Árbók skálda - 01.12.1955, Síða 63
61
í mat, tökum við til óspilltra málanna og hringjum á Gvend
og náum okkur í stóran sendiferðabíl og erum komnir með
síðasta baggann inn fyrir afgreiðsluborðið hjá Gvendi klukk-
an rúmlega hálf eitt, og auk þess vinnujakkann, sem ég ætla
að láta fljóta með og er með á handleggnum.
Við fáum Gvendi afritin af afgreiðsluseðlunum og segjum
honum eins og satt er að hann þurfi ekki að telja í böggun-
um, en hann segist nú samt ætla að telja til þess að vera
viss um að snuða okkur ekki, og kallar á nokkrar stúlkur
fram í búðina og biður þær að láta hendur standa fram úr
ermum. Gvendur gerir athugasemd við buxumar hans Jóa
skítuga og reynir að gera þær afturrækar og heldur því fram
að það borgi sig ekki að þvo svona skítugar buxur, en að
öðru leyti gengur talningin greiðlega, og þegar henni er
lokið, stendur Gvendur upp frá samlagningarvélinni og seg-
ist fá út 1,488 buxur og 1,027 jakka og 242 samfestinga, eða
réttar 1500 krónur, segir Gvendur.
Ég segi: Heyrðu, Gvendur minn, þarna hefur reikningsvél-
inni þinni heldur en ekki bmgðist bogalistin. Að vísu er það
rétt hjá henni að þú sért með .1,488 buxur og 1,027 jakka og
242 samfestinga, en ég er það slyngari en hún að reikna í
beinhörðum peningum að ég fæ út 3,000 krónur en ekki 1500
krónur.
Nei, þar skjátlast þér, væni, segir Gvendur, þetta eru 1500
krónur. Þú reiknar vitlaust en ekki vélin.
Hvernig fær hún það út, Gvendur minn? segi ég.
Hún fær það út með því að reikna 50 aura á buxumar og
50 aura á jakkann og krónu á samfestinginn, segir Gvendur.
Jæja, ég þekki Gvend í Bót og ég er ekki að þrátta við
hann um einar 1500 krónur, sérstaklega þegar ég hef ekkert
skriflegt í höndunum, og ég tek við þessum 1500 krónum, sem
hann réttir mér, og þakka honum kærlega fyrir viðskiptin
og segi Inga að koma og fer út.
Ég þarf kanski ekki að lýsa því hvemig Ingi er á svipinn
þegar við komum út á götuna, nema hvað hann minnir mig