Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Side 5
LANDSÞING
/IPCV' .JW. Ly' '
iVv Qj y* r.f ■ •fr ,-Ærm .
Xffl. landsþing sambandsins
10.—12. september 1986
Þrettánda landsþing sambands-
ins var haldið í Súlnasal Hótel
Sögu í Reykjavík dagana 10.-12.
september sl. Blásarakvintett
Reykjavíkur lék, meðan þingfull-
trúar og gestir gengu í salinn, en
síðan setti Björn Friðfinnsson, for-
maður sambandsins, þingið. Bauð
hann þingfulltrúa og gesti vel-
komna og ávarpaði sérstaklega
norræna gesti þingsins. í setning-
arávarpi sínu nefndi Björn m.a.
fjölgun kvenna á þinginu og aukna
þátttöku kvenna í sveitarstjórnum,
sem hann kvað ánægjuefni.
Þingforsetar voru kjörnir Magn-
ús L. Sveinsson, forseti borgar-
stjórnar Reykjavíkur, Björn Frið-
finnsson, formaður sambandsins,
og Sigurgeir Sigurðsson, vara-
formaður sambandsins.
Ritarar þingsins voru kjörnir Jón
Eiríksson, oddviti Skeiðahrepps,
og Sigurður Sigurðsson, oddviti
Lýtingsstaðahrepps, og þeim til
aðstoðar settur Unnar Stefáns-
son, ritstjóri.
í kjörbréfanefnd voru skipuö
Engilbert Ingvarsson, oddviti
Snæfjallahrepps, Helga Valborg
Rétursdóttir, oddviti Skútustaða-
hrepps, og Kristján Jóhannesson,
sveitarstjóri í Hveragerði.
[ áliti kjörbréfanefndar, sem
Engilbert Ingvarsson mælti fyrir,
kom fram, að rétt til þingsetu ættu
269 fulltrúar allra sveitarfélaga
landsins, en kjörbréf hefðu borizt í
þingbyrjun fyrir 199 fulltrúa. Þing-
ið sátu um 170 fulltrúar sveitarfé-
laga auk allmargra gesta, inn-
lendra og erlendra. Þar á meðal
voru formenn og framkvæmda-
stjórar landshlutasamtakanna,
sem eiga rétt til setu á landsþingi
með málfrelsi og tillögurétti ásamt
nokkrum fleirum.
Ávörp vió þingsetningu
Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, flutti ávarp við setn-
ingu þingsins og árnaði því heilla í
störfum. Ráðherrann fjallaði um
nýju sveitarstjórnarlögin, gerði
grein fyrir ýmsum málum, sem fé-
lagsmálaráðuneytið fjallaði um og
SVEITARSTJÓRNARMÁL 219