Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Page 44
HEILBRIGÐISMAL
hnúta búiö, að hitastig í kæli-
vörum haldist frá 0-4°C og í
frystivörum við -18°C eða
meira.
8. Ákvæði greinar 91.1.7 fjallar
um, að í hverjum skóla skuli
vera greiður aðgangur að sér-
stökum tækjum með drykkjar-
vatni fyrir nemendur og taka
gildi 1. janúar 1992.
Ein heildarreglugerð um
heilbrigðiseftirlit
Nefndin markaði sér þá stefnu
að leggja til, að áfram yrði um að
ræða eina heildarreglugerð um
heilbrigöiseftirlit. Ýmsum greinum,
sem fjalla um skyld atriði og komu
fyrir á mörgum stöðum f eldri
reglugerð, er nú komið fyrir sem
mest í sama kafla. Einnig hafa
verið sameinuð ákvæði, sem
varða sama eftirlitsskyldan aðila
eöa samsvarandi eftirlitsatriði.
Nefndin fékk til umfjöllunar
reglugerðir, sem unnar höfðu verið
af öðrum aðilum. Þannig voru
veittar umsagnir um reglugerð um
veitinga- og gististaði og um
reglugerð um meindýraeyða.
Viö endurskoðunina var fyrst og
fremst höfð hliösjón af því, að
reglugeröin væri í samræmi við hin
ýmsu lög, sem öðlazt hafa gildi frá
árinu 1972, svo sem:
• lög um hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit nr. 81/1988,
• lög um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum nr. 46/
1980,
• lög um heilbrigðisþjónustu nr.
59/1983 og
• sveitarstjórnarlög nr. 8/1986.
Ýmis atriöi úr reglugerð um til-
búning og dreifingu matvæla og
annarra neyzlu- og nauðsynjavara
nr. 250/1976 voru felld inn I þessa
reglugerð. Má því telja, að sú
reglugerö sé úr gildi. Þó gilda enn
ákvæði, sem eru nánar tiltekin í
ákvæðum til bráðabirgða nr. 2. í
reglugerð nr. 409/1988 um aukefni
í matvælum og öðrum neyzluvör-
um.
Ennfremur hafa ákvæði reglu-
gerðar nr. 140/1974 um tjald- og
hjólhýsasvæði verið felld inn í kafl-
ann um tjald- og hjólhýsasvæði.
í 25 meginköflum
Heilbrigðisreglugerðin nýja
skiptist í 25 meginkafla sem hér
segir:
I. Um heilbrigðisnefndir og
verksviö þeirra, ýmis ákvæ-
ði og leyfisveitingar.
II. Um hreinlæti og þrifnaö ut-
anhúss.
III. Um vatnsveitur, vatnsból
og verndarsvæði þeirra,
brunna og sjó.
IV. Um salerni og fráveitur.
V. Um hreinsun og meðferð
sorps og annars úrgangs.
VI. Um meindýr, ónytjadýr og
vargfugla.
VII. Um íbúðarhúsnæði.
VIII. Um gististaði, veitingastaði
og aðra matsölustaði.
IX. Tjald- og hjólhýsasvæði.
X. Um meðferð og sölu mat-
væla og annarra neyzlu- og
nauðsynjavara.
XI. Um skóla, kennslustaði og
barnaheimili, þar með talin
sumardvalarheimili, dag-
vistarheimili og gæzluvellir.
XII. Um rakarastofur, hár-
greiðslustofur, hvers konar
snyrtistofur og sólbaðsstof-
ur.
XIII. Um heilbrigðisstofnanir,
hæli, heilsuræktar- og
íþróttastöðvar og baöstaði.
XIV. Um fangelsi og aðrar vistar-
verur handtekinna manna.
XV. Um samkomuhús.
XVI. Um kirkjugarða, bálstofur,
líkhús, líkgeymslur og llk-
flutninga.
XVII. Um almenn samgöngutæki.
XVIII. Um fugla- og gripahús, bú-
rekstur og skepnuhald.
XIX. Um fyrirtæki, stofnanir og
hvers konar annan atvinnu-
rekstur.
XX. Um afgreiðslustöðvar elds-
neytis og olíugeyma.
XXI. Um reyk, mengaðar gufur,
eitraðar lofttegundir og ekki
jónandi geislun.
XXII. Um hávaða og titring.
XXIII. Ýmis eiturefni.
XXIV. Um aðstoð heilbrigðis-
nefnda við sóttvarnir.
XXV. Lokaákvæði.
Helztu nýmælin
Fjölda nýmæla má finna í nýju
reglugeröinni, sem of langt mál
yrði að gera nákvæma grein fyrir,
en þó skal bent á eftirfarandi
greinar:
Grein 14.1, um hreinlæti og
þrifnað utanhúss, þar sem meiri
áherzla er nú lögð á að koma í veg
fyrir mengun og lýti á umhverfinu.
Greinar 22 til 30, þar sem m.a.
koma kröfur um verndarsvæði
vatnsbóla, tíðni rannsókna á vatni
er aðlöguð ráðleggingum Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar, og
birt ákvæði, sem gilda viö mat á
neyzluhæfni vatns.
Gr. 34 um fráveitur, þar sem er
að finna ákvæði um skólp frá sum-
arbústöðum og um bann viö því,
að skólp sé leitt út í hafnir, auk
þess sem vitnað er til krafna, sem
gerðar eru um þessi mál í meng-
unarvarnareglugerð.
Gr. 35 um salerni, þar sem kröfur
um fjölda þeirra í skólahúsnæði eru
rýmkaðar, en geröar eru auknar
kröfur um fjölda salerna í almenn-
um veitinga- og samkomuhúsum.
Gr. 37 um almenningssalerni,
þar sem miðað skal við, að a.m.k.
eitt almenningssalerni komi fyrir
konur og eitt fyrir karla á hverja 10
þús. íbúa á þéttbýlisstööum.
Gr. 45 um sorphauga, móttöku-
og eyðingarstöðvar, þar sem
kveðið er á um, að slíkar stöövar
skuli vera a.m.k. í 500 m fjarlægð
frá hvers konar dvalarstöðum
fólks.
Gr. 49 um meindýr, ónytjadýr og
vargfugla, en það er nýmæli að
flokka ýmsa fugla sem ónytjadýr,
en þróun síðustu ára hefur leitt í
Ijós, að stemma verður stigu við
ágangi fugla á borö við t.d. máva,
hrafna og starra, m.a. vegna sýk-
ingarhættu.
Gr. 57 um lágmarkskröfur til
leiguíbúða, þar sem krafa er gerð
til þess, að allar slíkar íbúöir hafi
tiltækt heitt og kalt vatn.
Gjörbreytt ákvæ&i um
matvæli
Matvælakaflinn er gjörbreyttur
og fjallar um framleiðslu, meöferð
106