Sagnir - 01.06.1992, Síða 82

Sagnir - 01.06.1992, Síða 82
og lekandi væri sami sjúkdómurinn. Árið 1797 kom Bell nokkur frarn með þá kenningu að þetta væru tveir ólíkir sjúkdómar. Á svipuðum tíma kom fram nýtt lyf sem var blanda af kvikasilfri og klórsambandi. Kostur þessa lyfs var að sjúklingar gátu með- höndlað sig sjálfir. En þó að læknar væru hrifnir af þessu nýja lyfi þá tóku þeir þó eftir að það virkaði ekki alltaf ef sjúkdómurinn hafði náð öðru og Brennslujárn, notað til að brenna fyrir sár. I þriðja stigi. En á þessum tíma var ekki vitað að á fyrstu stigum sára- sóttar gróa sárin af sjálfum sér, hvort sem meðhöndlun á sér stað eða ekki.26 Þekking á sjúkdómnum einni öld seinna í bókinni Heilsufrceði utigra kvenna frá 1923 segir um fransós að hann sé „ýmist meðfæddur eða fenginn síðar. Smitast menn oftast við samræði við sjúka manneskju. Þó geta menn smitast við kossa, þegar barn sýgur, af glasi, pípu, handklæði o.s.frv., sem mengast hefur af smitinu.“27 Þar er einnig talað um að sjúkdómurinn greinist í þrjú stig. Á fyrsta stiginu kemur fram smá sár sem grær fljót- lega og veldur litlum óþægindum. Þrem til fjórum vikum seinna kemur rauður bólguþrimill þar sem smitun varð og kemur sár í miðjunni og er gröfturinn í því bráðsmitandi. Sárið er oft lítið og gefa menn því oft ekki gaum enda er sjúklingurinn frískur að öðru leyti. Leiti sjúklingur læknis strax og er tekinn til meðferðar lækn- ast sjúkdómurinn yfirleitt og nær ekki öðru stigi. Ef sjúkdómurinn nær öðru stiginu kemst hann út í blóðið og berst um líkamann; þetta er að átta vikum liðnum eða að loknu fyrsta stigi. Oft koma útbrot á húðina, sjúklingurinn getur fundið fyrir beinverkjum, höf- uðverk, máttleysi, hita og svitnað mikið nokkrum dögum áður. Utbrot geta verið með ýmsum hætti, slím- húð í munni, hálsi og víðar veilist oft, hleypur stundum bólga í húðina hún verður rauð, aum viðkomu og stundum konr hörð fleiður. Ef vel tekst til nær sýkin ekki þriðja stigi. En aftur á móti, ef enginn gaurnur er gefinn að sjúkdómnum, nær hann þriðja stigi og er þá mun magnaðari. Þriðja stigið kemur ekki frarn fyrr en mörgum árum síðar og hefur þá sóttkveikjan lifað aðgerðalaus á með- an. Læknir og sjúklingur geta ekki verið vissir um bata fyrr en að þrem til fjórum árum liðnum, ef sótt- kveikjan hefur ekki bært á sér á þeim tima er hægt að úrskurða sjúkling heilbrigðan. Ef sjúkdómurinn nær þriðja stigi sýkist heilinn, lifrin og önnur líffæri. Bein og brjósk eyðast, svo sem í nefinu. Sár og þrimlar koma í húðina, þau gróa seint og eftir sitja ljót ör. Fransós ryður braut öðr- um sjúkdómum auk þess sem hann eyðileggur sjálfur. Sjúklingur sem fransós hefur herjað á hefur lítið mót- stöðuafl gegn krabbameini, berklum og fleiri sjúkdómum. Óbeinlínis get- ur fransós þannig verið banamein þó að nrenn viti ekki af.2s Þessi sjúkdómslýsing á fransós frá 1923 lýsir mun meiri þekkingu en þeir Hoffmann og Ari höfðu á sínum tíma og töldu þeir báðir að þeir hefðu læknað það fólk sem hafði kynsjúk- dóminn. Miðað við nútímaþekkingu er nokkuð augljóst að svo hefur ekki verið. Oddvörtur og sárasótt Condyloma eða oddvörtur orsakast af veiru, sem smitast með kynmök- um og er tíminn frá smitun til ein- kenna talinn vera 4-12 vikur. Vört- urnar eru algengar á burðarbörmum og á spönginni, en finnast oft í leg- göngum og í leghálsi og í kringum endaþarm. Vörturnar eru sjaldgæfar hjá karlmönnum, koma þó fyrir hjá þeim á reðnum og í kringum enda- þarm. Algengt einkenni er kláði og virðist þungun auka vöxt oddvarta, sérstaklega þegar þær eru í leggöng- um og geta þau nærri fyllst af vört- um. Einnig er algeng mikil útferð sem sterk lykt er af og þá vegna við- bótarsýkingar. Nú til dags felst meðferð í því að læknar reyna penslun með podophyll- ini 25% eða linimentum podophyllini ef um fáar og litlar vörtur er að ræða. Efnið er þvegið af eftir átta tíma, og ber að varast að það komist á nær- liggjandi húð. Öruggast er þó að brenna vörturnar af með rafstraumi (díathermi) í staðdeyfingu eða svæf- ingu og skafa þær síðan með sköfu. Oddvörtur hverfa stundum af sjálf- ' 29 um ser. Chancre er forstig af sárasótt og er mun illvígara en oddvörtur. Með- göngutími áður en einkenni koma fram er mánuður og er algengast að einkenni komi fram við sköpin og á leghálsi en sýking getur komið fram hvar sem er. Einnig fylgir þessu sótt- hiti. Chancre er þegar gormsýkill eða sárasóttargyrmi kemur fram, það er um 1 cm í þvermál og byrjar sem rauður smáþrimill og verður síðan 80 SAGNIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.