Nýtt S.O.S. - 01.10.1959, Blaðsíða 5

Nýtt S.O.S. - 01.10.1959, Blaðsíða 5
Nýtt S O S 5 hann sá rauðu röndina á ermi froskmanns- ins. „Thornas Allan froskmaður; einkaskip- un,“ mælti Tosty, er hann kynnti sig. „Skipað hér til starfa á 50. Bezt að þú til- kynnir skipstjóranum það.“ „Það er þegar óþarft,“ svaraði maðurinn og glotti. „Þér hafið þegar kynnt yður fyr- ir honum." „Hver?“ spurði Tosty steinhissa. „Eg? Hvenær þá?“ „Rétt áðan.“ Tosty lét sjópokann lalla á þilfarið og starði á manninn. ,,Hver? Maðurinn í leðurjakkanum?” Varðmaðurinn kinkaði kolli og hló. „Já. Það var Pullen skipstjóri, skip- herra á Labrador.“ „Drottinn minn dýri!“ sagði Tosty og klóraði sér bak við hægra eyrað. „Og ég spurði hann, lwernig skipherrann á þess- um kopp væri í umgengni!“ „Og hverju svaraði hann? spurði varð- maðurinn forvitinn. „Jú, það er nú það,“ svaraði Tosty og svelgdist á. ,,Hann sagði, að hann gæti verið verri. Fjandann sjálfan er ég að trana mér fram. Hef móðgað þann gamla á fyrsta degi. — Hvert er ferðinni annars heitið?“ „Veit enginn, herra froskmaður," svar- aði varðmaðurinn. Sennilega til miðbaugs- ins. Er það ekki þessi venjulega leið ís- brjótanna? Þar eru þeir notaðir, er ekki svo?“ „Hvað segirðu maður,“ hváði Tosty og leit á varðmanninn, sem virtist skemmta sér vel. „Það er furðulegt, að senda mig á þennan dall.“ Hann tók upp pokann sinn og hélt á- fram. Hann gekk fyrir taktliafandi yfir- mann og kynnti sig. Yfirmaður þessi var Neil Morten, lautinant. „Allan bátsmaður?“ hváði hann, er Torsty Allan hafði kynnt sig. „Þá eruð þér yfirmaður froskmannanna okkar, báts- maður?“ „Afsakið þér, herra minn, eru fleiri froskmenn hér um borð?“ spurði Thomas Allan. „Fjórir auk yðar, bátsmaður. Við eigum áreiðanlega eftir að vinna mikið sarnan. Eg stjórna mælingabátnum, og þér kafið sennilega frá honum.“ „Já, Sir,“ svaraði Tostv, bar höndina upp að húfuderinu og kinkaði kolli. Allan var nú vísað til káetu, er var á afturþiljum skipsins. Skyldi hann búa þar ásamt tveimur undirliðsforingjum. Þá upp- götvaði hann, að þar var fyrir gamall fé- lagi, Oliver undirliðsforingi. „Halló!“ ávarpaði Tosty þennan ganrla vin. „Hafa þeir nú líka tekið þig á leigu á þennan fljótandi ísskáp?“ Hann ætlaði að heilsa með handar- bandi, en maðurinn hristi höfuðið: „Taktu bara í hendina á sjálfum þér, fóstri. Eg þarf að hafa fingur mína heila! Annars lröfum við ætlað þér eina kojuna hérna, þegai' við fréttum, að þín væri von. Það er betra fyrir þig að lúra í neðri koju, þá hanga fæturnir ekki svo langt nið- ur.“ „Hver er svo þriðji káetufélaginn okk- ar?“ spurði bátsmaðurinn. „Gent Fuhner; þú þekkir hann ekki. Hann er einn af yngri kynslóðinni. F.n er annars ágætur piltur.“ „Og hvað með köfunina?" „Hef ekki hugmynd um það. F.g hef enn ekki unnið með honum niðri. F.n líklega er hann slarkfær, fyrst þeir eru með hann hér um borð. Þeir hafa skrapað

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.