Sveitarstjórnarmál - 01.06.1978, Síða 47
EYÞÓR EINARSSON,
formaður Náttúruverndarráðs:
SAMSTARF EVRÓPURÁÐS-
RÍKJANNA Á SVIÐI
NÁTTÚRUVERNDAR-
OG UMHVERFISMÁLA
Evrópuráðið varð einna fyrst al-
þjóðastofnana til að taka náttúru-
vemdar- og umhverfismál upp á
stefnuskrá sína. Náttúruverndar-
nefnd Evrópuráðsins var komið á fót
árið 1962 og hefur starfað reglulega
síðan. Innan nefndarinnar starfa
undirnefndir og starfshópar, sem
undirbúa og afgreiða að mestu þau
mál, sem á starfsáætlun eru hverju
sinni og aðalnefndin tekur svo end-
anlegar ákvarðanir um á árlegum
aðalfundum, sem ávallt eru haldnir í
Strasbourg og standa í 5 daga. Island
hefur tekið fullan þátt í þessu sam-
starfi, bæði í aðalnefndinni, þar sem
Eyþór Einarsson hefur verið fulltrúi
Islands, frá því hún var sett á lagg-
irnar, og i undirnefndum og starfs-
hópum.
Nefndin hefur unnið að ýmsum
náttúruverndar- og umhverfismál-
um, bæði þeim, sem snerta öll aðild-
arríki Evrópuráðsins, og þeim, sem
tengd eru tilteknum hlutum Evrópu,
t.d. Suður- eða Mið-Evrópu. Hún
hefur reynt að stuðla að samstarfi að-
ildarríkjanna eftir megni og vekja
áhuga og skilning yfirvalda og al-
mennings á vandamálum á starfssviði
sínu. Á vegum hennar hafa verið
könnuð og borin saman lög og reglur
aðildarrikjanna um ýmsa þætti nátt-
úruverndar- og umhverfismála og
tillögur gerðar um endurskoðun á
þeim, þar sem þess hefur þótt þörf.
Nefndin hefur beitt sér fyrir nánari
rannsóknum á ýmsum vandamálum
varðandi verndun dýra og plantna og
lífsvæða þeirra og ýmissa náttúru-
auðlinda, varðandi jarðveg, vatn og
loft og hefur gefið út fjölda af skýrsl-
um um þær rannsóknir. Samkvæmt
tillögum nefndarinnar hefur nálægt
tuttugu þjóðgörðum og öðrum
vernduðum svæðum i Evrópu verið
veitt sérstök viðurkenning.
Náttúruverndarnefndin hafði
frumkvæði um gerð Vatnasáttmála
Evrópu og Jarðvegssáttmála Evrópu
og á árinu 1976 hófst undirbúningur
að gerð Evrópusamþykktar um
verndun villtra dýra og plantna og
lífsvæða þeirra.
Árið 1970 var að tilstuðlan nefnd-
arinnar helgað náttúruvernd í Evr-
ópu, og varð það til að glæða mjög
áhuga og skilning á þeim málum,
ekki aðeins í Evrópu, heldur um allan
heim.
Á vegum nefndarinnar starfar
Upplýsingamiðstöð Evrópu um nátt-
úruverndarmál, sem sér um dreifingu
ýmissa gagna til fræðslu og upplýs-
ingar á þessu sviði um alla Evrópu.
Auk þess gefur miðstöðin mánaðar-
lega út Fréttabréf og ársfjórðungslega
mjög fallegt tímarit, sem nefnist
Naturopa. Upplýsingamiðstöðin hefur
auk þess beitt sér fyrir upplýsingar-
herferðum á tilteknum sviðum;
þannig var árið 1976 kallað votlend-
isár Evrópu því þá var, og er reyndar
áfram, reynt að vekja athygli á mik-
ilvægi votlendissvæða í búskap nátt-
úrunnar og nauðsyn á verndun
þeirra. Náttúruverndarráð hefur frá
stofnun miðstöðvarinnar verið sam-
starfsaðili hennar hér á landi.
Að frumkvæði Náttúruverndar-
nefndarinnar hafa verið haldnir tveir
fundir þeirra ráðherra í aðildarríkj-
um Evrópuráðsins, sem fara með
náttúruverndar- og umhverfismál. Sá
fyrri var haldinn i Vínarborg árið
1973, en sá siðari í Briissel árið 1976,
og tók Island þátt í þeim báðum. Á
þessum fundum voru þessi mál rædd
almennt, en þó einkum fjallað um
starfsemi Evrópuráðsins og starfs-
áætlun Náttúruverndarnefndarinn-
ar. Þessir ráðherrafundir hafa eflt
mjög og styrkt alla starfsemi nefnd-
arinnar og vakið frekari athygli á
þeim mörgu vandamálum á starfs-
sviði hennar, sem þarfnast úrlausnar.
SVEITARSTJÓRNARMÁL