Sagnir - 01.06.1992, Blaðsíða 67

Sagnir - 01.06.1992, Blaðsíða 67
mánuði reiknast fyrirburar til of- bráðra barneigna, en sé miðað við átta mánuði reiknast börn sem fæðast á réttum tíma til hjónabandsbarna. Þetta hafa fræðimenn ákveðið á ýmsa vegu, en munurinn er aldrei svo mik- ill að ekki sé hægt að bera saman á milli landa. Hægast er að hafa töflur flóknari en svo að ein tala fái öllu ráðið, enda athyglisvert að vita hvort algengara var að einn mánuður eða átta liðu frá giftingu til fæðingar. Liðtækastur sagnfræðinga sem fengist hafa við ofbráðar barneignir er Englendingurinn P.E.H. Hair, sem kannaði á fimnrta þúsund gift- ingar á árabilinu 1550-1850.3 Hann setti mörkin við átta og hálf- an mánuð og komst að því að líklega hefði þriðja hver brúður verið ólétt við at- höfnina. Tíunda hver var komin sex mánuði eða meira á leið. I einstökum sóknum voru allt frá 10 af hundraði til 35-40 af hundraði brúða van- færar fyrir altari. Á austur- strönd Bandaríkjanna á síðari hluta 18. aldar var um það bil þriðjungur brúða með barni og hafði hlutfallið hækkað verulega á öldinni eða úr tæpum 10 af hundraði um aldanrót.6 I Danmörku eign- uðust 40 af hundraði brúða barn innan átta mánaða frá giftingu, árin 1725-1800 en helmingur innan níu mán- aða. Litlar breytingar urðu á tímabilinu.' Norskar rann- sóknir miða við sjö mánuði og samkvæmt því var þriðjungur brúða vanfær við giftinguna. Það var algengara meðal bænda og verkafólks en embættismanna og borgara.8 Þessar tölur miða við einföldustu reikningsreglu sem hægt er að hugsa sér í þessu samhengi. Tekinn er til- tekinn fjöldi giftinga og athugað hve- nær hjónum fæddist fyrsta barn. Hair gat rakið um það bil helming giftinga til fæðingar í sömu sókn. Hansen hafði uppá 1750 nýgiftum konum, en segir ekki hversu margar hann fann ekki. Vandinn er að ákveða við hvað beri að miða útreikning. Á að miða við fjölda allra giftinga eða fjölda giftinga sem vitað er hvenær fyrsta barnið fæddist? Aldrei tekst að finna fyrstu barneign allra kvenna sem giftu sig á tilteknum stað: mörg ný- gift hjón fluttu strax og sum eignuð- ust aldrei börn. Hversu mörg eign- uðust ekki börn og hvað fóru mörg burt? Eignuðust hjón sem fluttu jafn mörg börn jafn fljótt og hin sem urðu eftir? Því verður ekki svarað, en einfaldast er að gefa sér að hlutfall of- bráðra barneigna sé jafn hátt meðal hjóna sem fluttu og hinna sem fluttu ekki. Þá er óhætt að miða við brúðir hverra fyrsta fæðing fannst og voru óléttar við giftingu. Hafi 60 af hundr- að pörum fundist við fyrstu barneign og 20 þeirra eignast barn innan átta mánaða er hlutfallið 33 af hundraði. 3 Fyrir níu árum bauðst mér að fara á norrænt sagnfræðinemanámskeið í Þrándheimi og datt í hug að taka eitt- hvað saman um óskilgetni og ofbráð- ar barneignir. Fjögur prestaköll í Eyjafirði urðu fyrir valinu: Möðru- vallaklaustur, Myrká, Glæsibær og Lögmannshlíð, Bægisá og Bakki. Á svæðinu bjuggu tæplega 1100 manns árið 1801 og tvö hundruð fleiri árið 1840. Ekki var rannsóknin viðamikil, en ég elti 40 pör sem giftust 1791-1795 og 47 árin 1831-1835. Af þessum 87 hjónum eignuðust 25 ekki barn á svæðinu næstu árin og voru annað hvort farin eða barnlaus. Af hinum eignuðust 30 hjón barn innan átta mánaða, tíu árin 1791-1795 og 20 árin 1831-1835. Hlutfall ofbráðra barn- eigna var þar af leiðandi 37 og 57 af hundraði, en 48 af hundraði í heild. Ekki var úrtakið nógu stórt til að fullyrða mikið um rosalega aukn- ingu, en hún hélst í hendur við hlut- fall óskilgetinna fæðinga. í sörnu sóknum var hlutfall þeirra níu af hundraði árin 1791-1800 og tíu af hundraði 1831-1840. Það er í sam- ræmi við niðurstöður frá Englandi um jákvæða fylgni milli óskilgetni og ofbráðra barneigna. Enski sagnfræð- ingurinn Peter Laslett segir að það sé vegna þess að hvort tveggja sýni frjósemi kvenna og telur að fæðingum meðal giftra kvenna hafi líka fjölg- að.9 Könnun minni fylgdi ég eftir á námskeiðinu Ástir ís- lendinga 1550-1850 við Há- skólann vorið 1989. Tíu nem- endur sökktu sér í kirkjubæk- ur á Þjóðskjalasafni og könnuðu ofbráðar barneignir á tímabilinu 1785-1845: Erla Hulda Halldórsdóttir athug- aði Staðastað á Snæfellsnesi; Dagný Hermannsdóttir Garpsdal, Stað og Reykhóla í Barðastrandarsýslu; Ólafur Kr. Jóhannsson Auðkúlu, Svínavatn og Þingeyri í Húnavatns- sýslu; Hrafnhildur E. Karlsdóttir og Katrín Björg Ríkarðsdóttir Hvann- eyri og Kvíabekk, Hrafnagil og Kaupang í Eyjafirði; Jóna Björg Guð- mundsdóttir Grenjaðarstað, Nes og Múla í Suður-Þingeyjarsýslu; Ómar Bjarki Kristjánsson Desjarmýri, Klippstað og Dvergastein í Mú- lasýslu; Sigrún Pálsdóttir Odda á Rangárvöllum; Steinunn V. Óskar- sdóttir Keldur og Gunnarsholt og Snorri Már Skúlason Hraungerði og Laugardæli í Árnessýslu. Nokkuð kom á óvart að fjöldi brúðhjóna átti börn þegar fyrir Brúður umkringd börnum. SAGNIR 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.