Félagsbréf - 01.01.1958, Page 47

Félagsbréf - 01.01.1958, Page 47
FELAGSBREF 37 Spender tók þátt í spænsku borgarastyrjöldinni og komst þá í náin kynni við starfshætti félaga sinna í kommúnistahreyfing- unni. Varð það til þess að hann sagði skilið við „trúarbrögð" æskuáranna, og hefur hann gert grein fyrir því í hinni víðfrægu bók „The God that Failed“, sem þýdd hefur verið á íslenzku. * * * Þriðja skáldið í hinum rót- tæka hópi ungskálda, sem myndaðist upp úr 1930, er C. Day Lewis (f. 1904) af írsku bergi brotinn. Hann kynntist skáldbræðrum sínum í Oxford, þar sem hann var einnig við nám. Fyrstu tvær ljóðabækur fans vöktu litla athygli, en „Transitional Poems“ (1929) skar úr um það, að hér var komið efnilegt skáld. Hann var einkar lýrískur og orti „nátt- úruljóð", en þau voru ný af nálinni, ástríðufull og fersk. Hann hafði mjög næmt auga, en stundum var ljóðeyra hans dálítið sljótt. Næstu bækur hans voru jafnbetri en þær fyrri, sýndu vax- andi þroska og kunnáttu. Hann var venjulega nefndur í sömu andránni og Auden og Spender, en þeir eru um margt ólíkir. Auden er skáld satírunnar og tilraunanna, glæsilegur formsnill- ingur. Spender er oft hástemmdur, stundum heldur tilfinninga- samur, en venjulega ómyrkur í máli. Lewis er jafnan lýrískur og einlægur. Enda þótt Lewis leiki sér stundum með innrím og hljómbrigði, fæst hann miklu minna við formtilraunir en Auden. Enda þótt hann hafi sömu pólitísku sannfæringu og Spender, hættir honum ekki jafnmikið til að gleyma sér í til-

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.