Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 13

Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 13
Ritst j órnar gr einar Tæknilcgar framfarir í göróttum hcimi. Heimurinn gumar sifellt af framförum, stundum í félagsmál- um, oftast í tækni, nú síðast í eldflaugagerð og vopnasmíðum. Sumir eru jafnvel farnir að minnast á ferðir til tunglsins. En er það ekki táknrænt fyrir þennan heim atómvísinda, að þeir, sem hæst láta um slíkar geimferðir, treystast ekki til að leyfa þegn- um sínum frjálsar ferðir um okkar litla hnött. Og er ekki einnig táknrænt fyrir ástandið, að sennilega hafa skáld og rithöfundar aldrei verið eins ofsóttir og nú né fleiri innan fangelsismúra. Sex skáld að minnsta kosti sitja í fangelsi austur í Ungverja- landi, og hefðu tvö þeirra, þeir Josef Gali og Gyula Obor- sovszky verið teknir af lífi á s. I. sumri, ef stéttarbræður þeirra í frjálsum löndum, m. a. á fslandi, hefðu ekki komið til liðs við þá með mjög öflugum mótmælum gegn aftöku þeirra. í Júgó- slaviu afplánar Milovan Djilas níu ára fangelsisdóm fyrir merka bók, er hann skrifaði; á Spáni hefur Dinisio Ridruejo verið ófrjáls maður í fimm ár vegna andstöðu við stjórnarvöldin, í Indónesíu sátu tveir rithöfundar, þeir Mochtar Lubis og S. Takdir Alisjabana í fangelsi í sumar — án dóms og laga, og ekki hefur frétzt, að nokkur breyting hafi þar á orðið. Frá Rúss- landi, sjálfu höfuðvígi andlegrar kúgunar og geimfararaups, heyr- um við að vísu lítið, en við vitum, að þar eru öll skáld kefluð, — og ofsótt, ef þau beygja sig ekki í þolinmæði. En hvers vegna þessar skáldaof'sóknir á okkar ,,framfara“ dögum? Af þeirri einföldu ástæðu, að í stórum hluta þessa atóm- vísindaheims ríkir einræði, skelfilegasta staðreynd heimsins í dag. En engir eru, — samkvæmt eðli, — í meiri andstöðu við einræði en einmitt slcáldin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.