Sagnir - 01.06.1992, Side 43
Það hefur vakið athygli manna að
Kólumbus skuli tala um að munur
flóðs og §öru hér við land geti orðið
26 faðmar. Þetta eru rúmir 15 metrar
(1 Genúa-faðmur = 0,6 metrar) og
stenst því engan veginn þar sem
mestur munur sjávarfalla hér við land
er aðeins 4,61 metri .2'1 Aftur á móti
eru sjávarföll með því mesta sem ger-
ist í heiminum við Bristol. Þar getur
munað heilum 14,6 metrum á flóði
og fjöru eða rúinum 25 Genúa-föðm-
um.24 Því má ætla að Kólumbus, sem
var frá Miðjarðarhafmu þar sem varla
gætir munar á flóði og fjöru, hafi
heillast af sjávarföllum hér við land
en þar sem hann gerði engar mæling-
ar hafi hann heimfært tölurnar frá
Bristol yfir á Island. Það verður líka
að taka með í reikninginn að Kólum-
bus kynntist fyrst Qörðum hér við
land en oft virkar munur flóðs og
Qöru meiri í fjarðarbotnum en annars
staðar./
Norðurströnd Islands er ekki á
63°n.br. heldur 73°n.br., segir Kól-
umbus. Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem við höfum nú virðist hér
vera um töluverða skekkju að ræða.
En hvernig er hún til komin? Taviani
telur að þar sem Kólumbus var alls
óreyndur í meðferð siglingatækja og
hvorki hann né enskir sjómenn þessa
tíma kunnu að nota mælitæki eins og
kvaðrant hafi hann aðeins reynt að slá
á fjarlægðina milli Englands og ís-
lands.25 í Portúgal, síðar á ævinni,
lærði Kólumbus að samkvæmt korti
Ptolemeusar náði England norður að
62°. Samkvæmt sömu mælingum átti
norðurströnd Thule að vera á
63°n.br. en þegar Kólumbus reyndi
þetta sjálfur hefur hann siglt framhjá
írlandi sem nær samkvæmt þessum
mælingum til 61°n.br. Hann hefur
síðan bætt 720 mílum, eða 12 stigum
við 61° og fengið út 73°.26 En það
verður einnig að hafa í huga að við
útreikninga sína studdist Kólumbus
við mælieininguna „league" en ekki
sjómílur.
„League" eða míla (1475 metrar) er
upphaflega ættuð frá Rómverjum en
skipti síðar um ríkisfang og varð
spænsk. Samkvæmt útreikningum
Kólumbusar voru 56,7 rómverskar
mílur eða tæplega 83 km í einni
breiddargráðu við miðbaug.27 Nú á
tímum þykir aftur á móti fullsannað
að í breiddargráðunni séu 60 sjómflur
eða 111 kflómetrar (1 sjómfla = 1852
m). Kólumbus vanmat því ummál
jarðar um 25 af hundraði. Sé vega-
lengd Kólumbusar snúið yfir í sjó-
mflur og þeim bætt við rétta stað-
setningu frlands verða staðhæfingar
Kólumbusar strax miklu markvissari.
Þá skeikar ekki nema rúmlega 1,7°
Sankti Kristófer með kristsbarnið. Tákn-
rœn samtímamynd sem sýnir Kólumbus
Jlytja indíánum fagnaðarboðskapinn. Spán-
verjum var mjög ( mun að sýna frá á að
Kólumbus hefði farið til Ameríku á þeirra
vegum til þess að boða kristna trú. Því
reyndu þeir mjög að bœla niður alla vitn-
eskju um annað.
eða um 193 kflómetrum frá réttri
staðsetningu íslands en það er svipuð
vegalengd og frá Reykjavík til Víkur
í Mýrdal, svo dæmi sé tekið.
Menn hafa mikið velt fyrir sér hvar
Kólumbus hafi stigið á land. Taviani
telur líklegt að hann hafi lagt að ein-
hvers staðar við vesturströndina, þá
einna helst í Hafnarfirði, Skerjafirði,
Kollafirði eða Hvalfirði. Hann telur
þó Hvalfjörð líklegastan sökum þess
að þar munar miklu á flóði og íjöru
en sjávarföllin munu hafa vakið at-
hygli Kólumbus er hann var hér.28
Sigurður Líndal hallast gegn þessu og
telur HafnarQörð líklegastan sökum
þess að hafskip hættu að koma í
Hvalljörð á fyrri hluta 15. aldar.29
Hafi Kólumbus aftur á móti lent í
Hvalfirði hafa menn verið að velta
fyrir sér hugsanlegum fundi hans og
Magnúsar Eyjólfssonar biskups í
Skálholti sem samkvæmt annálum
var þar á ferð 1477.30 Magnús hafði
áður verið ábóti við Helgafellsklaust-
ur þar sem ef til vill voru til handrit
sem sögðu frá Grænlandssiglingum.
Staðfræði Kólumbusar og útreikningar
írland
fsland
f dag er
Hjá Kólumbusi
í dag
Hjá Kólumbusi
frland í dag
Vegalengd til
íslands
ísland
Hnattstaða
Ptólemeus Kólumbus f reynd
61°n.br. 61°n.br. 55°n.br.
63°n.br. 73°n.br. 66,3°n.br.
Mælieiningar
1 sjómfla = 1852 m
1 spænsk mfla = 1475 m
1° = 60 sjómflur = 111,12 km
var 1° = 56,67 spænskar mflur = 83,6 km
Fjarlægðin frá írlandi til íslands
11,3° = 11,3 x 111,12 km = 1333,46 km
12° = 12 x 83,6 km = 1062 km = 573,4 sjómflur= 9,56°.
Staðfræði Kólumbusar Rétt staðfræði
55°n.br. 55°n.br.
9,56°
64,56°n.br.
11,3°
66,3°n.br.
Skekkja
1,74°
SAGNIR 41