Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Side 4
Litprentanir eftir málverkum
Fyrir allmörgum ámm var ráÖizt í það
bér aÖ gera nokkrar litprentanir eftir mál-
verkum Ásgríms Jónssonar. Adunu roynd-
irnar hafa verið prentaðar í Danmórku og
urðu geysilega vinsœlar. Má enn víða sjá
þessar myndir á veggjum, einkum úti á
landi, og eru pœr víða eina híbýlaprjðin í
stássstofum, ef mannamyndir eru ekki tald-
ar 'i feim flokki.
Helgafell hefir nú náð samningum við
flesta hina kunnustu málara okkar, eldri
og yngri, um grentun mynda eftir þá, í
stcerðum sem hœfa venjulegum stofuveggj-
um. Fyrsta myndin, Matarhlé eftir Gunn-
laug Scheving, er nú fullprentuð og hefst
sala á henni um leið og þetta hefti Nýs
Helgafells kemur til áskrifenda, en mynd-
irnar verða afhentar í júltmánuði eða fyrr.
Af hverri mynd verða aðeins prentuð 500
eintók til sölu hér innanlands, og eru öll
tölusett og árituð af listamanninum sjálf-
um. Af þessari tölu mun allt að helming-
ur fara í skóla, opinber söfn og einkafyrir-
tæki, sem skipti eiga við erlenda menn, en
250—300 myndir verða seldar einstak-
lingum. Verður sölufyrirkomulagið þann-
ig, að myndirnar eru afgreiddar beint frá
afgreiðslu tímaritsins til sjálfra kaugend-
anna, og getur enginn fengið nema eitt
eintak, og aðeins einn maður í hverjum
hrefgi eintak af hverri mynd, og fær sá
sem fyrstur hefir lagt inn pöntun. Þó verða
allt að 3—1 o eintók seld í stærstu bæina
og nokkru fleiri i Reykjavik. Myndin sem
fullgrentuð hefir verið, er í sömu stærð og
frummyndin, 60x75 cm-> °i verða all-
ar myndirnar í svipaðri stærð. Verð hverr-
ar myndar er kr. 4.00,00 án ramma. Þeir
sem fanta málverk verða að taka fram eftir
hvaða málara þeir óska að fá myndir. Þær
verða sendar óinnrammaðar nema tekið sé
fram að þær eigi að vera i rómmum. Munu
listamennirnir sjálfir velja rammana og
verða þeir reiknaðir á kostnaðarverði.
Prýðið íslenzk heimili með íslenzkum málverkum.
Pantanir sendist til Nýs Helgafells, Box 263.
(Einnig má panta í síma eða með símskeyti).