Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Side 35
Fjölbýllshúslð vlð Víðigrund 14—16 á Sauðárkróki er meðal fyrstu sambýlishúsanna, sem fullgerð eru utan Reykjavíkur af
þeim húsum, sem reist eru í flokki leiguíbúða sveitarfélaga. Tæknideildin hefur aðstoðað sveitarfélaglð við samningagerð
við verktaka og lagt til grundvallar eigin verðútreikninga. Þykir vel hafa tekizt til um kostnað og alla gerð hússins. Ljósm.
Stefán Pedersen, Sauðárkróki.
Með nýju frumvarpi til byggingarlaga er stefnt að
því að fjölga byggingarfujltrúum í dreifbýli og koma
á umdæmisfyrirkomulagi. Jafnframt eru í hinu nýja
frumvarpi gerðar meiri kröfur til menntunar í starfi
byggingarfulltrúa. Er þetta eflaust til mikilla bóta.
En það þarf jafnframt að bæta aðbúnað og aðstöðu
byggingarfulltrúa og launa þá í samræmi við þá
ábyrgð, sem starfinu fylgir. Um leið og stefnt er að
breytingum og endurbótum á starfseminni með
hinum nýju lögum, þyrfti að endurskipuleggja
starfsemina i átt til meira eftirlits og aukinnar leið-
beiningaþjónustu.
Athugandi væri, hvort ekki ætti að koma á reglu-
legum fundum eða námskeiðum t. d. einu sinni á ári,
þar sem samræmdar yrðu aðgerðir og mörkuð stefna
varðandi leiðbeiningastarfsemi í málefnum hús-
byggjenda. í fámennum héruðum, þar sem langt er
að sækja til byggingarfulltrúa, er þeim mun
nauðsynlegra að byggingarreglugerðir og leiðbein-
ingar um byggingarmál séu kynntar húsbyggj-
endum reglulega.
Á tæknideild Húsnæðismálastofnunar er litið á
það sem þýðingarmikið hlutverk að veita bygg-
ingarfulltrúum og byggingaryfirvöldum alla mögu-
lega aðstoð við að leiðbeina húsbyggjendum, bæta
húsakost landsmanna og koma með ábendingar um
betra skipulag byggingarframkvæmda einstaklinga
og sveitarfélaga.
Þar sem byggingarfulltrúar eru alla jafnan í
áþreifanlegasta sambandi við húsbyggjendur, væri
æskilegt, að þeir skýrðu frá ýmsum þeim vandamál-
um, sem þeir kynnast í starfi og bendi á leiðir til
úrbóta. Jafnframt væri gott að fá ábendingar um þá
þætti byggingarfræðslu, sem auka þyrfti að þeirra
mati, og svo með hverjum hætti samvinna Hús-
næðismálastofnunar og byggingarfulltrúa gæti
orðið virkari í málefnum húsbyggjenda.
281
SVEITARSTJÓRNARMÁL