Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 31

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1986, Síða 31
TÆKNIMÁL Geymirinn tilbúinn fyrir yfirborðsmeðhöndlun og þak. mögulegt, þar sem hún hvílir í isaldarbláleir, sem ekki var hróflað við, er grafið var fyrir tanknum. Sem fyrr segir, er burðarsúlan manngeng, og mannopið inn í tankinn þjónar jafnframt sem yfirfall. í steypu súlunnar voru notaðar Fibermesstrefjar til þess að ná tilskildum reikningsstyrk og sveigjanleika, t.d. við jarðskjálfta- álag. Þakskífurnar eru gerðar hjá Trefjaplasti hf. á Blönduósi og eru úr 5 cm polyurethankjarna og trefjamottur beggja vegna. Smíðin er vandkvæðum bundin vegna stærðar þeirra, en þakvalið er bæði vegna nálægðar verk- smiðjunnar og eins vegna léttleika og einangrunargildis þess. Að innan er tankurinn þéttur með Thoro-efnum, en nóg framboð virtist á þéttiefnum, er framkvæmd þessi spurðist út. Frá tengihúsi inn i botn tanksins liggur þreifirör, sem tengt er þrýstiskynjurum, sem ,,skynja“ vatnshæðina og stjórna dæling- unni út frá völdum gildum. Tilkoma tanksins verður okkur starfsmönnum veitunnar mikið fagnaðarefni og örugglega bænum til heilla. Greinarhöfundur tók myndirnar. lá oft við stórtjóni á síðasta hausti. Var því ráðizt í byggingu þessa miðlunargeymis sem forgangs- verkefni sveitarfélagsins. Flönnun tanksins er að ýmsu leyti frá- brugðin því, sem almennt tíðkast. Botnplatan er steypt eftirá og þétt við veggi með þéttiefnum, en þakið er borið uppi af 8 l-bitum, sem hvíla á burðarsúlu fyrir miðjum tanki, en hún er jafnframt mannop og yfirfallsrör. Þakið er úr trefjaplasti, sem sett er saman úr átta skífum. Tankurinn er niðurgrafinn að hluta í Breiða- vaðsnúpnum við tengihúsið og er 4.9 m á hæð og 17 m í þvermál og rúmar 970 m3 vatns, sem ætti að duga fyrir flesta sólarhringstoppa og að öllu jöfnu nægja til tveggja daga vatnsþarfa. Auk þess verður þarna fyrir hendi slökkvivatn, sem stóreykur öryggi bæjarbúa, ef upp kæmi bruni við þær aðstæður, að vatnsdælur á virkjunarsvæðinu yrðu óvirkar. Framkvæmdin var ekki boðin út, en unnin undir eftirliti og að stórum hluta af starfsmönnum sveitarfélagsins, sem ekki virðist ætla að komi niður á fram- kvæmdahraðanum, þar sem vinna við uppsláttinn hófst 7. ágúst, og allt bendir til, að hægt verði að taka tankinn í notkun í lok september. Veggjunum var slegið upp með álmótakerfi, en áður hafði járngrindinni verið komið fyrir, sem auðveldaði mjög vinnu við hana, en tafði ekki uppsláttinn. Botnplatan er járnbundin með einföldu bendineti, sem var Unnið við uppslétt miólunargeymisins. SVEITARSTJÓRNARMÁL 245

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.