Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Qupperneq 7

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Qupperneq 7
LANDSÞING fjallar um sama efni. Ritið er fáan- legt á skrifstofu sambandsins. Staðbundin sjónvarpskerfi Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, flutti erindi um samstarf sveitarfélaga og Pósts og síma um uppbyggingu staðbund- inna sjónvarpsdreifikerfa. Lýsti hann þeirri byltingu, sem nú er orðin í möguleikum á flutningi út- varps- og sjónvarpsefnis með notkun Ijósleiðara úr glertrefjum í stað koparstrengja, sem til þessa hafa verið notaðir í strengjakerfi. Nýju sveitarstjórnarlögin Magnús E. Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri sambandsins, gerði grein fyrir aðdraganda að setningu nýju sveitarstjórnarlaganna, sem öðluðust gildi sl. vor, og rakti síð- an nýmæli þeirra lið fyrir lið. Fræðslumál Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, kom á þingið eftir Vilhjálmur Hjálmarsson, fv. menntamálarádherra, og Páll Lindal, fv. formaöur sambandsins, rifja upp gömul kynni. Starf sambandsins 1986-1990 Sigurgeir Sigurðsson, varafor- maður sambandsins, flutti loks framsöguerindi um starfsemi sam- bandsins á næsta kjörtímabili stjórnar þess, 1986-1990. Ræddi hann m.a. ávinning af reglulegum samráðsfundum sambandsins og ríkisvaldsins, aukna útgáfu- og fræðslustarfsemi, starf Tölvuþjón- ustu sveitarfélaga og launanefnd- ar og um verkefni, sem unnið væri að eða væru í athugun. Loks vék Sigurgeir að ákvæðum nýju sveit- Árnesingar við borð. kaffihlé á fyrsta degi þingsins og ræddi ýmsa þætti fræðslumála, einkum endurskoðun grunnskóla- laga og setningu laga um fram- haldsskóla, sem nú er í undirbún- ingi. Hann ræddi kostnað við akst- ur skólabarna, við rekstur mötu- neyta skóla og gæzlu og nauðsyn þess að lækka útgjöld ríkisins til þessara þátta. Þau myndu nema í ár 193 millj. króna vegna flutnings nemenda. Þá vék menntamálaráð- herra að því, að starfsfólk fræðslu- skrifstofanna í landshlutunum væri orðið fleira heldur en starfsfólk menntamálaráðuneytisins, en í því störfuðu 65 manns. Miklar umræður urðu um þetta efni. M.a. tóku til máls Björn Frið- finnsson, formaður sambandsins, Valgarður Hilmarsson, formaður dreifbýlisnefndar sambandsins, og Ölvir Karlsson, fulltrúi sam- bandsins í samstarfsnefnd þess og menntamálaráðuneytisins um fræðslumál. SVEITARSTJÓRNARMÁL 221

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.