Sagnir - 01.06.1992, Side 44

Sagnir - 01.06.1992, Side 44
Hefði honum því verið í lófa lagið að fræða Kólumbus um Ameríkuferðir. Sigurður Líndal telur hæpið að sú hafi verið raunin enda verður að segj- ast nokkuð ólíklegt að biskup í vísi- tasíuferð fari að gefa sig á tal við óbreyttan sjóara á enskri fiskiduggu. Á móti því má bera og segja að fróð- leiksþyrstur maður eins og Kólum- bus hefði auðvitað gert sér ferð til fundar við biskup ef hann hefði lent í Hvalfirði en ef við höldum okkur við skoðun Sigurðar verður slíkur fundur af skiljanlegum orsökum næsta ólík- legur. Aftur á móti telur Sigurður ekki ólíklegt að þeir menn sem Kól- umbus kunni að hafa hitt hafi frætt hann um afrek feðra sinna í vestri.31 Taviani efast um þetta og styðst í þessu sambandi við kenningar De Lollins og Þorvalds Thoroddsens sem bera fyrir sig fáfræði almennings um þessa hluti. Það er alls ekki ólík- legt að alþýða manna hafi þekkt frá- sagnir af Vínlandsferðum og hafa verður í huga að aðeins voru liðin 67 ár frá því að síðasta skip sneri aftur frá Grænlandi. Því er ekki ólíklegt að Kólumbus hafi frétt af löndum í vestri er hann staldraði hér við. 100 spænskar mílur út fyrir eyna Thule á íslausu haíl Þegar athugaður er sá hluti minnis- greinarinnar sem segir Kólumbus hafa siglt 100 spænskar mflur út fyrir eyjuna Thule á íslausu hafi ber að minna á að ein spænsk míla er aðeins 1475 m en ein sjómfla er 1852 m.32 Við skulum gefa okkur að Kólumbus hafi lent í Hafnarfirði og lagt þaðan af stað í þennan 100 mflna túr. Við það styttist vegalengdin enn frekar. Hefði Kólumbus siglt 100 sjómílur í norður eða vestur frá norðurströnd íslands myndi hann hins vegar hafa komist til Jan Mayen eða Grænlands.33 Sumir fræðimenn hallast jafnvel að því að í Historie hafi verið um misrit- un að ræða og Kólumbus hafi komið til annarrar Thule 100 mflur frá fs- landi en Taviani hafnar þeirri tilgátu á þeim forsendum að Kólumbus hafi mælt frá þeim stað er hann lagði upp frá, Hafnafirði eða Hvalfirði. Taviani segir ennfremur að Kól- umbus hafi ekki getað siglt í norður því að á „öðrum stað“ segir Kólum- bus að eftir dagssiglingu handan Thule sé hafið frosið.34 Það er baga- legt að Taviani skuli ekki greina nán- ar frá því hvaðan hann hefur þetta. Sanrkvæmt þessu kemur aðeins vest- urátt til greina hjá Kólumbusi því hann kom úr suðaustri. Kólumbus hlýtur að hafa siglt 100 mflur frá botni Faxaflóa í suðvestur, norðvest- ur eða í hávestur, þ.e. um 50-60 spænskar mflur (40-50 sjómflur) út fyrir strönd íslands. Því lætur ekki illa í eyrum að hann hafi getað sullað í íslausu hafi svona snemma árs en samkvæmt annálum var líka um óvenju mildan vetur að ræða.33 Skiptir íslandsferðin máli? Svo virðist við fyrstu sýn sem spurn- ingin um hvort Kristófer Kólumbus hafi komið til íslands eður ei vegi ekki þungt á metaskálum sögunnar ef önnur afrek hans eru höfð til hlið- sjónar. Nánari athugun leiðir í ljós að ef til vill olli þessi ferð því að Kólum- bus sigldi árið 1492 á vit „austursins í vestri" og uppgötvaði hina nýju heimsálfu ekki óvart, heldur með vitneskjuna um Vínland í farteskinu. íslandsferð Kólumbusar hafði því töluvert gildi um og upp úr aldamót- unum 1500 þegar Spánverjar voru að krefjast yfirráða yfir hinni nýju álfu. Ein af meginröksemdafærslum Spán- verja fyrir þessum yfirráðum var ein- mitt að enginn hefði vitað um tilvist Ameríku fyrr en Kólumbus uppgötv- aði hana sem umboðsmaður Spán- verja.3<’ Með öðrum orðum að Kól- umbus hefði farið í sína frægu ferð á Sankti Maríu árið 1492, til að finna sjóleiðina til Indlands, án þess að hann eða nokkur annar hefði gert sér nokkra glætu um land í vestri. Því gat komið sér illa fyrir Spánverja ef Kólumbus hefði komið til íslands og frétt af leiðöngrum þarlendra rnanna Kristófer Kðlumbus. - Hctja hafsins með hugsjóti að leiðarljósi eða byggðist ferð hans til Ameríku á vitneskju iim lönd liandan við hafið, - vitneskju sem liaiiiifékk á íslandi Í477? 42 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.