Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Page 12
62
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
einnig í því, sem menn nefna galdur. Var
hin óslöggvandi þrá mín eftir að kynnast
hinum huldu öflum aðeins leit að þér, til
þess að þekkja þig betur í mætti þínum
og veldi? Er því eins varið með oss dauð-
lega menn og með spíruna í hinni myrku
mold, sem óafvitandi leitar ljóssins? —
Fyrir hana er einnig þessi leynda þrá og
leit eins og eilífur galdur....«
Sálmarnir hljóma í kirkjunni — í löng-
um, mjúkum tónum óma þeir yfir höfði
Knúts, sem liggur á knébeð og beygir höf-
uðið. — En himininn skín inn gegnum
gluggann eins og blátt, vingjarnlegt auga
og lýsir friði yfir fjölkyngismanninn.
(Saga þessi er bygð á sönnum viðburð-
um og sögð eftir fornum, finskum rím-
annálum, er skýra frá herhlaupi Rússa og
umsátinni um Wiborg-kastala árið 1495.
Höfuðsmaðurinn, Knútur Possi, var tal-
inn fjölkunnugur. Eins og sagan bendir
á, hefir hann fengist við efnafræðis-rann-
sóknir sinna tíma, var það nefnt »Alky-
mi« og talið hin mesta kyngi. Hann hefir
fundið upp eitthvert sprengiefni, sem
hann notaði til að sprengja virkisvegginrt
og óvinina í loft upp).
L a M a f i a.
Tilgangur þess á að vera að gera ógæfu
hennar ljettbærari og meðlimir þess
mega engir aðrir vera en hryggbrotnir
biðlar«, mælti hann. »Við skulum skiftast
á um að skemta henni og jeg útnefni
sjálfan mig sem formann skemtinefndar-
innar; einn okkar verður ætíð að halda
vörð. Við syngjum, dönsum og reynum
með öllum ráðum að stytta henni stundir«.
Tillaga hans var samþykt með mestu
háreysti, en eftir stuttar umræður um
málið lýsti Murry Logan því yfir, að hann
hefði vanrækt að mæta á stjórnarfundi,
og að fjárþröng og gjaldþrot vofði yfir
höfði honum, ef hann færi eigi undireins.
Mariguy hafði formálalaust farið úr á-
ríðandi rjettarhaldi og Cline þurfti í
bankann. Jaste, Delevan og hinir lýstu
jafnframt yfir því, að þeir yrðu að láta
ungfrú Warren spila á eigin spýtur þar
til kauphöllinni yrði lokað. Og þegar þeiir
höfðu sungið ýms lög og lofað súkkulaði,
bókum og blómum, löbbuðu þeir af stað
og urðu þeir að hálf-bera kúluvambann
Kulu, sem orðinn var úttaugaður af
þreytu eftir áreynsluna.
Rillean einn lýsti því yfir, að hann
væri reiðubúinn að þola sjúkdóm og
dauða fyrir ungfrú Warren; hjelt hann
þessum fullyrðingum áfram þar til Ber-
nie sagði honum, að hugmyndin væri fjar-
stæða; dragnaðist hann þá burtu.
»Þú spillir öllu!« mælti Myra Nell við
bróður sinn og var hin reiðasta. »Þú
hefðir að minsta kosti getað leyft honum
að koma inn. Althea frænka er víst nægi-
legur velsæmisvörður«.
»En sú heimska! Hvernig gat þjer hug-
kvæmst jafn-ótilhlýðilegt sem þetta?«