Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 40

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Page 40
SKIPTING 25% SJÓÐSINS Á ÁRUNUM 1976 OG 1977 I 3. tbl. Sveitarstjórnarmála 1975 segir frá þeirri breyt- ingu, sem gerð var á vegalögunum með lögum nr. 27 1975 þess efnis, að framlagið, sem áður var 10% af þéttbýlisfé og varið skyldi til að flýta framkvæmdum við gatnagerð, þar sem sérstök ástæða þykir til að ljúka ákveðnum fram- kvæmdum eða til að stuðla að hagkvæmari vinnu- brögðum, var hækkað í 25% eða í fjórðung þéttbýlisfjárins. Fjárveitinganefnd Alþingis skyldi skipta þessu fé að fengnum tillögum vegamálastjóra. 1 sama tölublaði var sagt frá fyrstu úthlutun á þessum svokallaða „25% sjóði“, samtals 66 milljónum króna, sem komu til skiptanna á árinu 1975. Var þessu fé varið til gatnagerðar í sveitarfé- lögum á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Fjárveitinganefnd hefur nú ráðstafað 25% sjóðnum fyrir árið 1976 og jafnframt lagt drög að skiptingu hans á árinu 1977, þótt nefndin áskilji sér rétt til að endurskoða þá úthlutun, ef tilefni gæfist til. Til ráðstöfunar hafa árið 1976 komið 88 millj. króna, og fyrir árið 1977 hefur nefndin úthlutað 76,6 millj. króna. Við úthlutun þéttbýlisfjár árið 1976 hefur fjárveitinga- nefnd lagt eftirfarandi meginreglur til grundvallar: „1.1 framhaldi af úthlutun árið 1975, en þá fór fé úr 25% sjóði einvörðungu til Vesturlands og Vestfjarða, er haldið áfram þeirri stefnu að gera verulegt átak á tiltekn- um svæðum. Að þessu sinni er áherzlan lögð á Norðurland vestra og á Austfirði. Á árunum 1977 til og með’ 1979 kemur röðin að Norðurlandi eystra, Suðurlandi og Reykjanesi. 2. Að jafnaði er miðað við að greiða 40% kostnaðar við undirbyggingu og slitlag þjóðvega í þéttbýli og stuðzt við framkvæmdaáætlanir sveitarfélaganna sjálfra i þvi efni. Vegagerð rikisins fór yfir þær áætlanir ásamt Fram- kvæmdastofnun rikisins, og eru upplýsingar nefndarinnar frá þeim aðilum. 3. Á þeim stöðum, sem varanlegt slitlag var ekki komið i endanlegt horf fyrir árið 1975, en áformað nú að fullgera þjóðvegi í þéttbýli, var úthlutun ákveðin 20% kostnaðar, enda hafi viðkomandi sveitarfélag ekki fengið áður óaftur- krælan styrk frá rikinu til þjóðvegagerðar i þéttbýli. Hér var um að ræða Neskaupstað, Seyðisfjörð og Eskifjörð. 4. Tekið skal fram, að úthlutunartölur árið 1977 eru til endurskoðunar á þvi ári. 5. Nefndin mun æskja þess við Vegagerð rikisins, að framlög þessi verði greidd eftir þvi sem viðkomandi verk- 286 efnum við þjóðvegi i þéttbýli miðar fram.“ Hér fer á eftir yfirlit yfir úthlutun fjárveitinganefndar úr 25% sjóðnum til sveitarfélaga á árunum 1976 og 1977: 1976 1977 millj.kr. millj.kr. Akranes 8,3 Ólaísvik 2,1 Grundarfjörður 4,0 Búðardalur 1,3 Patreksfjörður 3,4 Tálknafjörður 1,3 6,0 Bildudalur 1,0 3,0 Flateyri 2,0 Hólmavik 4,0 2,3 Hvammstangi 5,0 Blönduós 5,8 Skagaströnd 4,3 0,5 Sauðárkrókur 10,0 6,0 Ólafsfjörður 2,6 4,2 Dalvik 3,5 Húsavik 2,6 Raufarhöfn 2,3 Þórshöfn 1,6 3,0 Vopnafjörður 6,0 3,2 Egilsstaðir 4,0 Neskaupstaður 5,0 Eskifjörður 2,2 Seyðisfjörður 3,0 Reyðarfjörður 6,8 2,0 Fáskrúðsfjörður 3,0 6,5 Stöðvarfjörður 1,3 1,9 Breiðdalsvik 2,6 Djúpivogur 4,0 Hvolsvöllur 2,0 Stokkseyri 2,0 9,0 Selfoss 0,8 Hveragerði 1,0 1,8 Þorlákshöfn 4,4 Hafnarfjörður 2,0 Samtals kr. 88,0 76,6 Fjárveitinganefnd á óráðstafað 11,3 millj. króna af þvi fé, sem hún telur, að komi til skiptanna í svokölluðum 25% sjóði á árinu 1977. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.