Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Blaðsíða 9
i. HEFTI
II. ÁRG.
JAN.-APRÍL 1957
Bls.
8 Tómas Guðmundsson: Hann mundi
aldrei slá af nokkurri kröfu
15 Steinn Steinarr: Ljóð
16 Hermann Pálsson: Orðasmíð og
málhreinsun
20 Shirley Jackson: Happdrættið
26 Sólon: Leyndarráðsstjóm
29 Kristján Karlsson: W. H. Auden
34 Undir skilningstrénu
35 Bókmenntir. Kristján Karlsson,
Kristján Eldjárn, Hermann Pálsson,
Sigurður Þórarinsson, Jón úr Vör
43 Tónlist. Ragnar Jónsson
45 Leiklist. Þorsteinn Hannesson
47 Blaðað í bókum
RITSTJÓRN:
Tómas Guðmundsson
Ragnar Jónsson ábm.
Kristján Karlsson
Jóhannes Nordal
::
í:-í
ig:
MANNINUM VAR í öndverðu gefinn frjáls
vilji, en sagan segir, að með því hafi skap-
arinn viljað sýna honum sérstakt traust og
efla hann að ábyrgðartilfinningu og and-
legum þroska. Það ætti að vera óþarft að
rekja hér, hvernig við sjálfir, forfeður vorir
og meðbræður höfum kunnað með þetta
hnoss að fara og hversu tekizt hefur að
þræða veg dyggðarinnar í sífelldri tog-
streitu og vali milli góðs og ills. Er sú
raunasaga kunnari en frá þurfi að segja.
Það er því ekki furða, þótt menn hafi í aðra
röndina þráð að varpa af sér þunga þeirrar
ábyrgðar, sem hið frjálsa val hefur lagt
þeim á herðar. Reynsla sýnir líka, að þeir
hafa fagnað hverri kenningu, sem virzt hef-
ur leysa þá undan henni. Og hefur nútím-
inn verið sérstaklega auðugur af slíkum
kenningum. Vér höfum völ á alls kyns sál-
fræðilegum skýringum á misgerðum vor-
um, sem sýna að þær stafa allar af óvið-
ráðanlegum ástríðum, röngu uppeldi eða
andlegum áföllum; svo að ekki sé minnzt
á þá pólitísku forlagatrú, sem kennir þjóð-
félaginu um allt ranglæti og ljær fylgis-
mönnum sínum einsýnt ofstæki í stað frjálsr-
ar hugsunar og persónulegrar ábyrgðar.