Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 16

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 16
Árið eftir, f maí 1801, er Kröyer aftur guðfaðir Önnu Kristínar, dóttur þeirra Anders og Frið- riku. Eitthvað hefur þó gengið hrumult í hjóna- bandi þeirra fyrst í stað, því að í desember þetta sama ár fæddist á Hrafnagili í Eyjafirði svein- barn, er skírt var Andrés. Var móðirin Guðný nokkur Jónsdóttir, og „útlagði hún föður að sveininum assistent Andreas Lever, sem hefur gengið við faðerni hennar barns", eins og segir í prestsþjónustubókinni. Ekki var dvöl þeirra Levershjóna löng á Siglu- firði, því að árið eftir, 1802, er hann orðinn verzl- unarstjóri á Reyðarfjarðarkaupstað, og þar fæð- ist þeim hjónum önnur dóttir þetta ár. Var sú skírð Vilhelmína Kristíana og átti seinna heima á Espihóli í Eyjafirði, eða Stórhóli, sem hann var stundum kallaður, og síðar á Akureyri, og var þá nefnd Stórhóls-Mína, til aðgreiningar frá frænku sinni og nöfnu. Stórhóls-Mína átti fyrst Stefán Stefánsson Þórarinssonar amtmanns, en síðar Bjarna Jóhannesarson frá Kambfelli í Saur- bæjarhreppi. Hún andaðist að Naustum við Akureyri árið 1875 félaus einstæðingur. Þriðja dóttir þeirra Levershjóna, Vilhelmína Gytte Frið- rika, fæddist árið 1805. Á Reyðarfirði var Anders Lever verzlunarstjóri til 1805, vel kynntur og vel að sér, segir kirkju- bókin, og þar bregður fyrir í þjónustu hans árið 1802 Þuríði Sigfúsdóttur, og er þá kölluð „pige“, ef henni er þá ekki ruglað saman við Mechinu systur sína, en þeirra getur brátt nánar. Hinn 30. nóv. 1805 sóttu þeir Leversbræður um 16000 rík- isdala lán til sölunefndar konungseigna til að kaupa eignir Frisch jústitsráðs á Eyjafirði og Skagaströnd og endurreisa þar verzlun, en var synjað, enda líklega taldir leppar Kyhns frænda síns. Anders var í Kaupmannahöfn ásamt bróður sínum veturinn 1805-’06 en kom þá aftur til Reyðarfjarðar ásamt konu sinni og dætrunum þremur, en var helsjúkur og dó 9 dögum eftir heimkomuna, 17. júní 1806. Gekk ekkja hans, Friðrika Kristín, fjórum árum seinna að eiga Friðrik Möller assistent, þann, er fæddist í Fugla- vaðsmyllu á Sjálandi 1788. Meðal barna þeirra var Edvald Eilert, sem yfir 50 ár var verzlunar- 262 stjóri á Akureyri og átti sæti í fyrstu bæjarstjórn- inni þar, þótt hann ætlaði að koma sér undan því á þeim forsendum, að hann væri hjú Höepfners húsbónda síns, en þá skyldu þeir ekki liafa kosningarétt eða kjörgengi, sem voru öðrum háðir sem hjú, svo sem það var orðað. En á þenn- an skilning Edvalds Möllers á stöðu sinni vildu æðstu völd Norðuramtsins ekki fallast. Fjöldi íslenzkra afkomenda hans ber ættarnafnið Möll- er, og meðal barnabarna hans var Ólafur Frið- íiksson, ritstjóri. Ekki veit ég, hvenær eða með hvaða hætti yngri bróðirinn, Hans Vilhelm, kom til íslands, en hann var kominn til Reyðarfjarðar 1799 í þjónustu Kyhns, og í manntalinu 1801 er talinn á Reyðar- fjarðarkaupstað Andreas Vilhelm Lever, 21 árs, og mun það hann, þó að nafnið Andreas sé í staðinn fyrir Hans, enda er Anders bróðir hans í þessu manntali á Siglufirði sem fyrr getur. Hefur því Hans Vilhelm verið orðinn verzlun- armaður á Reyðarfirði á undan eldri bróður sín- um. Ekki stýrði hann þó Reyðarfjarðarverzlun einn, heldur með honum ÓIi nokkur Möller, og hjá þeim var „husholderske", eða ráðskona, Mechín Sigfúsdóttir, 21 árs, „ógift, þjónandi”. Hafði hún eignazt sveinbarn, Andrés, með Óla þessum 1797, og 2. október 1802 ól hún honum meybarn, sem skírt var Jóhanna María. Seinna giftist Mechín Jóhanni Hendrik Biering beyki. Þegar Lever eldri tekur við Reyðarfjarðarkaup- stað, flyzt Hans Vilhelm til Seyðisfjarðar og verð- ur faktor þar. Til hans flyzt þangað árið 1802 áðurnefnd Þuríður Sigfúsdóttir ogelur honum þar meybarn 1. marz það ár, og var mærin skírð degi síðar og hlaut nafnið Vilhelmína. Hefur kirkju- bókin um þessa barnsfæðingu þá einkennilegu athugasemd, að eftir því sem menn viti til, sé jjetta beggja foreldranna fyrsta meinalausa frillu- lífisbrot. Er þetta elzta heimildin um söguhetju okkar, Vilhelmínu Lever. Ekki dvaldist Hans Vilhelm lengi á Austfjörð- um, jrví að árið 1803 tekur hann við forstöðu Kyhnsverzlunar á Akureyri. Þetta sama ár, 22. október, er hann vígður í hjónaband af Hrafna- gilspresti, sr. Magnúsi Erlendssyni, sem þá var nýtekinn við embætti af föður sínum. Hans Vil- helm er þá talinn 23 ára og brúður hans og barns- SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.