Sagnir - 01.06.1992, Page 10
einnig í skýrslum mannfræðinga sem
rannsakað hafa blóðhefndarsamfélög
erlendis. 10
Sýning Guðrúnar í laukagarðinum
er hennar leið til að segja að stund
hefndarinnar sé runnin upp. Bræð-
urnir meðtaka skilaboðin. Eftir and-
vökunótt segjast þeir:
mega eigi bera lengur harm sinn
og frýju móður sinnar. „Viljum
vér til hefnda leita, ... og höfum
við bræður nú þann þroska að
menn munu mjög á leita við okkur
ef við heijum eigi handa.“n
Bollasynir fara síðan af stað með lið
manna og tólf ára gamall vegur Bolli
Bollason föðurbana sinn.
Eftir Laxdæluferðina hefur tilgáta
okkar um hefndaruppeldi fengið byr
undir báða vængi og er nú á góðri leið
með að verða að kenningu. I tvígang
fylgdumst við með reiðunr mæðrum
krcfja syni sína um að blóði yrði úthelt
fyrir blóð og í báðum tilfellum fengu
þær vilja sínum framgengt.
En flýtum okkur hægt. Eins og al-
þjóð veit þykir ekki merkileg fræði-
mennska að alhæfa út frá einni heim-
ild og því eigum við ekki annars úr-
kostar en halda leitinni áfram og
freista þess að finna hliðstæð dæmi í
öðrum sögum. Annars gæti hefndar-
uppeldi hafi orðið til í kolli „konurin-
ar sem skrifaði Laxdælu".
Við höldum því ótrauð áfram ferð-
inni og brátt verða á vegi okkar tvær
sköruglegar ekkjur. Pað eru þær
Ástríður frá Borgarhóli og Porgerður
Oddleifsdóttir frá Kvennabrekku í
Dölum. Báðar standa þær fyrir búi
og eiga í illdeilum við nágranna um
yfirráð lands. Rjúfum nú friðhelgi
einkalífsins andartak og skoðum
heimilislífið hjá þessum sómakonum.
Synir þeirra Glúmur og Refur veittu
litla stoð við búreksturinn. Glúmur
„svaf ... til dagmála og annaðist ekki
um bú."1" en Refur hafði „öngva ...
aðra iðn fyrir starfi en að veltast fyrir
fótum mönnum er þar gengu ...
Hann var af flestum mönnum fífl
kallaður."13 Hvorugur þeirra þolir þó
að sitja aðgerðalaus undir storkun
móður sinnar.
Ástríður hvetur son sinn í tvígang
en hún er þó ekki beinlínis að biðja
unr blóðsúthellingar. Þegar Glúmur
hunskast á fætur og tekur „feldinn
blá og spjótið gullrekna í hönd sér“
áttar hún sig mæta vel á fyrirætlan
hans en lætur sér eigi að síður vel líka
og hann drepur nágrannann. 14
Samskipti Refs og Þorgerðar eru
öll mun heiftugri. Hún lætur þó ekki
til skarar skríða fyrr en eftir að hús-
karl hefur verið veginn. Þá gengur
hún að fleti Refs og þrumar yfir hon-
um:
„Ávallt hrýs mér hugur við er eg
sé þig, frændaskömm þína, fyrir
mínum augum og hve mikill
ógæfumaður eg var þá er eg ól
þinn óvita. Væri þar betri dóttir.
