Nýjar kvöldvökur - 01.06.1929, Blaðsíða 38
88
NÝJAR KVÖLDVÖKUR
hluti borgarinnar er bjartari, betur bygður með
fallegum hvítum húsum með lituðum steinþökum.
Höfnin er einhver hin besta í Evrópu og mikil
viðskifti við Vestur-Indíur, Suður-Ameríku og
Afríku. Ekki er mikið um iðnað og mestöll versl-
unin er á enskum höndum. Á 15. og 16. öld, þeg-
ar landafundimir voru sem mestir, var Lissabon
einhver mesta verslunarborg í Evrópu, og með-
an Portúgal átti hinar stóru nýlendur sínar í
Suður-Ameríku, Afríku og Jndíum, var Lissabon
einnig mikilsráðandi borg.
26. Stokkhólmur.
Þar sem Málaren fellur í tveim kvíslum út í
Eystrasalt, stendur höfuðborg og stærsta borg
Svíþjóðar, Stokkhólmur. Stundum er hún nefnd
hinu skáldlega nafni, »Málarens drottning«, og
fáar borgir eiga frekar skilið drotningarnafnið
en hún. Þegar nefndar eru fegurstu borgir
heimsins, er Stokkhólmur ávalt í fremstu röð,
og eins og Svíþjóð er eitt af þeim löndum, sem
í mjög ríkum mæli hafa verndað hina gömlu og
fögru þjóðbúninga sína, þannig hefir Stokk-
hólmur langt fram yfir aðrar borgir viðhaldið
þjóðlegum blæ í byggingarstíl sínum. Þetta á
sér einnig stað með hinar nýrri byggingar í
borginni. Borginni er skift í fleiri hluta: Norð-
urmálm (Norrmalm) og Austurmálm (Öster-
malm), Kóngshólma (Kungsholm), Staðinn
(»Staden«) með Riddara- og Heilagsandahólm-
unum, Suðurmálm (Södermalm) og loks Saltsjó-
eyjamar, sem saman standa af Skipshólmanum
(Skeppsholmen), Kastalahólmanum, Beckhólman-
um og Djurgárdsstaðnum. Þessir bæjarhlutar
eru tengdir saman með brúm. Sjerstaklega eru
það hinar mörgu kvíslir og straumar milli hólm-
anna, sem veita borginni hið fallega og' ein-
kennilega útlit. Margar afburða byggingar eru
í hinum sænska höfuðstað: Konungshöllin, Ridd-
arahúsið, ráðhúsið nýja, ríkisdagsbyggingin
(þinghúsið) og Riddarahólmskirkjan, þar sem
margir konungar og drotningar Svía eru jarð-
aðir, þar á meðal Karl 12. Á Heilagsandahólm-
inum er hinn yndislegi garður »Strömparterren«.
1 Djurgárdsstaðnum er »Nordiska Museetc
(lista- og þjóðminjasafn) og rjett þar hjá er
»Skansen«. 1 safni þessu eru ýmiskonar vopn og
aðrir hlutir, sem gefa góða hugmynd um nor-
ræna menningu, og gersamlega einstæðúr í heim-
inum er »Skansen« með framsetningu sinni á
byggingarstíl og lifnaðarháttum hinnar sænsku
þjóðar um þúsundir ára. í sambandi við þetta
er og' dýragarður. í Djurgárdsstaðnum er hinn
frægi skemtistaður Hasselbacken. Umhverfi
Stokkhólms er eitthvert hið fegursta í Evrópu,.
ekki aðeins sjávarmegin, heldur einnig upp til
landsins. í námunda eru hallirnar Haga og
Drotningarhólmur. Málefnum borgarinnar
stjórna einn yfirlandstjóri, borgar-stjómarráð
og 100 borgarfulltrúar, sem borgararnir kjósa.
Borgar-stjórnarráðið saman stendur af fram-
sögumanni borgarfulltrúanna og tveim auka-
framsögumönnum, þremur, mest sex ráðmönn-
um, sem kosnir eru af borgarfulltrúunum, og níu
mönnum að auk, sem einnig eru kosnir af borg-
arfulltrúunum og úr þeirra stjett. Ibúatala
Stokkhólms var 1. janúar 1925 438.896. Er borg-
in því næst stærsta borg á Norðurlöndum. Kon-
ungurinn, stjórnin og ríkisdagurinn (þingið)
sitja í Stokkhólmi og þar er einnig hæstirjettur-
og miðstjórnin, einn háskóli og aðrar æðri
mentastofnanir. Hinn mikli iðnaður og fjöruga
verslun hefir gert Stokkhólm að velmegandi
borg. Þar sem Stokkhólmur stendur nú, var fyr-
ir löngu síðan fiskiver. Þegar Eistlendingar
herjuðu á landið, bygði Knútur konungur Eriks-
son borg til vamar og' í kring um hana myndað-
ist svo bær, sem Birgir jarl gaf ýms sjerrjettindi
1255. 1389 lagði Margrjet drotning borgina und-
ir sig. 1520 gaf borgin sig' á vald Kristjáns 2.,
sem stofnaði til hins sorglega blóðbaðs í Stokk-
hólmi, og eftir að hann var rekinn frá völdum,
hefir Stokkhólmur verið höfuðborg í hinu sjálf-
stæða Svíaríki.
27. Montevideo.
Hún er höfuðborg í ríkinu Uruguay í Suður-
Ameríku. Er það auðug verslunarborg og hefir-
380.000 íbúa.