Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 34

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 34
árið 1970 er á ný lögð sérstök áherzla á mikilvægi þessa þróunarhlutverks í starfsemi Húsnæðismála- stofnunar. Með þriðju grein laganna er skilgreint viðamikið verkefni í rannsóknar- og þróunarmálum, sem stofnuninni er ætlað að inna af hendi. Ekki varð eðlileg fjölgun í starfsliði stofnunarinn- ar, til þess að vinna að þessum verkefnum árin 1970—1974, þó að byggingarstarfsemin í landinu og byggingarkostnaður hafi margfaldazt, miðað við árin á undan. En þá var veruleg þörf á að koma á aukinni stýringu og rannsóknum í þróun bygg- ingarmála. Starfsemi teiknistofunnar hélt áfram með svipuðu sniði og frá því fyrir 1970, þ. e. hönnun týpuhúsa- teikninga og frágangsvinna, eftirlits- og leið- beiningaferðir yfir sumartímann. Sala týpuhúsa- teikninga og vinna kringum þær jókst í samræmi við aukna byggingarstarfsemi. Voru tengsl Húsnæðis- málastofnunar við húsbyggjendur úti á lands- byggðinni að verulegu leyti fyrir milligöngu bygg- ingarfulltrúa staðanna. Og í mörgum tilfellum var byggingarfulltrúinn sú eina stoð og stytta, sem byggjandinn gat leitað til í byggingarmálum sínum. Á þeim stöðum, þar sem litlar upplýsingar voru til um lóðirnar, svo sem hæðarmælingar o. fl., þurftu byggingarfulltrúar oft að leggja á sig auka erfiði án nokkurrar þóknunar til að afla allra nauðsynlegustu upplýsinga, svo unnt væri að teikna húsin á lóðirnar. Á þennan hátt þróaðist smám saman mjög ánægju- leg samvinna milli byggingarfulltrúa og Húsnæðis- málastofnunar. Tæknideild stofnuö árið 1974 Á miðju árinu 1974 er stofnuð tæknideild og verður teiknistofan þá hluti af áætlaðri tæknilegri starfsemi Húsnæðismálastofnunar. Með meiriháttar fjölgun starfsliðs á árinu er lagður grundvöllur að löngu tímabærri breytingu á tæknilegri þjónustu stofnunarinnar. Var nú tekið til við að endurskipu- leggja alla tækniþjónustu og þá sér í lagi að setja ný markmið, með því að taka til meðferðar þau verk- efni, sem stofnuninni bar að vinna, lögum sam- 280 kvæmt, eins og áður er rakið. Hönnun leiguíbúða sveitarfélaga Eitt af fyrstu verkefnum, sem hinni nýstofnuðu tæknideild var falið, var vinna við áætlun um byggingu 1000 leiguíbúða sveitarfélaga á árunum 1974—1978. Lög höfðu verið sam|Dykkt um þetta efni árið áður, en áætlunargerð og tæknilegur undirbúningur skammt á veg kominn. Þetta viða- mikla verkefni varð fljótt þungamiðja í starfsemi tæknideildar síðla árs 1974 og framan af árinu 1975. Leituðu mörg sveitarfélög fljótlega eftir umfangs- mikilli fyrirgreiðslu vegna væntanlegra leiguíbúða- framkvæmda, eins og þau áttu rétt til, samkvæmt reglugerð. Má segja, að þetta verkefni ásamt endur- nýjun á týputeikningasafni stofnunarinnar hafi ein- kennt starfsemi tæknideildar meginhluta ársins 1975. Hlutverk byggingarfulltrúa við eftirlitið Einmitt á þessum vettvangi gegna byggingarfull- trúar að mínum dómi mjög þýðingarmiklu hlut- verki. Það er i þeirra valdi að koma á nægilega sterku aðhaldi við eftirlit og úttektir á byggingarfram- kvæmdum í dreifbýli, þannig að bæði hönnuðir og byggingaraðilar hlaupist ekki undan viðeigandi skyldum og ábyrgð. Koma þyrfti á betra sambandi milli hönnunarstigs og framkvæmdastigs. Því miður má rekja ýmis dæmi um bygginga- skaða, rangar byggingarútfærslur og óhóflegan byggingarkostnað til aðhaldsleysis byggingaryfir- valda og óskipulegs byggingareftirlits af hendi verk- kaupa. Nú er það vitað, að vandi byggingarfulltrúa er margvíslegur, umdæmin oft stór í hinum dreifðu byggðum landsins og oft erfiðleikum bundið að koma á nægilega virku eftirliti og leiðbeiningum. Störfin hafa einatt ekki mætt viðeigandi skilningi hvorki hjá húsbyggjendum, sem stundum hafa til- hneigingu til þess að sniðganga byggingarreglu- gerðir, eða yfirvöldum, sem oft hafa látið undir höf- uð leggjast að veita byggingarfulltrúum sínum nægilegan bakstuðning til aukins aðhalds í bygg- ingarmálum. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.