Sagnir - 01.06.1992, Side 41

Sagnir - 01.06.1992, Side 41
(Hernando) Kolumbus.2 Islandsfarar Kólumbusar er getið í tveimur 16. aldar ritum sem eru nær samhljóða. Annars vegar Historie Ferdinards en hins vegar Historia de las Indias eftir spænska biskupinn Fray Bartolomé de Las Casas, „postula Indíánanna".3 Historie Ferdinands Kólumbusar er ævisaga Kristófers föður hans. Fer- dinand fæddist árið 1488 og var óskil- getinn. Hann fylgdi föður sínum í síðustu ferð hans til Ameríku á árun- um 1502-1504 og fór þangað tvívegis eftir það. Síðar á ævinni fylgdi Fer- dinard Karli V. Spánarkóngi til ít- alíu, Flandurs, Þýskalands og víðar. Hann ferðaðist þess utan til flestra Evrópulanda og bæði Asíu og Afr- íku.4 Hann var mikill bókasafnari, átti um 200.000 titla er hann lést árið 1539, og hafði undir höndum stóran hluta af skjölum föður síns.5 Ferdín- and var almennt virtur fræðimaður m.a. á sviði kortagerðar.6 Historie var upphaflega rituð á spænsku. Frumútgáfa hennar er glöt- uð en til er ítölsk þýðing hennar frá árinu 1571 og eins spænsk útgáfa frá 1592. I formála bókarinnar segist höf- undur eingöngu styðjast við skjöl föður síns og það sem hann upplifði sjálfur á ferðum þeirra feðga.7 Lífshlaup höfundar Historie, þekk- ing hans og tengsl við viðfangsefnið og þær heimildir sem hann notar, ættu með réttu að glæða frásögn hans af íslandsferðinni nægilegri sannleiks- týru til að hrekja myrkur tortryggn- innar burt úr hugarfylgsnum lesenda. Þó eru fræðimenn ekki alls kostar sammála um heimildargildi ritsins. Sumir telja að frásögnin af Islands- ferðinni sé hrein bábilja, aðrir telja hana sannleikanum samkvæma og enn aðrir fara milliveginn; trúa því að hún sé ættuð frá Kólumbusi en lýsi ekki hans eigin reynslu. Meðal efasemdamanna er sögupró- fessorinn Alberto Magnaghi. Hann fullyrðir að maður eins og Ferdinand Kólumbus, sem rneðal annars vann að kortagerð fyrir Karl V, hefði aldrei farið að birta þvílíka frásögn af ferð sem faðir hans fór, sökum þess að þær misfellur sem eru á minnis- greininni væru síst til að efla frækin- leik föður hans. Magnaghi er líka þeirrar skoðunar að Ferdinard hlyti í ljósi þekkingar sinnar að hafa leiðrétt staðarákvarðanir föður síns.8 Óþarft var að efla orðstír Kólumbusar, hann fann heila heimsálfu. Ef Kólumbus samdi ekki minnisgreinina sjálfur, þá er fáum öðrum til að dreifa en Las Casas og Ferndinandi sem var sam- kvæmt Magnaghi lærður kortagerða- maður og því enn ólíklegra að hann gerði slíkar villur. Frá mínum bæjar- dyrum séð eru rök Magnaghis ekki mjög sannfærandi. Fray Bartolomé de Las Casas tók prestvígslu 1510 og sigldi til Kúbu 1511 þar sem hann gerðist eins konar málsvari Indíána og reyndi að vernda einnig að því að ef frásögnin væri síð- ari tíma tilbúningur væri hún mun ýtarlegri.12 Sigurður sækir reyndar rannsóknir sínar mikið í smiðju Paolos Emilios Tavianis sem er sennilega sá sagn- fræðingur sem hvað lengst hefur náð í Kólumbusarfræðum. Við rannsókn- ir sínar hefur hann meðal annars ferð- ast til allra landa sem Kólumbus kom hugsanlega til, að fslandi meðtöldu.13 Þess á milli hefur hann drepið tímann á ráðherrastól. Hvað heimildargildi minnisgrein- arinnar margumtöluðu varðar tekur Taviani skýra afstöðu. Hann er viss um að hvorki Ferdinand Kólumbus rtotntfttuio tíxTn4tui • an7-i)uc VníL-t»5 7a^otfAdbiCi oovo^Iaí yiliodctaLbj -1.1. X Ijt-C iT-tlillíf i iit'/ cj6 • Á V|\)f x 3 ' "i < Vjiiéö V>öc* *tltc miliare; cum jpl is \>nur ergocc oucent tialenti centum ÍJliuca qU cuni oiii crraDua Myndin sýnir síðn iír bók- inni „Itnago Mundi" sem var í eigu Kólumbusar. Þar sést greinilega hvar liann hef- itr skrifað á spásstuna að það séu 56V> hlutar spœnskrar mílu í eintii breiddargráðu. Þessi skekkja leiddi til þess að Kólumbus vanmat umtnál jarðar um 25% eða um 10.000 kílómetra. þá fyrir ofstæki Spánverja.9 Historia Las Casas er talin vera frá- 6. áratug 16. aldar og benda líkur til þess að við gerð hennar hafi hann einkum stuðst við frumrit Historie Ferdinards Kol- umbusar. Hún hefur þó ekki fallið Spánverjum vel í geð því hún var ekki prentuð fyrr en árið 1875.10 Að mati Vilhjálms Stefánssonar, hins fræga ísbreiðuarkara okkar ís- lendinga, gætir í bók Las Casas til- hneigingar til að hnekkja tilkalli Spánar til Ameríku og hafi Spánverj- ar því reynt að varpa rýrð á bókina.11 Hin langa prentunarmeðganga bók- arinnar rennir stoðum undir kenn- ingu Vilhjálms. Vilhjálmur Stefánsson virðist vera á þeirri skoðun að Kristófer Kólum- bus sé höfundur greinarinnar. Það á einnig við um Paolo Emilio Taviani og Sigurð Líndal. Textarýni Sigurðar segir okkur að minnisgreinin beri öll merki þess að hún sé ekki ætluð nein- um sérstökum viðtakanda, aðeins höfundinum sjálfum. Hann hallast né Las Casas hafi getað samið minn- isgreinina sökum þess að þeir gátu á engan hátt vitað um ýmis atriði sem í henni eru svo sem hluti sem varða sjávarföll, ísrek, staðhætti eða jafnvel tímann er ferðin átti sér stað.14 Hafi einhver skáldað upp minnisgreinina má að mati Tavianis eigna það Kristófer Kólumbusi sjálfum og eng- um öðrum. Sé því nú svo farið, hvernig ætti þá að skýra af hverju og hvernig hann fór til Bristol og Galway á írlandi? Það er ekkert vafa- mál að Kólumbus kom til Englands i janúar 1477 og eina leiðin til að skýra ferð hans til Galway og Bristol er að hann hafi verið á leið til fslands þar sem skip frá Miðjarðarhafinu sigldu nær undantekningarlaust til London en nær aldrei til hinna tveggja áður- nefndu hafna.b Það verður ennfremur að taka með í reikninginn að óvenju mikið heim- ildahallæri ríkir um verslunarsigling- ar Portúgala á þessum tíma þar sem stór hluti portúgalskra skjala eyði- SAGNIR 39

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.