Nýtt Helgafell - 01.04.1957, Blaðsíða 39
RITHÖFUNDAÞÆTTIR
33
að hugmyndir og hugtök kristins dóms séu
orðin okkur torkennilegri í upprunalegum
myndum þeirra en pólitískar hugmyndir og
hugtök nútímans, hvort sem við köllum okk-
ur ,,trúaða" eða ekki. Skóldskapargildi
kvæða hans hefir ekki farið rýrnandi; hann
hefir aldrei lagt á íþrótt sína meiri þrekraun
eða henni samboðnari heldur en í hinum
miklu kvæðaflokkum frá síðari árum (Eins
og stendur, For the Time Being, 1944 eða
öld kvíðans, The Age of Anxiety, 1948), þar
sem hann skilgreinir siðferðilegar og þjóð-
félagslegar meinsemdir samtímans í ljósi
kristinnar trúar og siðfræði. En auk þess er
Auden rétttrúarmaður og rétttrúnaður er
óvinsæll (m. a. vegna þess að menn rugla
honum saman við pólitíska afturhaldsemi).
Samt hlýtur boðskapur Audens að vera ólíkt
staðbetri og þroskavænlegri en hinar „sann-
gjömu'' málamiðlunarkenningar þeirra guðs-
trúarmanna, sem vilja réttlæta kristinn dóm
með þeim forsendum, að hann hafi góð áhrif
á breytni manna, í stað þess að sýna fram
á, að kristin siðfræði sé nauðsynleg, af því
að kristinn dómur sé sannleikur.
Wystan Hugh Auden stendur nú á fimm-
tugu. Hann er fæddur 1907 í York á Englandi,
stundaði nám í Oxford, fékkst síðan við
kennslu og enn síðar við kvikmyndagerð í
London. Árið 1939 fluttist hann til Ameríku
og gerðist bandarískur borgari („af því að
þar er hægt að fá að vera í friði"). Fyrir
skömmu var hann skipaður prófessor til
nokkurra ára í Oxford.
K. K.
Helztu bækur Audens:
Paid on Both Sides (ljóðaflokkur). 1928.
Poems. 1930.
Poems (breytt útgáfa). 1932.
The Orators. (ljóð og prósi). 1932.
The Dance of Death (dramatískt kvæði). 1933.
The Dog Beneath the Skin. (ásamt Christopher Isher-
wood; leikrit). 1935.
Look Stranger (kvæði). 1935.
The Ascent of F.6 (ásamt Christopher Isherwood; leikrit).
Letters from Iceland (ásamt Louis MacNeice).
On the Frontier (ásamt Christopher Isherwood; leikrit)
1938.
Journey to War (ásamt Christopher Isherwood; ljóð og
prósi). 1939.
Another Time. (ljóð). 1940.
New Year Letter. (ljóð). 1941.
For the Time Being. (tveir ljóðaflokkar). 1945.
Collected Poems. 1945.
The Age of Anxiety. (dramatískur ljóðaflokkur). 1948.
Collected Shorter Poems. 1950.
The Enchafed Flood. (ritgerð). 1951.