Sagnir - 01.06.1992, Qupperneq 42

Sagnir - 01.06.1992, Qupperneq 42
lagðist í jarðskjálftum árið 1755.16 Það virðist því vera svo að þrátt fyrir að varðveisla heimilda sé ekki eins og best væri á kosið (hér er ekki um frumheimild að ræða né tvær óháðar heimildir) þá sé heimildargildi þeirra alls ekki lítið og verður síðar vikið að einstökum þáttum þeirra. Fyrst verð- ur litið á þá þætti sem hafa ef til vill orðið Kólumbusi hvati að hinni títt- nefndu íslandsferð. Hvað rak Kólumbus til Islands og hvað vissi hann um landið? Sé tekið undir fullyrðingar Tavianis um áreiðanleika minnisgreinarinnar má spyrja af hverju Kólumbus hélt í þessa ferð. Ég held að það hljóti að hafa verið einhver ástæða fyrir förinni og því beri að athuga hvaða vitn- eskju Kólumbus gat haft um ísland og nágrannalöndin vestanhafs. Af minnisgrein- inni í Historic rná ráða að Kólumbus hafi þekkt rit Ptó- lemeusar. Hugsanlegt er að Kólumbus hafi í Portúgal fengið vitneskju um bæði Grænland og ísland og jafn- vel löndin þar fyrir handan, Markland, Helluland og Vínland. Vitað er að allt frá því fyrir 1450 hafði verið ná- ið samstarf nreð Portúgölum og Dönum hvað leiðangra á sjó varðar.17 Svo virðist sem þetta samband hafi fyrst komist á vegna fjölskyldu- tengsla en Eiríkur af Pom- mern og Hinrik sæfari voru rnágar. Vinfengi þjóðhöfðingja land- anna hefur haldist því að 1472 eða 1473 sendi Kristján 1 Danakonungur þá Hans Pothorst og Diðrik Píning, síðar hirðstjóra og höfuðsmann á ís- landi, í leiðangur vestur fyrir ísland ef til vill í leit að sjóleið til Indlands. Hrakti þá meðal annars til Grænlands og sennilega Marklands. En það sem gerir þennan leiðangur athyglisverðan með Kólumbus í huga er að í för með Pothorst og Píning var Portúgali, Johan Vaz Cortez-Real að nafni. Samkvæmt athugunum Danans Sofusar Larsens var Cortez- Real kominn aftur til Portúgals 1473.18 Það er því freistandi að setja fram þá kenningu að Kólumbus hafi annað hvort hitt Cortez-Real eða haft spurnir af ferðum hans er hann kom til Portúgals árið 1476 á leið sinni til Englands og þá hafi kviknað með Kólumbusi hugmyndin að íslands- ferðinni. En af hverju fór Kólumbus þá að- eins til íslands en ekki Grænlands eða lengra vestur? Allt bendir til þess að Kólumbus hafi ekki verið á eigin skipi þegar hann kom til íslands held- ur enskri fiskiduggu og því hafi far- arstjórn ekki verið í hans höndum. Því má segja að Kólumbus hafi valið næstbesta kostinn, að fara til íslands og reyna að fá þar frekari vitneskju um ferðir á þær slóðir er Cortez-Real sótti. Til Ultima Thule Hér að framan er birt klausa sú er lýsir íslandsför Kólumbusar. í fljótu bragði virðist þarna allt morandi í staðlausum staðhæfíngum. Þó ber að hafa í huga að Kristófer Kólumbus var mjög gjarn á að ýkja.17 Dagsetn- ing ferðarinnar er oft það fyrsta sem lesandinn hnýtur unr. Hún hefur ein- mitt þótt rýra sannleiksgildi frásagn- arinnar vegna þess hve snenrma árs ferðin er. Sanr- kvænrt enskunr tollskýrslum sigldu aðeins þrjú skip frá Bristol til íslands árið 1477 en þess ber að gæta að aðeins hefur varðveist unr þriðjung- ur af tollskýrslunr frá helstu svæðum íslandssiglinga frá Englandi á tímabilinu 1461- 1483 og gætu skipin því hafa verið mun fleiri.20 Taviani telur að floti sá sem Kólumbus sigldi með hafi komið til London í fyrsta lagi í janúar 1477. Því hafi Kól- umbus ekki komið til Bristol fyrr en í febrúar sanra ár og líklega ekki lagt úr höfn fyrr en í fyrsta lagi í byrjun nrars, þar sem ensk skip lögðu ekki upp til íslands svo snenrnra árs, en það útilokar þó ekki möguleikann á að farið hafi verið í febrúar. Taviani telur líklegt að Kólumbus hafi skrifað nrinnisgreinina þegar hann dvaldist á Spáni á árun- um 1485-1491 og í raun sagt ferðina vera í febrúar en þá er gróðurfar á Ítalíu ekki ósvip- að og í apríl á fslandi.71 Hann hafi því einungis heimfært tínrann yfir á þann heinrshluta er hann þekkti best. Hugsanlegt er þó að brottfarartíminn sé réttur. Sanr- kvæmt athugunum Björns Þorsteins- sonar stendur í gerðabók enska ríkis- ráðsins frá árinu 1626 að skip sem stundi veiðar við Vestnrannaeyjar séu venjulega búin til brottfarar í febrú- arlok.22 Ennfremur getur Björn unr skip er sigldi til fslands frá Ipswich 10. janúar 1514 og telur að dænri um slíka undanfara flotans séu eflaust fleiri. Kort Ptólemeusar þar scm það nœr lcngst norður og vestur og Kólumbus vitnar til í minnisbókarbroti sínu. Þar sést greinileg staðsetning Thule á 63° n.br. 40 SAGNIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sagnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.