Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.12.1958, Síða 22
Þórshamar úr rafi, verndargripur. (lll. London
Nezvs, ág., 1955)
að þar hafði logað bál, hefur bátur-
inn verið lagður á bálið áður en ösk-
unni af líkinu var dreift. Víða sjást
slík ummerki um að bál hafi verið
kynt á legstað, en við höfum ekki
ástæðu til að ætla, að sjálf bálförin
hafi nokkru sinni farið fram innan
grafreitar.
A sumum gröfum finnast leirker,
yfirleitt mjög sprungin af eldi. Óvíst
er til hvers þau voru látin fylgja ösk-
unni, líklega eru þau ekki venjulegt
haugfé, heldur minjar um iitfararsiði,
sem við þekkjum ekki.
Hvergi lágu vopn í brunaflekkjun-
urn.og gerir það mönnum erfiðara fyr-
ir að aðgreina grafir karla og kvenna.
Því miður liggja ekki fyrir álitsgerðir
mannfræðinga um nema lítið eitt af
þeim beinaleifum, sem fundust á
Lindholm Höje, þó er ljóst orðið, að
grafir karla og kvenna hafa verið eins
að ytra útliti. Snældur cða snældu-
snúðar í nokkrum gröfum báru með
sér að þar var greflruð kona, en liaug-
fé var annars auðkennalítið að þessu
leyti. Sá siður að láta húsdýr fylgja
mönnum á bál, hefur verið vel þekkt-
ur í liinu forna byggðarlagi, í 23 gröf-
um lágu, auk mannabeina, bein af
hundum, bein hesta fundust í þrem-
ur, bein af uxa í einni.
I gröf nr. 604 lágu glerperlur, nagl-
ar, bráðnir bronzmolar o. fl. Sumir
bronzmolanna eru úr armbandi, og
eftir skreytimunstri þess að dæma,
hefur það verið smíðað á öndverðri
víkingaöld, um 800. í sömu gröf
fannst hnífskaft úr dádýrshorni og
ber það stutta rúnaáletrun sín hvoru
niegin (sjá myndir 3 og 4). Hefur
Anders Bæksted unnið að ráðningu
á rúnum þessum. Úr annarri áletr-
uninni (á mynd nr. 3) les hann:
S i k a s u a i a, en úr liinni: Þuru-
f i r i þ i 1 i k a þ i. Bæksted virðist
sem hin síðari eigi að hljóða: Þor-
fríði líkaði. Orðmyndin líkaði er
sennilega þátíð sagnarinnar að líka,
þ. e. að slípa, og merkir þá þessi áletr-
un: (x) slípaði handa Þorfríði. Ilafi
sami maður rist hvorttveggja, er
hugsanlegt, að í s i k a s u a i a sé
fólgið nafn hins óþekkta kavaléra, en
eins og þessar rúnir birtast á sviðnu
og brotnu hnífskaftinu, eru þær æði
torráðnar.
Töluvert af heillegum skartgripum
liefur fundizt á Lindholm Höje, en
20
DAGSKRA