Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Side 21

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Side 21
AFMÆLI nýju húsakynnum hinn 23. september sl. Eins og áöur sagði, var ráöinn sérstakur skrifstofustjóri fyrir félagsmálaráðuneytið hinn 17. september 1946, og var það Jónas Guðmundsson, eftirlits- maður sveitarfélaga, en hann hafði verið aðalhvatamaðurinn að stofnun Sambands íslenzkra sveitarfélaga 11. júní 1945. Á fyrsta starfsári félagsmála- ráðuneytisins 1946 voru starfs- menn þrír að tölu. Starfsmenn ráðuneytisins eru nú fimmtán. Fram til 1. janúar 1970 heyrðu undir félagsmálaráðuneytið mál- efni, sem má aðgreina í fimm aðal- flokka, þ.e. sveitarstjórnarmál, húsnæðismál, vinnumál, almanna- tryggingar og önnur félagsmál. Um áramótin 1969 - 1970 öðluðust gildi lög um Stjórnarráð íslands nr. 73 frá 16. maí 1969 og reglugerð um sama efni frá 31. des. 1969. Samkvæmt þessum lögum og reglugerð varð mjög veruleg breyting á skipan ráðuneyta og skiptingu starfa milli ráðherra, að því er að sveitarstjórnarmálefnum lýtur. Þeirri breytingu var ætlað að ganga í þá átt, að skyldum og sam- stæðum málum væri skipað til eins og sama ráðuneytis. Ekki mun ofsagt, að menn hafi greint á, hvernig til hefur tekizt í því efni. Tryggingamál, þ.e. almanna- tryggingar og önnur tryggingamál, sem áður heyrðu undir félags- málaráðuneytið, voru, ásamt heil- brigðismálum, sem áður heyrðu undir dóms- og kirkjumálaráðu- neytið, sameinuð í nýtt ráðuneyti, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneyti. Með lögunum um Stjórnarráð íslands var m.a. sú breyting gerð, að þegar skipt er störfum með ráðherrum, skal hvert ráðuneyti lagt óskipt til eins og sama ráðherra. Sá ráðherra, sem fór með fjármál, hafði frá árinu 1959 einnig á hendi einn þátt félagsmála, þ.e. tekjustofna sveitarfélaga, og varð því veruleg breyting hér á við setningu þessa ákvæðis. Samkvæmt fyrrnefndri reglu- gerð um Stjórnarráð íslands, sem öðlaðist gildi 1. janúar 1970, fer félagsmálaráðuneytið með mál, sem skipta má í þrjá meginflokka. Sveitarstjórn Fyrsti málaflokkurinn eru mál, sem varða stjórn sveitarfélaga og sýslna, þ.á m.: 1. Sveitarstjórnarkosningar og kosningar til sýslunefnda, mörk sveitarfélaga, tekju- stofnar sveitarfélaga, Jöfnun- arsjóður sveitarfélaga, Lána- sjóður sveitarfélaga, aðstoð við landkaup sveitarfélaga og Bjargráðasjóður. 2. Framfærslumál og sveitfesti. 3. Brunavarnir og brunamála- stofnun ríkisins. 4. - Skipulag, skipulagsstjórn ríkisins og embætti skipu- lagsstjóra. 5. Samband íslenzkra sveitarfé- laga. Húsnæöismál Annar aðalmálaflokkurinn eru mál, er varða íbúðarhúsnæði, þ.á m. Flúsnæðisstofnun ríkisins og mál þau, sem stofnunin hefur með höndum skv. lögum um Hús- næðisstofnun ríkisins, en þau eru nú lög nr. 60/1984 með síðari breytingum. Undir þennan mála- flokk falla ennfremur lög um fjöl- býlishús nr. 59/1976 o.fl. Vinnumál Þriðji meginflokkurinn, sem heyrir undir félagsmálaráðuneytið, eru vinnumál, þ.á m. mál, er varða: 1. Stéttarfélög launþega og atvinnurekenda, kjararann- sóknir, vinnudeilur, embætti ríkissáttasemjara og sátta- störf í vinnudeilum og Félagsdóm. 2. Yfirumsjón með vinnumiðlun og skráningu atvinnulausra, sbr. lög nr. 18/1985. 3. Ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot, sbr. lög nr. 23/ 1985. 4. Orlof og atvinnuleyfi útlend- inga. Þá hafa frá gildistöku reglu- gerðar nr. 96/1969 tvær nýjar deildir tekið til starfa í ráðuneytinu, en þær eru vinnumáladeild (vinnumálaskrifstofa) og deild, sem fer með málefni fatlaðra. Vinnumáladeildin var sett á stofn samkvæmt 53. gr. laga nr. 13 frá 10. aþríl 1979. Frá verkefnum hennar og starfsháttum er nánar greint í IX. kafla nefndra laga nr. 13/1979 og í reglugerð nr. 9 frá 8. janúar 1980. ísland gerðist aðili að samn- ingi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað, sem gekk i gildi 1. ágúst 1983 og tekur til allra Norðurlandanna. Öll mál í sam- bandi við aðild íslands að þessum samningi hvíla á herðum vinnu- máladeildar, þ.á m. norræn vinnu- miðlun. Deildin.sem fer með málefni fatlaðra, varsettástofn samkvæmt 3. gr. laga um þroskahefta nr. 17/ 1979, en þau lög tóku gildi 1. janúar 1980. Deildin starfar nú samkvæmt lögum nr. 41/1983, um málefni fatlaðra, sem öðluðust gildi 1. janúar 1984, en samkvæmt 3. gr. þeirra laga skal félagsmála- ráðuneytið annast málefni fatlaðra. Umfang þessara mála, sérstak- lega eftir gildistöku laga nr. 41/1983, fer sívaxandi. Ráðuneytið annast daglegan rekstur framkvæmdasjóðs fatl- aðra. Allmargar stofnanir fyrir fatlaða um land allt hafa verið settar á stofn í kjölfar þeirra laga, sem hér um ræðir, auk þess sem eldri stofnanir ýmissa félagasamtaka eru nú reknar með fjárframlögum SVEITARSTJÓRNARMÁL 235

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.