Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Qupperneq 10
ÝMISLEGT
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar:
Þjónustu- og vaxtarsvæði á landsbyggðinni styrkt
Fyrsti ríkisráösfundur nýrrar stjómar. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Jón Sigurösson, iönaöar- og viöskiptaráöherra, Sighvatur
Björgvinsson, heilbrigöis- og tryggingamáiaráöherra, Halidór Blöndal, landbúnaöar - og samgönguráöherra, Eiöur Guönason, um-
hverfisráöherra, Daviö Oddsson, forsætisráðherra, forseti Islands, frú Vigdis Finnbogadóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis-
ráöherra, Friörik Sophusson, fjármálaráðherra, Jóhanna Siguröardóttir, félagsmálaráöherra, Ólafur G. Einarsson, menntamálaráö-
herra, og Þorsteinn F’álsson, dóms- og kirkjumálaráöherra og sjávarútvegsráöherra. Á myndinni er einnig Guömundur
Benediktsson, ráöuneytisstjóri i forsætisráöuneytinu. Ljósm. Gunnar G. Vigfússon.
Tíu dögum eftir alþingiskosning-
arnar 20. apríl myndaði Davíð
Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík,
nýja ríkisstjórn, samsteypustjórn
Sjálfstæöisflokksins og Alþýöu-
flokksins.
Ríkisstjórnin er skipuö tíu ráö-
herrum, einum færri en voru í
stjórn Steingríms Hermannssonar.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn eru í rík-
isstjórninni Davíð Oddsson, sem
fer meö forsætisráðuneytiö og
Hagstofu íslands, Friörik Sophus-
son, sem fer meö fjármálaráöu-
neytiö, Halldór Blöndal, sem fer
með landbúnaöarráöuneytið og
samgönguráöuneytiö, Ólafur G.
Einarsson, sem fer meö mennta-
málaráöuneytið, og Þorsteinn
Pálsson, sem fer með dóms- og
kirkjumálaráðuneytið og sjávarút-
vegsráöuneytiö.
Fyrir Alþýöuflokkinn eru í stjórn-
inni Jón Baldvin Hannibalsson,
sem fer meö utanríkisráðuneytið,
Eiöur Guönason, sem fer meö um-
hverfisráðuneytiö, Jóhanna Sig-
uröardóttir, sem fer meö félags-
málaráöuneytiö, Jón Sigurösson,
sem fer meö iðnaðarráðuneytiö og
viðskiptaráðuneytið, og Sighvatur
Björgvinsson, sem fer meö heil-
brigöis- og tryggingamálaráðu-
neytiö.
Sáttargjörð um sanngjörn
kjör
Ríkisstjórnin hyggst rjúfa kyrr-
stööu og auka verömætasköpun í
atvinnulífinu, sem skili sér í bætt-
um lífskjörum, eins og segir í upp-
hafi stefnuyfirlýsingar, sem hún
sendi frá sér, þegar hún var
mynduö, 30. apríl. Hún vill tryggja
stöðugleika í efnahagslífinu og
sáttargjörö um sanngjörn kjör,
m.a. meö aðgerðum í skatta- og
félagsmálum. Hún stefnir aö opn-
un og eflingu íslenzks samfélags,
m.a. meö afnámi einokunar og
hafta í atvinnulífi og viöskiptum,
meö aukinni samkeppni á markaöi
í þágu neytenda og löggjöf gegn
einokun og hringamyndun.
„Bezta leiöin til aö varðveita
sjálfstæöi þjóöarinnar", segir í
stefnuyfirlýsingunni, „er aö örva
efnahagslegar framfarir án verö-
bólgu og án ofnýtingar náttúru-
auölinda."
72