzkan æskulýð.
IIV.
ÖNNUR RIT.
1. Gráskinna.
Þó að áður hafi verið minst á »Grá-
skinnu« í »Nýjum Kvöldvökum«, get eg
ekki látið hjá líða að minnast á hana. í
henni eru nokkrar ágætar sögur, sér-
kennilegar og skemtilegar, en af þeim öll-
um ber sagan af hrakningum Snæbjarnar
í Hergilsey og undrum þeim, sem gerðust
í sambandi við þá. Veit eg, að Snæbjörn
hefir verið að rita æfisögu sína, og nú hef
eS' heyrt, að hún muni bráðlega verða
prentuð. Er Snæbjörn einn hinn allra
merkasti og bezti núlifandi fulltrúi okkar
gömlu alþýðumenningar, sérkennilegur,
kjarnyrtur, kvæðamaður og sagna, and-
legt og líkamlegt karlmenni og drengur
hinn bezti. Hef eg vart hitt mann, er mér
þykir meira til koma. Mun verða hinn
mesti fengur að æfisögu hans, og ætti
enginn að neita sér um þá skemtun og
hressingu að lesa hana. Hún mun verða
■vel og séi-kennilega stíluð og efnið við-
burðaríkt og að mörgu sérstætt. Má t. d.
benda á, að lífið í Breiðafjarðareyjum er
fyrir flestum landsmönnum eins og furðu-
legt æfintýr. Fjölbreytnin er mikil og
margt, sem mætir, er hvorttveggja í senn
erfitt og laðandi.... En hvað sem líður
æfisögu Snæbjarnar, væri æskilegt að
þeim Þórbergi og Nordal tækist að afla
jafn veigamikils efnis í hvert hefti »Grá-
skinnu« og er í þessu fyrsta.
2. Endurminningar síra Friðriks Frið-
rikssonar.
Þó að séra Friðrik segi aðeins frá því
í þessari bók, er dreif á daga hans á fyrri
hluta æfinnar, þá er bókin æði stór. Og
hún er ekki síður skemtileg en skemtileg-
ustu skáldsögur. Frásögnin er lipur og
látlaus — en nærri því barnaleg sum-
staðar — ekki sérstaklega fágaður stíll-
inn, en víðast frábærlega lifandi. Kemst
lesandinn að þeirri niðurstöðu, að síra
Friðrik hafi alt af verið og muni að lík-
indum alt af verða barn, sem starir á glit
og græna skóga þessa heims og annars,
cn er ósnortið af flestu því, sem er hugs-
að, rætt og ritað og barist mest um í ver-
öldinni á sviði stjórnmála, trwmála, vís-
inda og s. frv.
3. J. Auker-Larsen: Fyrir opnum dyr-
um.
Dr. Guðmundur Finnbogason hefir
þýtt bók þessa. Er hún vel skrifuð og all-
eftirtektarverð. í henni skýrir höfundur
frá ýmsu svipuðu og kemur fram í bók
hans »Vizkusteinninn«, er hlaut 50 þús.
króna verðlaun Gyldendals. Munu allir,
sem hafa áhuga fyrir sálfræðilegum efn-
um, hafa gaman af að lesa »Fyrir opnum
dyrum«, en hvort menn hafi gagn af því,
skal eg ekkert um segja. Enginn þarf að
fælast bókina sakir framsetningarinnar.
Hún er mjög skilmerkileg og alþýðleg.
4. Síra Friðri Rafnar hefir skrifað
bók um Gandhi, mikilmennið indverska.
Er saga Gandhis hin merkilegasta og
þakkarvert, að íslenzkum almenningi
skuli gefinn kostur á að kynnast henni.
Bókin er ein í flokki þeirra alþýðlegu
fræðibóka, er Þorsteinn M. Jónsson gef-
ur út, og vil eg nota tækifærið og minna
fólk á að stuðla að því, að Þorsteinn geti
haldið áfram útgáfu fræðibóka alþýðlega
skrifaðra. Menningin er orðin svo marg-
þætt og líf vort alt stendur í svo órjúfan-
legu sambandi við hana, að ef vér látum
oss nægja með þá fróðleiksmola, er vér
fáum í barnaskólunum, þá förum vér á
mis við mikla og margvíslega lífsnautn.
En á íslenzku er fátt fræðibóka, og að-
staða almennings til fræðslu og mentun-
ar því afar erfið.