Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 11

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 11
LANDSÞING sveitarstjórnar til fram- kvæmdaáætlana skv. 76. grein sveitarstjórnarlaga). Þegar þarf aö gera áætlun um greiðslu þess 7-800 milljón króna skuldahala, sem mynd- azt hefur vegna skólabygg- inga og framvegis veröi gerðir samningar um hverja bygg- ingu og tryggöar greiðslur lögum samkvæmt. 6. Þingiö vekur athygli á því ófremdarástandi, sem skap- ast af fjárskorti Námsgagna- stofnunar. Þingið hvetur til þess, að komið verði upp kennslugagnamiðstöðvum í tengslum við fræðsluskrif- stofurnar. 7. Þingið fagnar skipun nefndar til þess að vinna að samningu laga um samræmdan fram- haldsskóla. Meginatriði er, að sömu reglur gildi um rekstur allra framhaldsskóla. 8. Þingið minnir á hið þýðingar- mikla hlutverk, sem héraðs- skólar hafa gegnt í uppeldi og menntun æskunnar í hinum dreifðu byggðum og leggur áherzlu á, að héraðsskólun- um verði fundið framtíðarhlut- verk. 9. Alkunna er, að fjölmargir skólar búa við alvarlegan kennaraskort og að launakjör kennara hafa leitt til flótta úr stéttinni. Mörg sveitarfélög hafa gripið til þess ráðs að greiða einhvers konar staðar- uppbætur, jafnvel í formi beinna launaauka. Með því hafa þau í raun axlað hluta þeirrar greiðslubyrði, sem rík- inu ber að lögum. Þingið varar við þessari þróun og skorar á mennta- og fjármálaráðherra að beita sér fyrir því, að kjör kennara verði bætt til muna, svo unnt verði að fá réttinda- fólk til kennslu hvar sem er á landinu. Þingið varar sveitar- félög við að ganga of langt í að taka á sig skuldbindingar vegna kjaramála kennara. 10. Þingið vekur athygli á þeirri kynlegu lagatúlkun, að ríkið neitar að taka þátt í dagvistun fyrir fötluð börn, þegar sveit- arfélög hafa forgöngu um slík- ar stofnanir, en veitir hins vegar fyrirgreiðslu, þegar önnur félagasamtök standa að verki. 11. XIII. landsþing Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga varar við þeirri hættu, sem steðjað get- ur að íslenzkri menningu með myndbandavæðingu og fjöl- þjóðlegu sjónvarpsefni. Gegn því flóði er öflugust vörn, að hlúð sé að lista- og menning- arlífi (slendinga sjálfra. Því hvetur þingið sveitarfélögin til að styðja eftir megni hvers konar menningarstarfsemi. Tillaga um að vísa frá síðari málsgrein 1. töluliðar álitsins var felld með 51 atkvæði gegn 12. Ní- undi töluliður var borinn upp sér- staklega, og voru mótatkvæði 3. Áliti framtíöarnefndar vísaö til frekari meöferöar Sturla Böóvarsson, sveitarstjóri í Stykkishólmi, mælti fyrir áliti framtíðarnefndar þingsins. Hafði nefndin samið drög að áliti, sem m.a. var byggt á framsöguerindi Magnúsar Ólafssonar, hagfræð- ings, um þróun íslenzka þjóðfé- lagsins næstu áratugi og á erindi Sigurgeirs Sigurðssonar um starf- semi sambandsins næsta kjör- tímabil stjórnar þess. Álitið var í sex köflum, og er í því m.a. vikið að breytingum á stjórnsýslunni í landinu. í umræðum kom fram, að naumur tími væri á þinginu til þess að gera slíku máli skil og eðlilegt, að það yrði verkefni næstu stjórn- ar og fulltrúaráðs sambandsins að fjalla frekar um það. Að lokinni umræðu var að tillögu þingforseta lagt til, að álitinu yrði í heild vísað til stjórnar og fulltrúaráðs sam- bandsins. Álit kjörnefndar Björn Fríófinnsson hafði orð fyr- ir kjörnefnd þingsins. SVEITARSTJÓRNARMÁL 225

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.