Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Síða 42

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1976, Síða 42
288 þrjá flokka, m. a. með tilliti ti! náms- efnis o. fl. 1. flokkur: 6—9 ára. 2. flokkur: 10—12 ára. 3. flokkur: 13—15 ára. Það verður að teljast mjög jákvætt fyrir umferðarfræðslu i skólum, hve margir byrjendur hafa fengið grund- völl að umferðarfræðslu á forskóla- stigi. Flestir 7 ára nemendur skilja nú orðið þörf umferðarreglna og nauðsyn þess að kunna þær og reyna að fara eftir þeim. Hlutverk skólanna mun annars vegar vera fólgið í því að kenna börnunum umferðarreglurnar, bæði orð og gerðir (bóklegar og verk- legar æfingar), þannig að þau geti notfært sér þær í umferðinni. Hins vegar er það ekki síður mikilvægt að efla viljann til þess að haga sér rétt í umferðinni og koma þeim í skilning um umferðarvandamálin, sem byggður er á almennri ábyrgðartil- finningu. Sýnikennsla á góðri hegð- um í umferðinni ásamt æfingum er grundvöllur fyrir vananum. Að þessu þurfa skólarnir að vinna í samvinnu við foreldra, löggæzlumenn, öku- menn almenningsvagna (skólabíls- ins), o. fl. aðila. Mótun barns sem góðs vegfaranda er langtímamark- mið, sem við öll berum ábyrgð á. Barnið getur átt við sérstök vandamál að glíma, sem fullorðnir veita ekki athygli í fljótu bragði. 1 hverju eru vandmál barnsins í umferðinni fólgin og hvernig kom- umst við að raun um, hver þau eru? A. Með svörum foreldra á svarlista foreldrabréfs, sem dreift er fyrstu skóladagana. B. Með umræðum við foreldra og nemendur. C. Með viðtölum við lögreglu o. fl. aðila, t. d. ökumenn skólabílsins, stærtisvagnsins og gangbrautar- verði, þar sem þeir eru. D. Með könnun umferðar. Með tölfræðilegri rannsókn á ástandi umferðar. Nemendur 10—15 ára geta gert athugun á ástandi umferðar, ef þeir eru vel undir það búnir og hafa til þess sérstök eyðublöð. Niðurstöður má einnig nota við fræðslu yngri barna. E. Með athugun á slysaskýrslum Umferðarráðs. F. Með könnun frétta í dagblöðum og öðrum fjölmiðlum. Til að efla áhuga nemenda á um- ferðarfræðslu og bættri umferðar- menningu, er heimilt, samkvæmt reglugerð um umferðarfræðslu í skól- um, að fram fari getraunir eða kann- anir með frjálsri þátttöku nemenda, er um leið sýni þekkingu þeirra á umferðarreglunum. En eigi það að bera góðan árangur, er nauðsynlegt að kennarar, löggæzlumenn og for- ráðamenn bæjarfélaga veiti þessum þætti þann stuðning og fyrirgreiðslu, sem verða má. Þess má geta, að undirritaður hefur átt mjög góða samvinnu við forráðamenn hinna ýmsu bæjarfélaga um þennan þátt umferðarfræðslunnar. Einnig hafa mörg fyrirtæki og stofnanir gefið verðlaun af ýmsu tagi til hvatningar nemendum. Mörg félög og klúbbar hafa gefið skólancmendum endur- skinsmerki, og má ætla, að almenn notkun endurskinsmerkja meðal barna sé þessum aðilum mikið að þakka. Fullorðna fólkið mætti hins vegar nota endurskinsmerki mun meir en raun ber vitni. Að lokum vil ég nefna, að stefnt er að aukinni umferðarfræðslu i skólum og með fræðslufundum, námskeiðum og vaxandi útgáfu á fræðsluefni get- um við náð betri árangri, en við hin fullorðnu þurfum einnig að sýna gott fordæmi í umferðinni svo umferðar- menningin haldist í hendur við aðrar framfarir meðal okkar. DRÁTTARVEXTIR HÆKKA í 2'/2% Dráttarvextir hækkuðu hinn 1. desember s.l. úr 2% i 2‘/2% á mánuði frá gjalddaga til greiðsludags. Er þetta samkvæmt auglýsingu Seðla- banka Islands frá 28. september s.l. Samkv. 43. gr. tekjustofnalaganna skulu dráttarvextir af vangreiddum gjöldum til sveitarsjóða vera þeir sömu og hjá innlánsstofnunum. Dráttarvaxtatafla, sem útbúin hefur verið samkvæmt þessum reglum, gildir til marzloka, en þá öðlast gildi ný tafla, sem verður send sveitar- stjórnum í tæka tíð. Mikilvægt er, að gott samstarf sé á milli lögreglu og skóla um umferðarfræðslu, einkum er hlnn verklegl þáttur áríðandi. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.