Sagnir - 01.06.1992, Blaðsíða 91

Sagnir - 01.06.1992, Blaðsíða 91
„lýðræðissinnaðir" fylgifiskar ein- ræðisafla hafa fundist bæði til hægri og til vinstri, jafnt í íslenskum stjórn- málum sem annars staðar. Grein Sig- ríðar byggir á B.A. ritgerð höfundar um sama efni en þess er hvergi getið, ekki einu sinni í heimildaskrá. Pétur Pétursson og Snorri Már Skúlason rita um glæpaumfjöllun í ís- lenskum blöðum á 19. öld. Meginniðurstaða þeirra er að umræðan færðist í nútímaátt eftir því sem leið á öldina. Greinin virðist vera heiðarleg úttekt á vel afmörkuðu viðfangs- efni en hún er lítil fræðileg nýjung. Ég las viðtal þeirra Orra Vésteinssonar og Adolfs Friðrikssonar við enska íslenskuprófessor- inn Peter Foote af nokkrum áhuga og tals- verðri skemmtun. Kímnigáfa prófessorsins er prýðileg og er það helsti kosturinn við greinina. Sigrún Pálsdóttir skrif- ar fróðlega og skemmti- lega um vöruframboð, skömmtun og biðraðir í Reykjavík á árunum 1947 - 1950. Ef einhver grein í Sögnum getur skírskotað til mikils fjölda fólks utan venjubundins hóps áhugamanna um sagnfræði er það einmitt þessi. Sig- rún rekur hér sögur úr daglegu lífi Reykvíkinga á þessum árum sem flestir hafa „gleymt" í daglegu amstri en rifjast óhjákvæmilega upp við lest- ur greinar hennar. Þannig fór ég ósjálfrátt við lesturinn að minnast þátttöku minnar í bollaslagnum í Liverpool 1948. Hver einstaklingur átti að fá eitt bollapar (eða tvö) án til- lits til aldurs. Tíu ára gamall snáði eins og ég var rifinn upp síðla nætur til að standa í leiðinlegri biðröð í óskaplega langan tíma, allt of fjarri Sigrún Pálsdóttir Húsmæður og haftasamfélag Hvað var á boðstólum í verslunum Reykjavíkur á árunum 1947 til 1950? pabba og mömmu, í þeim eina tilgangi að kaupa bollapar! Gott ef sjö ára systir mín fékk ekki að standa í biðröðinni alein líka. Eggert Þór gefur sannferðuga mynd af erfiðleikum samtímasagn- fræðinga vegna þess að heimildir eru margar og um víðan völl. Margir sagnfræðingar hafa kynnst sambæri- legum vandamálum og Eggert. Það gerist raunar stöðugt erfiðara að sjá skóginn fyrir trjánum og jafnframt er komin sú þversögn að því fleiri sem heimildirnar eru, þeim mun auðveld- ara getur verið fyrir yfirvöld að leyna því sem raunverulega átti sér stað. Starf sagnfræðingsins verður erfiðara en ekki er ástæða til að harma það. Greinin um akantusmunstrið var skemmtilega myndskreytt og hef ég ekkert annað um hana að segja á þessum vettvangi. Ég úrskurðaði mig van- hæfan að fjalla um tilraun Margrétar Agnar til að segja ósögufróðum börn- um og unglingum frá högum barna í Reykjavík fyrir hundrað árum. Ég bað hins vegar ungmeyjar í fjölskyldu minni að lesa greinina og segja mér álit sitt. Það var ekki lélegt: Ef allir sagnfræðingar skrifuðu svona þá væri hægt að lesa sögu sér til skemmtunar og fróð- leiks! Niðurstaða mín af lestri greinanna í Sögnum 1991 er því í stuttu máli þessi: Efnið er mjög mis- jafnt að gæðum. Helsta þemað, miðaldasagan, heppnaðist í heild all vel. Þrjár greinar bera af: greinar Arngríms Þórs Gunnhallssonar, Sigrúnar Páls- dóttur og Margrétar Agnar Rafns- dóttur; sú fyrstnefnda fyrir fræðilega nýjung; önnur fyrir víðtæka skírskot- un og skemmtilega frásögn og sú þriðja fyrir mjög nýstárlega og vel- heppnaða framsetningu. Tilvísun. 1. Stælt úr alþingisbréfi frá 1576, sbr. Alþingisbœkur íslands, 1. bindi, 320-323. SAGNIR 89 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.