Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Síða 5
2. HEFTI I. ÁRG.
JÚNl 1956
Bls.
53 Steinn Steinarr: Elinor Wylie
56 Þórbergur Þórðarson: Jarpur
62 Hannes Pétursson: 1. Og svo kom
vetur. 2. Astarljóð
63 Kristjón Eldjórn: íslands þúsund ór
68 Flokksleiðtogar raeða utanríkis-
stefnu
(Finnb. R. Valdimarsson, Hermann
Jónasson, Ólaíur Thors Vald. Jó-
hannsson)
75 Arthur Koestler: Um pólitíska sál-
sýki
83 Bókmenntir. Jóhannes Nordal,
Kristján Karlsson, Jónas Kristjáns-
son, Stefán Bjarman
91 Leiklist. Þorsteinn Hannesson
90 Myndlist. Ragnar Jónsson
93 Tónlist. Rögnvaldur Sigurjónsscn
RITSTJÓRN:
Tómas Guðmundsson
Ragnar Jónsson ábm.
Kristján Karlsson
Jóhannes Nordal
VÍKINC5PRENT
NÚ ER KOSNINGAVOR á íslandi og allt
mannlíf umlokið gerningaþoku stjórnmála-
baráttunnar svo að jafnvel hinir hófsöm-
ustu menn og vitrustu eru helteknir pólitísk-
um hugarórum. Af því tilefni þótti Nýju
Helgafelli hlýða að birta íslenzkum lesend-
um merkilega grein frægs erlends rithöf-
undar um þá sálsýki, sem stjórnmálavið-
horf manna á þessari umbrotaöld einkenn-
ist svo mjög af. Er þessi grein nokkurs kon-
ar leiðarvísir í pólitískri sálkönnun, og von-
um vér, að hún geti orðið til þess að auð-
velda mönnum nokkur frumatriði í þeirri
list. Nú er einstakt tækifæri á íslandi til
sambærilegra athugana, og væntum vér,
að öllum reynist auðvelt að sjá flísina í
auga andstæðinga sinna. Við hinu verð-
ur ekki með sanngimi búizt á þessum tím-
um, að menn eygi bjálkann í sjálfs sín
auga.
FRJÁLSAR KOSNINGAR eru hornsteinn
lýðræðisþjóðfélags. Það er því góður mæli-
kvarði á stjórnmálaþroska þjóðar, hversu
þær eru reknar og hve rétta mynd úrslit
þeirra gefa af raunverulegum vilja þjóðar-
innar. Þegar kjósandi setur í einrúmi kross
á atkvæði sitt, fremur hann athöfn, sem