Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Blaðsíða 25

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Blaðsíða 25
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 75 »En mjer finst það samt sem áður hræðilegt«. »Það gerir ekkert, hvað þau halda um mig. En jeg er hrædd um að þjer — að þjer hafið gert Myra Nell slæman grikk«. »Það virðist svo. Mjer datt hún ekki í hug, þegar jeg gekk inn í þetta fangelsk. »Þjer áttuð einskis úrkosta«. »Það var ekki það eitt. Jeg vildi gjarn- an vera í návist yðar, Vittoria«. Hún hoi'fði rólega og kalt á hann og mælti föstum romi: »Það var riddaralega gert, að reyna að spara mjer nauðsynina á að gefa skýringu. Þetta var óþægileg aðstaða, en við vorum bæði í sömu klíp- unni og við verðum nú að reyna að kom- ast út úr henni eins og við best getum. Myra Nell fer algerlega vilt vegar, en hún verður mjög ógæfusöm, ef þjer eigi sinn- ið henni neitt«. »Jeg get það ekki. Jeg held, að jeg reyni að einangra mig eins og jeg frekast get«. »Þjer þekkið ekki Myra Nell«, mælti Vittoria. »Þjer haldið, að hún sje kvikul og staðfestulaus, en yður skjátlast. Hún er góð og sönn og hún er gædd djúpum tilfinningum«. Blake komst fljótlega að því að það var ómögulegt fyrir hann að einangra sig. Hr. La Branche hjekk í honum eins og druknandi maður í hálmstrái og síminn hringdi í sífellu. Myra Nell tók tíma hans eins og hún ætti hann og frú La Branche vildi sjálf sjá um að hann fengi alt sem hann óskaði. Sá eini, sem hann varla sá, var Vittoria Fabrizi. Hvarf hans krafðist vitanlega langra skýringa og margra símsamtala við skrif- stofu hans og við lögregluna, sem leit á óhepni hans eins og mjög vel til fundið spaug. Þetta var alt gott og blessað, en það voru aðrar ófyrirsjáanlegar afleið- ingar. Bernie Dreux varð örmagna af skelf- ingu og svo öskuvondur. Hann sá þegar hver skylda sín var. Hann tróð niður í handtösku sína ýmsu dóti og fór svo til hins sýkta húss, í huga eins og maður sem gengur á höggstokkinn, því hann var log- andi hræddur við sjúkdóma og bólan var í augum hans eitt hið hræðilegasta sem til var. En heilbrigðismálastjórinn hafði gefið strangar fyrirskipanir svo hann var rek- inn öfugur heim aftur. Auðmýktur og lamaður hjelt hann í klúbb sinn og þar fann Rillean hann sokkinn niður í dýpsta þunglyndi. Þegar Lecompte sakaði Blake um að hafa brotið reglur fjelagsins, tók litli pappírssveinninn þegar að verja hann. »Norvin hefir alveg á rjettu að standa«, laug hann, »og jeg heiðra og virði hann fyrir það.« »Áttu við, að þau sjeu trúlofuð?« spurði Rillean örvilnaður. Bernie kinkaði kolli. »Já en það er jeg líka og Delevan og Marsgung og allir hinir.« »Ekki eins og Blake.« Roði sá er á- fengið hafði rekið fram í kinnar Dreux varð enn dekkri. »Hann hjelt, að hún væri í hættu og flýtti sjer þegar til henn- ar. Það var mjög óeigingjarnt af honum að trassa viðskifti sín og bjóða sjúkdómn- um byrginn. Hann gerði það með mínu leyfi — skilur þú það. Hann er heiðurs- maður — hetja.« Þunglyndi hr. Rilleans óx. Hann and- varpaði: ».Jeg mundi hafa gert hið sama; jeg bauðst til að gera það og er jeg engin hetja. Við hinir erum allir komnir yfir fertugt held jeg. Samt erum við allir mjög vonsviknir. Jeg vonaði — að á grímuballinu... að hún.... Nú, mig lang- aði til að hafa hana fyrir drotningu mína alt lífið«. Bemie klappaði á öxlina á honum; en 10*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.