Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Síða 19
sama Sigurð hafði Lever viljað gera að lögreglu-
þjóni staðarins, þó ekki yrði af. Mun sýslumaður
Briem hafa talið það móðgun við sig og lögreglu-
stjórn sína, er Lever gerði þessa uppástungu.
Barn Guðrúnar Jónsdóttur og Hans Vilhelms
hlaut nafnið Anton Vilhelm. Árið 1835 er hann í
manntali hjá sínum raunverulega föður, kallað-
ur vinnumaður, nýkominn þangað frá móður-
fólki sínu á Moldhaugum. Átti Anton síðar eft-
ir að gera garðinn frægan í Arnarnesi við Eyja-
fjörð, og er margt mikilhæfra manna frá honum
komið.
Hans Vilhelm hóf sjálfstæðan verzlunarrekst-
ur 1819 fyrir norðan Búðarlæk og hélt þeimrekstri
áfram til dauðadags, 14. apríl 1843. Voru verzlun-
arhús hans nálægt því, sem nú er Höepfners-
bryggja. Hann var þrem árum fyrir andlát sitt
11. í röð útsvarsgjaldenda á Akureyri, greiddi þá
24 fiska, en hæst útsvar galt þá Bertel Borgen
sýslumaður, 52 fiska, eða 4 ríkisdali og 2 mörk.
Ekkja Levers, Karín Kristín, hélt verzlunarrekstr-
inum áfram nokkur ár eftir dauða manns síns,
kölluð borgarinnaí manntali 1850 og fleiri heim-
ildum. En 1855 hverfur hún á brott til Noregs,
og veit ég ekki meira af henni að segja.
Einkabarn þeirra Hans Levers og Þuríðar Sig-
fúsdóttur, Vilhelmína, fæddist sem fyrr segir á
Seyðisfirði 1802 og ólst upp með foreldrum sín-
um á Akureyri. Hún heful: misst móður sína ein-
hvern tíma á árabilinu 1810-17 og eignast þá
stjúpmóður þá, er fyrir skemmstu var getið. Er
hún fermdist 1817, var hún vel læs og kunni vel
allan barnalærdóminn. Tvítug að aldri giftist
hún Þórði Daníelssyni frá Skipalóni, en sá hafði
framazt erlendis, lært garðyrkju og smíðar og
var nefndur Gartner og Klejnsmed mr. Thord
Lonstæd, þegar mikið skyldi við hafa. Fluttust
þau að Lóni og höfðu búshald tilkomumikið og
kostnaðarsamt. Næsta ár flytjast þau til Akureyr-
ar og tekur þá að togna á hjónabandinu, en Vil-
helmína var sögð „fríð sýnum og fagurlega á fót
komin, vitur og blíð í viðmóti.“ Árið 1825 hafði
Þórður fengið leigt hjá Jóhanni Gudmann, en
í byrjun þessa árs kærir hann konu sína fyrir
Briem sýslumanni fyrir endurtekið hjúskapar-
brot. í réttarprófum í ágúst leiðir hann sem
vitni yfirmenn af dönsku skipi, en landi þeirra,
Thomas Fogh, endurskoðandi við Knudsensverzl-
un á Akureyri, hafði oftar en einu sinni getið þess
við vitnin, að hann hefði haft „legemlig Omgang
með Mad. Danielsen". Jafnframt hafði Fogh
látið þess getið, að maður hennar ætti ekki lægt
með henni, að sjálfrar hennar sögn. Upp úr þessu
málajsrasi skildu þau Þórður og Vilhelmína, en
allt um það er hún þrásinnis nefnd og skráð
Mad. Danielsen.
í manntali árið 1833 er Mad. Danielsen 31 árs,
talin til heimilis hjá föður sínum og stjúpu og
titluð „hans datter“. En fjórða júní þetta ár, seg-
ir Hrafnagilskirkjubók, að hún fæddi son, og er
hann einbirni hennar. Þá var siður presta, er
Mynd þessa úr Búðargili tók Eðvarð Slgurgeirsson, Ijós-
myndari á Akureyri fyrir Sveitarstjórnarmál nær 80 árum
síðar en hin myndin úr Búðargili var máiuð. f gilinu er mikil
gróðursæld og kartöfluspretta mikil, enda mun þar skjól í
öllum áttum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL