Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Blaðsíða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Blaðsíða 45
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 95 gamla, þá hefði það gert minna til — hún þekti sem sé leyndarmálið! Nú var hjartað í honum frænda talsvert harðnað af ýmsu misjöfnu, en samt sem áður var ekki frítt við að svolítill broddur sæti kyr í því eftir þetta borðhald. Litlu síðar kemur frænka blaðskellandi inn í skrifstofu frænda, aðeins í millipilsi og nátttreyju, vopnuð með tröppustiga og tusku, sem hún þurkaði ryk af með. Hún skipaði frænda að halda stiganum föstum, á meðan hún klifraði upp og þurkaði Tegnérshöfuð úr gipsi, sem stóð hæst uppi á stóra bókaskápnum. Já, frændi hélt stiganum, eins og honum var sagt, og frænka klifraði upp. En hún komst ekki almennilega að, svo hún tók það ráð að fara af stiganum og setjast upp á skáp- * inn við hliðina á myndinni, svo tók hún Tegnér í sína sterku arma, skirpti í tusk- una og nuddaði og nuddaði. Frændi stóð enn og hélt í stigann. »Heyrðu Charlotta mín«, sagði hann ^neð hægð, næstum því hátíðlega, »finst þér ennþá , að eg sé gamalt naut?« »Já, víst ertu það, Jóhannes!« svaraði frænka með sannfæringu og hélt áfram að nudda af öllum kröftum. Þá tók frændi tröppustigann, lagði hann saman og reisti hann upp við þilið beint á nióti, svo settist hann niður á legubekk- inn og horfði á frænku með sigurglampa í augunum. Já, þarna varð nú frænka að sitja. »Jóhannes!« hvæsti hún. Hvaða uppá- tæki er þetta? Komdu undir eins með stigann... strax!« »Er eg ennþá naut — hvað?« »Þrælmenni!« hvæsti frænka um leið og hún skoðaði niður í djúpið undir sér, en hana sundlaði og hún varð að láta aftur augun. »Elsku-hjartans-ástkæri-góði-bezti mað- Ur*nn minn, komdu með stigann! áttu að segja!« Eitt augnablik leit helzt út fyrir að frænka ætlaði að bjóða hættunni byrginn, snúa sér við og renna sér niður á magan- um — eins langt og hún næði; en það brakaði voðalega í bókaskápnum, sem var nokkuð forn; — hún þorði ekki. — Það var örlagaþrungin þögn í nokkrar mínút- ur, svo byrjaði frænka að stama öldungis hljómlaust: »Elsku... hjartans. . ást-kæri... góði... bezti...« í sama bili var ganghurðin rifin upp og vinnukonan tilkynti með hárri rödd: »Hirðpresturinn, síra Söderbom, er kom- inn!« Síra Söderbom, hirðprestur, var alveg nýlega orðinn þingmaður. Hann var skólabróðir frænda. Frændi gekk til dyra og tók vel á móti hirðprestinum, og langa stund sátu þeir og ræddu saman um gaml- ar endurminningar. En satt að segja átti frændi dálítið erfitt með að halda þræðin- um í samræðunni. Hugsanir hans voru á ringulreið. Æ-já! Lífið er merkilegt!« andvarpaði síra Söderbom og hóf augu sín til himins af gömlum og góðum vana. En í þetta sinn komust þau nú ekki svo langt; þau staðnæmdust við mjóaleggi, sem reyndar voru alt annað en mjóir, og í Ijósgráum ullarsokkum. Og nú sá hann frænku í heilu líki, þar sem hún sat eins og stein- gervingur uppi á bókaskápnum, stöðugt með vinstri handlegginn utan um hálsinn á Tegnér«. »En.... Hvað — hvað, hvað í ósköpun- um er þetta?« hrópaði hirðpresturinn. »0, afsakaðu, bróðir...«, stamaði frændi — »eg gleymdi.. gleymdi... alveg hreint að — já... að kynna þig fyrir konunni minni.... Þetta er konan mín elskuleg..... og, elskan mín, hirðpresturinn, síra Sö- derbom...« Síi’a Söderbom starði um stund alveg hissa á frænku, sem reyndar tók sig

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.