Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Síða 44

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Síða 44
38 DAGSKRÁ allt slíkt, eins og tíðkazt hefur hingað til. Árið 1933 sagði Roosevelt forseti, „að það væri að verða gagnger breyting á hagfræðilegum hugsunarhætti manna að því leyti, að í fram- tíðinni yrði meira tillit tekið til neytandans en framleiðand- ans.“ Þessi breyting er beinlínis skilyrði fyrir viðreisn atvinnu- lífsins eftir stríðið. • Það, sem sagt hefur verið hér að framan, á ekki síður við um milliríkjaverzlunina. Það ætti loksins að vera öllum ljóst, að það er ekki hægt að ráða bót á hinni alþjóðlegu viðskipta- kreppu, á meðan aðalmarkmið hvers lands er að selja sem mest og kaupa sem minnst. Leiðin til að bæta milliríkjaverzlunina er ekki sú, að ákveða fyrst, hvað maður vilji flytja út og síðan að athuga, hvað maður neyðist til að flytja inn til þess að fá að selja á erlendum markaði, held- ur á fyrst að athuga, hvað þarf að flytja inn og síðan, hvað þurfi að framleiða til að greiða innflutninginn með. Verzlunar- samningur sá, er Þjóðverjar og Ungverjar gerðu með sér árið 1934, var sennilega sá fyrsti nú á tímum, þar sem annar aðilinn bauðst til að örva framleiðslu sína á þeim vörum, sem hinn aðilinn óskaði eftir. En þegar þjóð er að vígbúast, þá er ein- mitt lögð megináherzla á það, sem afla þarf. Þess vegna hefur vígbúnaðurinn einnig haft örv- andi áhrif á heimsverzlunina. Eins verður á friðartímum að leggja megin áherzluna á þarf- ir neytendanna og laga fram- leiðsluna í heild eftir þeim. Annað nauðsynlegt skilyrði atvinnulegrar viðreisnar eftir stríðið er að leggja meiri áherzlu á velferð alþjóðar heldur en á auð einstaklinga og hverfa frá því, að láta verð og gróða á- kveða, hvað skuli framleitt. í stað hins ósjálfráða verðkerfis, sem byggist ekki á neinu sið- gæðislögmáli, verður að koma neyzlu-skipulagning og verðá- kvörðun, er sé miðuð við mark- mið heildarinnar. Þessi skoðun á tilgangi opinberrar verðá- kvörðunar hafði þegar rutt sér til rúms fyrir stríð, svo sem þeg- ar menn féllust á það, að húsa- leiga og mjólkurverð skyldi á- kveðið með tilliti til þess, að þeir, sem mesta þörf hefðu fyr- ir þessa hluti, gætu notið þeirra, en síðan stríðið byrjaði, hefur ákvörðun á verði matvæla út frá félagslegu sjónarmiði mjög aukizt. Það eru ekki annað en draumórar, að hægt sé að koma á aftur „frjálsri“ verðmyndun eftir stríðið. En þegar einu sinni er búið að viðurkenna almennt þessa skoðun á tilgangi verð-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.