Mætti eg þá gefa hana þeim manni
er oss væri nokkuð traust að. En
þótt landeign vor sé beitt upp eða
taða niður brotin eða menn drepnir
þá liggur lydda þín og lætur sem
vér eigum ekki að annast.“15
Ádrepan verður til þess að Refur
skakklappast fram úr bælinu og „tek-
ur ofan höggspjót rnikið." Hann
snarast að bæ óvinarins, á við hann
stutt orðaskipti en rekur hann síðan í
gegn. Er móðir hans heyrir tíðindin
fagnar hún og segir „Seg þú manna
heilastur".16
Báðir verða þeir Refur og Glúmur
síðan virtir menn eftir að mæðrunum
tókst að vekja þá til meðvitundar um
stöðu sína og skyldu. Athygli vekur
að Þorgerður notar sömu hárbeittu
vopnin og nafna hennar Egilsdóttir,
sem getið var að framan, er hún hæð-
ist að karlmennsku Refs með því að
óska sér dóttur í hans stað.
Þriðja tilbrigðið við sama stef er
hvöt Geirríðar í Eyrbyggju. Sonur
hennar, Þórarinn, er kvæntur maður
sem stendur fyrir eigin búi en kerling
móðir harís er þar í heimili og virðist
hafa bæði töglin og hagldirnar. Enn-
þá eru nágrannaerjur á ferðinni og í
þetta skipi er deilt um hross. Dag
einn ryðst nágranninn inn á heimilið
með miklu offorsi og sakar Þórarinn
að ósekju um hrossastuld. Geirríði
gömlu ofbýður ósvífni gestanna en
einnig langlundargeð Þórarins og
hreytir í hann: „Of satt er það er
mælt er að meir hefir þú ... kvenna
skap en karla er þú skalt þola ...
hverja skömm og eigi veit eg hví eg á
slíkan son.“17
Þórarinn fyrtist við orð kerlingar
og rauk út. Bardagar upphófust þeg-
ar í stað og þeim lauk með því að
óvinirnir féllu í valinn. Er sigurveg-
arinn kom heim beið kerling í dyrun-
um iðandi af forvitni og spurði frétta,
en Þórarinn svaraði henni með vísu:
Varði eg mig þar er myrðir
morðfárs vega þorði,
hlaut örn af ná neyta
nýjum, kvenna frýju.18
Við þetta hlakkar í kerlu enda hafði
hún fengið Þórarinn til að dansa eftir
sínu höfði og það varla í fyrsta skipti.
Hér skulum við fara í stutta reisu
til útlanda, alla leið yfir hafið til Nor-
egs. Þar verður á vegi okkar hálf-
gerður huldumaður, Gísl Illugason.
Við þekkjum ekki sögu hans eða
bakgrunn en sautján ára gamall
stekkur hann fullmótaður fram á
sjónarsviðið. Þá er hann kominn til
Noregs þar sem hann leitar uppi
vígamann pabba síns. Eins og hetju
sæmir tekst Gísl að finna föðurban-
ann og drepa en sá er hængur á að
þrjóturinn var einn af hirðmönnum
konungs. Gísl lendir því í allskyns
hremmingum og ævintýrum en í
sögulok fær hann tækifæri til að hitta
kónginn sjálfan augliti til auglits og
skýra mál sitt. Hann segir: „faðir
minn var veginn ... Þá var eg sex
vetra gamall en ... bróðir minn níu.
Vorum við þar við staddir er faðir
minn var drepinn."19 Kóngsi fær þeg-
ar í stað djúpa samúð með Gísl, gefur
honum upp allar sakir og gerir hann
að hirðmanni sínum og þar með lýk-
ur Gísl þætti Illugasonar. Glöggir les-
endur veita því vafalaust athygli að í
frásögninni er móður hvergi getið,
þó að sagan beri að öðru leyti sterkan
svip af hefndaruppeldi. Það er freist-
andi að kenna þennan móðurskort
við knappan stíl sögumanns. Hann er
ekki að fjalla um ungdóm og uppeldi
á þjóðveldisöld heldur hreystiverk
Gísls í Noregi.
Enn er kominn tími til að feta nýj-
ar brautir. Skoðum samspil slúðurs
og hefndaruppeldis. Við leitum fyrst
á Njáluslóðir og höfum stutta við-
dvöl að Bergþórshvoli. Þar sjáum
8 SAGNIR