Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Qupperneq 13
Séð yfir hluta byggðarinnar.
Samrekstur
Enn er ógetið um merkan þátt í rekstri Njarðvíkur
og annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum, en það er sú
samvinna, sem tekizt hefur milli sveitarfélaganna í
ýmsum málum.
Árið 1946 hófst þessi samvinna, þegar öll sjö
sveitarfélögin á Suðurnesjum hófu samstarf um
byggingu og rekstur sjúkrahússins í Keflavík. Nú
standa yfir miklar nýbyggingar í sambandi við
sjúkrahúsið, sem hófust vorið 1976 og gert er ráð
fyrir að ljúki 1979.
Síðan hefur tekizt samvinna um ýmis mál, mis-
jafnlega víðtæk, í sumum tilvikum milli allra
sveitarfélaganna, svo sem í rekstri og uppbyggingu
heilsugæzlustöðvar, sem tekin var í notkun árið
1975, byggingu og rekstri Iðnskólans í Keflavík, sem
nú hefur víkkað út starfssvið sitt og við hefur tekið
fjölbrautaskóli.
Hitaveita Suðurnesja er sameign sveitarfélaganna
og ríkisins. Hitaveitan er þegar að komast í notkun í
Grindavík og kemur í Njarðvík og Keflavík haustið
1977.
Brunavarnir eru reknar sameiginlega, utan þess,
Frá vígslu bókasafns í skólahúsinu. Á
Ijósmyndinni má m. a. þekkja Ólaf G.
Einarsson, lengst til vinstri, Matthías
Á Mathlesen, fjármálaráðherra, Eyþór
Þórðarson og konu hans, Hilmar G.
Þórarinsson, og Magnús Guðmanns-
son, byggingarfulltrúa kaupstaðarlns.
259
SVEITARSTJÖRNARMÁL