Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Page 28

Nýtt Helgafell - 01.06.1956, Page 28
74 NÝTT HELGAFELL þjóða í heild, til réttlætingar þátttöku Islands í Atlantshafsbandalaginu. Þá er viljandi dregin fjöður yfir það, að ekki einu sinni Norðurlandaþjóðir, hvað þá allar þjóðir Vestur-'Evrópu, hafa sameiginlega utanríkis- stefnu. Svíar halda t. d. enn fast við hlutleysi sitt og standa utan hvers konar hernaðar- bandalaga, og sama máli gegnir um Sviss og frland. Hver þessara þjóða um sig hefur markað sér sjálfstæða utanríkisstefnu og læt- ur hvorki draga sig í dilk austurs eða vest- urs. Þjóðvarnarflokkur íslands telur það grund- völl íslenzkrar utanríkisstefnu, að þjóðin lýsi á ný yfir hlutleysi sínu í hemaðarátökum og hafni þátttöku í hvers konar hernaðarbanda- lögum. A þeim grundvelli sé mörkuð sjálf- stæð íslenzk utanríkisstefna, byggð á íslenzk- um hagsmunum og íslenzkum viðhorfum. Ekki þarf að taka fram, að flokkurinn telur þetta ekki jafngilda einangrun landsins, enda aðhyllist hann engan veginn slík sjónarmið. Þátttaka fslands í virku alþjóðlegu samstarfi og vinsamleg skipti við allar erlendar þjóðir eru ekki aðeins sjálfsögð, heldur beinlínis óhjákvæmileg. Liggur það svo í augum uppi, að óþarft er að ræða nánar. Afstaða flokksins til hins erfenda hers, sem tekið hefur sér bólfestu í landinu, er svo kunn, að óþarfi er að ræða hana hér, svo og hverjar hættur, bæði þjóðernislegar og efna- hagslegar, flokkurinn telur samfara lang- vinnri hersetu í landinu, enda yrði það naum- ast gert í svo stuttu máii, sem hér er til ætlazt. HAUSTVÍSA Vér segjum óðar viS þig og stimriS fer aS HSa: Ó, móSir okkar allra er eftir nokkru aS btSa: aS kaufa örfá ár fyrir ólífisbjartasár, fyrir iSjuleysi og ólund, já, er þaS ekki sólund á dauSans kostakjörum aS kaufa oss strax í dag — meS hálfnaS t hálsi lag og hálfsögS orS á vörum — eitt hreinlegt hjartaslag. D.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.