Sagnir - 01.06.1992, Blaðsíða 90

Sagnir - 01.06.1992, Blaðsíða 90
að greina aðalatriðin; þau hefðu ella getað týnst í almennri frásögn. Alla vega leit ég á töflurnar fyrst og las greinina síðan. Fleiri en ég gerðu slíkt hið sama. Á þessum tímum sívaxandi lesefnis samhliða nánast uppáþrengjandi fjöl- miðlun er mikilvægt að geta greint strax í upphafi kjarna málsins til að vita hvort frekari lestur sé æskilegur. Sagnfræðiritgerðir í Sögnum 1991. Mikilvægasta þema Sagna 1991 eru þrjár greinar um miðaldasögu sem augsýnilega voru upphaf- lega ritgerðir í námskeið- inu „Höfðingjar og bændur" sem Helgi Þor- láksson kenndi á haust- misserinu 1990. Bylgja Björnsdóttir skrifar um veldi Guðmundar ríka og ber það saman við veldi höfðingja á Sturl- ungaöld, Margrét Jónas- dóttir fjallar um gjafir í tveimur fslendingasögum og Arngrímur Þór Gunnhallsson spyr hvort verslunargróði hafi kall- að á fyrirlitningu samfé- lagsins og tekur dæmi úr sögunni af Hænsna-Þóri og Blund-Katli. í öllum ritgerðunum þremur eru kenningar í mannfræði og að nokkru leyti bók- menntafræði nýttar til að skýra sögulega þróun og er þetta yfirleitt hugvit- samlega gert og sýnir greini- lega gagnsemi kenningalegra fé- lagsvísinda í sagnfræðirannsóknum. Bylgja leitast við að beita kenning- um mannfræðingsins Marshall Sah- lins til að útskýra muninn á veldi Guðmundar ríka um árið 1000 og veldi höfðingja á Sturlungaöld, nánar tiltekið skiptingu Sahlins á svonefnd- um „big men“ eða stórmennum ann- ars vegar, og „chiefs“, höfðingjum hins vegar. Þetta eru engan veginn auðveldustu kenningar mannfræð- innar sem fyrirfinnast en Bylgja kemst eigi að síður klakklaust frá verkefninu. Eg tel það vera rétt mat að með hliðsjón af kenningum Sah- lins hafi Guðmundur ríki verið stór- menni en ekki höfðingi, andstætt stórgoðum 13. aldarinnar. Ég er hins vegar ekki öruggur um að þessi kenning um stórmenni og höfðingja sé hentug greiningaraðferð á íslenska þjóðveldinu, að hún segi okkur margt nýtt. Það er að mínu mati betra að útskýra sögu þjóðveldisins með því að rannsaka þróun fram- leiðsluhátta og eigna- og stéttaskipt- ingar, en breytingar á skiptiferli (gjöfum/sköttum) milli goða og þingmanna þeirra. En ef til vill má segja að ein greiningaraðferðin úti- loki ekki endilega aðra. Margrét styðst við kenningar mannfræðingsins Marcel Mauss og miðaldafræðingsins rússneska A.J. Gurevitch. Helstu niðurstöður henn- ar eru athyglisverðar og varpa á ýms- an hátt nýju ljósi á viðfangsefnið. Auðvelt er samt að gagnrýna smáat- riði, til dæmis þá staðhæfingu hennar að sjálfsþurftarbúskapur hafi tíðkast á Islandi fram á nítjándu öld og að dreifing vöru hafi ekki verið tengd við markað (væntanlega einnig fram á nítjándu öld). Hér fetar Margrét í fótspor íslenskra félagsfræðinga og mannfræðinga sem leggja talsvert annan skilning í hugtökin sjálfsþurft og markað en ég hef vanist í hagfræði og hagsögu. Þeir leitast aðeins við að lýsa því sem þeir telja vera meginein- kenni samfélagsins. Þar sem sjálfs- þurftarlandbúnaður var mikilvægari en sjávarútvegur telja þeir samfé- lagið á íslandi almennt hafa ein- kennst af sjálfsþurft. Frá hag- rænu sjónarmiði er hins vegar augljóst að íslenskt atvinnulíf gat ekki þrifist nema með öfl- ugri utanríkisverslun; einkum átti þetta við um sjávarútveg- inn. Þegar um 25% innlendr- ar framleiðslu var fluttur út eins og gert var á 18. öld er því hæpið að kenna samfé- lagið við sjálfsþurft. Grein Arngríms er tví- inælalaust athyglisverðasta framlagið í Sögnuw 1991. Greinin er meira en venjuleg nemendaritgerð: Það verður erfitt að fjalla um Hænsna- Þórissögu í framtíðinni nema geta greinar Arngríms; hún er ótvíræð fræðileg nýjung. Arngrímur tekur ýmsar fyrri skýringar á sögunni til gagn- rýninnar athugunar og beinir einkum athyglinni að skrif- um þeirra Paul Durrenber- gers og Ástráðs Eysteinsson- ar. Niðurstöður Arngríms eru bæði traustar og sannfærandi. Sigríður Þorgrímsdóttir skýrir ít- arlega og vel frá skrifum Morgun- blaðsins og Vísis um nasismann á millistríðsárunum. Hún sýnir fram á að þessi dagblöð höfðu svipaða af- stöðu og allur þorri annarra hægri- sinnaðra fjölmiðla í vestrænum lönd- um á þessum tíma. Þau skrifuðu vin- samlega um þýska nasista lengi vel eftir að þeir komust til valda en fóru að vera gagnrýnni í garð þeirra þegar hernaðarútþenslan gerðist meira áberandi. Nytsamir sakleysingjar og 88 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.