Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Page 26

Sagnir - 01.04.1986, Page 26
✓ A ið 930 er talið að íslendingar hafi stofnað allsherjarríki og hafið þinghald á Þingvöllum. Á Alþingi sagði lögsögumaður uþþ lög landsmanna í heyranda hljóði hvert sumar. Lög þjóðveldisins voru þannig varðveitt í munnlegri geymd fram á fyrri hluta 12. aldar, þá fyrst voru þau færð í letur. Elsta handrit þeirra nefn- ist Hafliöaskrá, eftir einum skrásetjar- anum, en hún er nú ekki lengur varð- veitt. Um 1130 voru til í landinu þrjú rit lagalegs eðlis: Tíundarlögin, Haf- liðaskrá og Kristniréttur. Af lögum þessum tóku menn afrit, og er tímar liðu þættu þeir við nýjum og slepptu þá oft úr fornum lagaákvæðum. Mörg handrit urðu því til af lögunum og bar þeim ekki alltaf saman. Tvö aðal- handrit eru nú varðveitt af uppskrift- um þessum, Konungsbók og Staðar- hólsbók, bæði talin rituð á síðari hluta 13. aldar. Samkvæmt heimildum er það fyrst á 16. öld sem lögin frá þjóð- veldistímanum fá nafnið Grágás.2 Á þeim tíma sem lögin í Grágás urðu til stundaði fólk hér landbúnað og veiðar, klæddi sig, fæddi og hýsti að mestu án útlendra aðfanga. Mun- aðarvarningur ýmiss konar var þó í umferð hjá höfðingjastétt landsins. Ekki sátu því allir við sama borð. Fólkið skiptist í stéttir eftir efnahag og áliti.3 Það tilheyrði þó ekki bara stétt- um heldur einnig ættum. Á þjóðveldistímanum voru ættar- böndin sterk. Ættirnar stóðu saman að veigamiklum málum, ekki síst á Alþingi. Þar voru goðarnir valdamest- ir. Þeir skipuðu dómendur í dómstóla, sátu í Lögréttu og áttu þar atkvæðis- rétt, og útnefndu aðra menn er þar sátu. Ekkert allsherjarframkvæmdar- vald, sem náði til alls landsins, var til á þessum tíma. Yfirleitt varð hver ein- staklingur að gæta sjálfur réttar síns með aðstoð ættingja, höfða mál ef hann var beittur ólögum, og sjá um að dómi yrði fullnægt. í dómsmálum var kviðurinn það sönnunargagn er mest var notað. Það var almenn þegn- skylda að sitja í kviði en hann dæmdi ekki í málum, heldur áttu meðlimir hans, oft nefndir búar, eingöngu að bera vitni.4 Grágás er ekki löggilt lögbók en gera má ráð fyrir að í henni sé að finna mörg lög er voru í heiðri höfð á þjóðveldistímanum. Hún er því í mörgu góð heimild um sína samtíð. íslandssagan verður þó aldrei sögð út frá lagaákvæðum einum saman. Gildandi lög eru ekki alltaf í samræmi við raunveruleikann. í eðli sínu eru lög fyrst og fremst vitnisburður um vilja og viðhorf þeirra sem mótuðu þau. í Grágás er því að finna upplýs- ingar um gildismat og hugmynda- heim íslendinga til forna. Þar er víða að finna lagaákvæði er varða konur sérstaklega. Sú mynd sem Grágás birtir af konum endurspeglar viðhorf ríkjandi valdahópa samfélagsins, en stjórnsýsla og opinber völd á þessum tíma voru í höndum karlmanna. Svo Maður að lemja Konu sína. Samkuœmt Grágás mátti ekki berja ófríska konu, suo aö á henni sœist. 24 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.