Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Side 15
LANDSÞING
lagsmálaráðuneytið vinnur að
þessu verkefni í samvinnu við
Samband íslenzkra sveitarfélaga.
Undirbúningur og framkvæmd
sveitarstjórnarkosninganna var
fyrsta verkefnið á þessu sviði.
Vegna sumarleyfa eru júlí- og
ágústmánuðir erfiðir til fundahalda
og nefndastarfa. Þrátt fyrir það er
kominn skriður á undirbúning að
sameiningu nokkurra sveitarfé-
laga. Fyrsta sameiningin á grund-
velli nýju laganna kom reyndar til
framkvæmda strax um sl. mánaða-
mót. í samræmi við ákvæði sveit-
arstjórnarlaganna hefur verið unn-
ið að því að skipa sameiningar-
nefndir í flestum þeirra sveitarfé-
laga, sem hafa færri íbúa heldur
en 50.
Ljóst er, að sameining þessara
sveitarfélaga við önnur sveitarfé-
lög mun í flestum tilvikum ganga
greiðlega fyrir sig, þótt landfræði-
legar aðstæður séu í sumum til-
vikum til hindrunar og kalli á sér-
staka meðferð.
Ég tel rétt að undirstrika, að lög-
in gera ráð fyrir, að sameining
sveitarfélaga nái til miklu fleiri
sveitarfélaga heldur en þeirra,
sem eru með færri en 50 ibúa.
Enginn vafi er á, að áhuginn fyrir
sameiningu sveitarfélaga hefur
aukizt verulega nú síðustu mán-
uðina, og ég er þess fullviss, að á
þessu sviði mun nást verulegur
árangur á næstunni. Ráðuneytið
mun beita sér í þessu máli í sam-
vinnu við sveitarfélögin og samtök
þeirra og leita ráða til þess að
greiða fyrir slíkri sameiningu.
Ég fagna sérstaklega frumkvæði
sýslufundar Austur-Barðastrand-
arsýslu, sem samþykkti einróma
áskorun til félagsmálaráðherra um
að sameina alla hreppa sýslunnar í
eitt sveitarfélag. Vinna við þetta
verkefni er nú í fullum gangi.
Unnið er að samningu fyrir-
myndar að samþykkt um stjórnun
sveitarfélaga, og nokkrar reglu-
gerðir þarf að setja á næstunni á
grundvelli laganna.
Endursko&un
tekjustofnalaga
Nefnd, sem vann að endur-
skoðun á lögum um tekjustofna
sveitarfélaga, lauk störfum á sl.
vori. Hún skilaði tillögum sínum í
formi draga að frumvarpi til laga
um róttækar breytingar á núgild-
andi tekjustofnalögum.
Fegar nefnd þessi hóf störf fyrri
hluta árs 1985, skrifaði hún öllum
sveitarstjórnum og stjórnum
landshlutasamtaka sveitarfélaga
og óskaði eftir ábendingum þeirra
og tillögum. Einnig voru þessi mál
til umræðu á fulltrúaráðsfundum
sambandsins 1985 og 1986.
Sveitarstjórnarmenn fengu því
góð tækifæri til þess að koma á
framfæri hugmyndum sinum og
tillögum varðandi endurskoðun
laganna. Prátt fyrir það þótti rétt að
senda frumvarpsdrögin til um-
sagnar hjá sveitarfélögunum eftir
sveitarstjórnarkosningarnar, og
eiga þær umsagnir að berast nú
fyrir miðjan september.
Pegar þær liggja fyrir, verður
gengið frá endanlegri gerð frum-
varpsins, og ég stefni að því að
leggja það fyrir Alþingi í haust.
Endursko&un skipulags-
laga og byggingarlaga
Fyrri hluta þessa árs vann nefnd
á vegum ráðuneytisins að endur-
skoðun skipulagslaganna.
Nefndin samdi frumvarp til nýrra
skipulagslaga, sem sent var út til
umsagnar í júlí sl. Umsagnir um
frumvarpið áttu að berast nú fyrir
lok ágústmánaðar. Stefnt er að því
að leggja frumvarpið fram nú á
haustþinginu. í því verða ákvæði
um gerð landsskipulags og mögu-
leiki á skipulagsskrifstofum í
landshlutunum.
Unnið er að endurskoðun bygg-
ingarlaganna. Þar er m.a. stefnt að
eflingu byggingarfulltrúastarfsins
og að auknum kröfum til hönnuða.
Vanskilavextir á
barnsmedlögum
Á síðasta þingi voru samþykkt
lög um breytingu á lögum um Inn-
heimtustofnun sveitarfélaga. Þar
er gert ráð fyrir að innheimta eðli-
lega vexti af vanskilum, en svo
hafði alls ekki verið. Þessi laga-
setning hefur þegar skilað veru-
legum árangri í bættri innheimtu
barnsmeðlaga, sem dregur úr
greiðslum frá Jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga.
Ný lög um vinnumi&lun
Ný löggjöf um vinnumiðlun tók
gildi á sl. ári. í hinum nýju lögum
er um þýðingarmikla stefnumótun
að ræða, þar sem markmið vinnu-
miðlunarinnar er skilgreint á þann
veg, að hlutverk hennar sé að
stuðla að nægri og jafnri atvinnu
um land allt.
Gerðar hafa verið sérstakar at-
huganir á atvinnuástandi um land-
ið. Tilgangur þessara kannana
hefur verið að fá sem gleggsta
heildarmynd af eftirspurninni á
vinnumarkaðinum og líklegum
breytingum á henni með hliðsjón
af áformum fyrirtækja um breyt-
ingar á starfsmannahaldi.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi að tölvuvæðingu vinnumiðl-
unarinnar.
Lög um varnir gegn snjó-
fló&um og skriöuföllum
Á sl. ári voru samþykkt á Alþingi
lög um varnir gegn snjóflóðum og
skriðuföllum. Lögin kveða á um
skipulag þessara mála og hvernig
fjármagna á framkvæmdir tengdar
þeim.
Samstarfssáttmáli ríkis
og sveitarfélaga
í janúar 1984 var undirritaður
samstarfssáttmáli ríkis og sveitar-
félaga. Samkvæmt sáttmálanum
SVEI-TARSTJÓHNARMÁL 229