Árbók skálda - 01.12.1955, Page 134

Árbók skálda - 01.12.1955, Page 134
132 talsins, og ég mæti jafnan kúahópnum utan við túngarðinn, og ég stanza og horfi á Skrautu og segi til hennar í huganum: Bráðum kemur þú heim, Skrauta mín, senn er fallega, litla fjósið þitt tilbúið. — Og þegar heim kemur, spyr konan jafnan um Skrautu, eins og um ástvin sé að ræða, og þegar ég segist hafa séð hana, syngur hún um hana við drenginn. Loks er fjósið tilbúið. Öllum hefilspónum, sagi og rusli er sópað saman og tekið á brott, unz fjósið er orðið hreint eins og stofa. Þá er mál að sækja Skrautu. Það er á sunnudagsmorgni, að við húsbóndi minn förum að Garði í þeim erindum að sækja Skrautu. Veður er hið fegursta, svo sem verið hafði hinn fyrsta morgunn minn á býlinu á ströndinni. Húsbóndi minn heldur á múl úr nýjum kaðli í hendi sér, vandlega uppgerðum í snotra hönk. Ég hafði horft á hann gera þennan múl kvöldinu áður, velkja kaðalinn í höndum sér og mýkja, eins og hann ætti að leggj- ast að ungmeyjarvanga. — Ég held á mjólkurbrúsanum. Gert er ráð fyrir, að við tökum Skrautu eftir morgunmjaltimar, en drengurinn þarf að fá mjólkursopann sinn um daginn. Að Garði er rúmur hálftíma gangur. Þetta er gamalt höfuð- ból vestan við hraunjaðarinn, víðlend tún allt um kring og margar hjáleigur, er allar bera kotaheiti. 1 Garði er gróið bú og góð efni og fombýlt. Við göngum út af hraunjaðrinum, yfir mýrina og vestur hjáleigutúnin. Húsbóndi minn er þögull, eins og hann sé í þönkum, stígur þungt til jarðar og stikar. Kaðalhönkin í hendi hans slæst með föstum takti, er hann gengur. Ég trítla á eftir og á fullt í fangi með að fylgja honum. Við komum að Garði, áður en mjöltum er lokið. Bóndi er úti við. Hann er maður þykkur á vöxt og fattur, stuttur og tekinn allmjög að reskjast, snöggur í máli. Hann tekur kveðju okkar. Síðan bíður harin átekta, stingur höndum undir buxna- strenginn neðan við vestið, kiprar hvarmana og einblínir í fjarskann, eins og hann sé að gá til veðurs. Hann er snögg- klæddur og hefur ekki rakað sig. „Þá er ég kominn eftir kúnni," segir húsbóndi minn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Árbók skálda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.